Tighten up your panties boy..
Föstudagur, 01. apríl 2005
Júlía kom hér áðan. Lét mig tæma hálfa geymsluna til að ná í ísskáp sem hún hætti svo við að ná í og við þurftum að bera allt inní geymsluna aftur.
Gleði.
Ég fann samt ýmislegt í geymslunni. Ég fann saumadótið mitt, brúðarkjólinn minn og eitthvað fleira dót sem ég man ekki hvað er. Gleymdi því um leið og ég skellti geymslunni í lás. Dragnaðist með saumadótið mitt upp og ákvað að taka brúðarkjólinn minn líka með. Var að máta hann. Það er ljóst að brjóstin á mér hafa vaxið gríðarlega síðan síðast en ég passa í friggin kjólinn ennþá, sem hlýtur að vera töluvert afrek þar sem ég var.. að mig minnir.. 27 ára þegar ég gifti mig og bara búin að eiga eitt barn. Nú á ég 37 börn og ég passa ennþá í kjólinn. Magnað. Það er bara alveg rosalega mikið "fletja út og safna saman uppúr kjólnum" action í gangi í brjóstadeildinni. (ég ákvað að hafa mynd sem sýnir einmitt fram á þetta tæknilega atriði þar sem sumir virtust ekki alveg ná því hvað ég var að meina þegar ég minntist á þetta síðast)
Annars var ég að skoða víraverkið í honum. Þetta er bjútifúl enda saumað eftir þessari bók um kjóla frá 15. og 16. öld. Var búin að gleyma að ég væri svona klár. Þurfti smá egó búst til áður en ég legst í saumaskap. Ég er í óvenju góðu skapi. Fór í bað þegar Júlía fór heim og þegar ég kom uppúr baði var skemmtilegur maður komin á msn. Ég settist niður við tölvuna í handklæðinu og þegar ég stóð upp var ég þurr - og í góðu skapi.
Jæja.. nú ætla ég að tæta saumadótið mitt upp úr kössunum og kætast yfir því að ég er að fara að sauma.. en fyrst.. nýr brjóstahaldari. Það er must. Let me elaborate..
.. þegar um sérsaumaða flík er að ræða þarf fyrst að mæla viðfangsefnið uppúr og niðrúr í þeim nærfötum sem það ætlar að vera í undir flíkinni.
Þetta er afar mikilvægt atriði - sérstaklega þegar um kjól er að ræða, hefur með staðsetningu brjóstanna að gera. Miklu mikilvægara þetta með brjóstahaldarann en nærbuxurnar, þó þær gætu orðið mikilvægar ef þú ætlar að vera í t.d. nærbuxum af afa, eða skírlífsbelti úr járni, þá gæti sniðið þurft að vera aðeins víðara o.s.frv. Ég þarf ekki að stressa mig á þessu atriði því ég er löngu búin að skila öllum nærbuxunum hans afa eftir að hann hótaði mér lögreglu og nálgunarbanni og mitt skírlífsbelti.. er.. ónýtt. Það var brotið upp með kúbeini fyrir nokkrum árum síðan, um það leyti sem ég fór að eignast börn. Mamma grét.
Anyway.. þegar brjóstin á manni þurfa utanaðkomandi hjálp til að ná ekki niður á mið læri þá getur munað töluverðu um hvar þau eru staðsett á bringunni á manni, eftir því hvernig brjóstahaldara þú ert í. Þar sem ég á orðið bara ljóta brjóstahaldara sem sæma sér ekki undir svona fínan kjól þarf ég að leggjast í brjóstahaldaraleit dauðans. Best ég taki morgundaginn í það helvíti.
Mikið ansk er þetta vel saumaður kjóll. Hún Guðrún Erna myndi tárast ef hún sæi þetta.. en svo myndi hún skamma mig fyrir að hafa aldrei sett hann í hreinsun. Það er ekki nokkur leið að hafa þessa konu ánægða..