Laugardagur, 30. apríl 2005
Við fórum ekki á vídeóleiguna. Þegar ég var búin að laga neglurnar á Dofra kom Halldór og spilaði scrabble við mig og svo spilaði hann pictionary með mér og krökkunum. Það var æðislega gaman. Halldór fór á kostum og í hvert skipti sem einhver byrjaði að teikna sagði Doddi lymskulega: "ég veit sko pottþétt hvað þetta er". Það var nú oftar en ekki einhver misskilningur hjá honum. Hann skildi nú samt sem áður flest sem ég teiknaði fyrir hann, fyrir utan blóðgjöf.
Frumburðurinn hjálpaði Dodda, sagði honum hvað hann ætti að teikna. Í eitt skiptið teiknaði hann önd, og ég gat uppá því. Kom í ljós að Jóhanna hafði sagt honum að teikna hönd. Hann heyrir jafn vel og ég barnið.
Ég er mjög ánægð með að hafa stoppað vídeóglápið af. Mér finnst allt í lagi að horfa á vídeó once in a while.. en mér finnst óhugnarlegt að heyra frá börnunum mínum að það sé það eina sem við erum "góð" í að gera saman.
Það gengur ekki alveg upp í ljósi þess að ég fer ca 1x í mánuði og tek vídeó fyrir þau. Við þurfum greinilega að finna fleiri hluti sem við erum "góð" í að gera saman.
Núna ætla ég að hit the hey.