Við skulum ekki gleyma að..
Laugardagur, 02. apríl 2005
Ég sauma ekki á aðra. Ég sauma ekki fyrir foreldra mína, börn þeirra, bestu vini mína, maka, frændur, frænkur. Ég sauma ekki á mín eigin börn en ég á það til að gera við fötin þeirra, svona þegar ég er í miklu stuði.
Þetta er ekki nógu vel borgað og svo er ég haldin einum persónuleikagalla sem gerir mig að skelfilegri saumakonu.. ég nenni ekki að sauma neitt sem mér finnst ljótt. Það væri ljóta uppákoman "já nei.. ég get ekki tekið að mér að sauma þennan hrylling, því miður.. þú verður að leita eitthvað annað".
Ein pæling. Hvað værir þú tilbúin til að borga fyrir sérsaumaða dragt/jakkaföt? -Og ekki taka fairytale tölu. Taktu tölu sem þú værir tilbúin að leggja á borðið í dag, cash, fyrir þessa vinnu. Taktu svo þessa tölu, dragðu frá henni virðisaukaskatt og deildu henni með 24. Sem er bara tíminn í klukkutímum sem fer í að sauma jakkann. Þá á eftir að taka með í reikninginn máltöku, mátanir, teikningu á sniði o.s.frv., OG neðri partinn hvort sem það eru buxur eða pils. Já.. og svo má ekki gleyma að efnið í flíkina kostar peninga líka. Ég efast um að þú sleppir undir 20 þúsund kalli í efniskostnað fyrir dragt, enda.. what's the point að láta sérsauma á sig ef þú ætlar að kaupa efni sem er drasl?
Myndir þú nenna þessu fyrir þetta tímakaup?
Ekki ég heldur.
Daginn sem saumaskapur verður metin að verðleikum gæti farið svo að ég tæki að mér verkefni. Þangað til.. er bara ein manneskja í heiminum sem ég er tilbúin til að vinna fyrir á svona lúsarlaunum. Ég sjálf.
Því miður er fatabransinn á Íslandi á frekar lágu plani því það eru ekki nógu margir efnaðir einstaklingar sem hafa class.
Til gamans geti þið tekið eftir því næst þegar þið horfði á spjallþætti með "frægu" fólki í sjónvarpinu. Menn með bumbu eru oft með axlirnar lafandi niður sitthvoru megin, vegna þess að þessir menn hafa ekki class og láta ekki sauma á sig yfirmálsjakkaföt og jakkinn er þremur til fimm númerum of stór á viðkomandi, keyptur til að ná utanum bumbuna. Það er skelfilegt.
Hann Ólafur Ragnar má eiga það.. hann hefur class. Lætur sérsauma á sig úr rándýrum efnum, þó þau mættu oft á tíðum vera aðeins meira fyrir augað. Kannski á hann bara skilið að vera kóngur, hann klæðir sig eins og einn.