www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ræktin og saumakonuhúmor
Þriðjudagur, 12. apríl 2005

Þegar ég las leiðara moggans í gær varð ég svo reið að ég gnýsti tönnum, settist við tölvuna og skrifaði og skrifaði og skrifaði og skrifaði..

Varð að hætta þegar Júlía kom að taka af mér mál. Hún var að gera grín að mér á meðan. Þegar hún tók mittismálið sagði hún: "Vá! Anna! 36!!" Veit ekki hvað maður þarf að vera illa haldin af anorexíu til að ná því takmarki en mér fannst þetta mjög fyndið. Þegar hún tók hæðina sagði hún: "Vá! Anna! 1.15!!!" -Saumakonuhúmor. Glataðasti húmor í heimi en mér fannst þetta óborganlega fyndið. Rifjaðist líka upp fyrir mér á meðan hún var að sauma tölu á mittisteygjuna að saumakonur eru geðbilaðar. Ég meinaða. Maður situr einn og er að vinna í höndunum og ruglið sem vellur upp úr manni.. sjís.. Þótti vænt um að systir mín er jafn geðveik og ég þegar hún er með nál á milli fingranna. Það er ákveðin huggun.

Fór þessu næst í líkamsrækt, á aumingjavélina í 50 mínútur, eða á meðan Survævör rúllaði. Hélt að rassinn á mér myndi detta af á eftir vegna þess að ég var ekkert að drolla við þetta og Hjördís hló og hló þegar ég gekk um í Laugum eins og eftir verulega sérhæft kynlíf. Fórum að teygja og í gufu á eftir. Þegar ég kom heim var ég svo þreytt að ég skreið upp í rúm og fór að sofa.

Sem betur fer teygðum við svakalega vel því ég fann ekki fyrir þessu í morgun og ætla aftur í kvöld.. þegar ég er búin að laga það sem ég skrifaði og birta það.

Þetta er búin að vera langur dagur.


| anna | 16:55 |
comments

Átt þú systur í saumakonunámi?! Ég vissi ekki að svoleiðis nám væri til!

Nr. 1 | posted by: Júlía | 14.04.2005 | 8:39:19 | [+] |

Biðst forláts, systir mín hefur klæðskera-nema–húmor. Hann er víst miklu betri en saumakonuhúmor.

Nr. 2 | posted by: anna | 14.04.2005 | 9:09:48 | [+] |

Enginn skaði skeður, en ég held ég hafi bara húmor... hvort sem hann sé svonahúmor eða einhverskonar annarshúmor! jafnvel kannski hinsegin húmor? Allskonar húmor... laughing

Nr. 3 | posted by: Júlía | 14.04.2005 | 9:20:09 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web