www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Miklu lokið.. slatti eftir
Miðvikudagur, 06. apríl 2005

Eftir vinnu fór Doddi til vinkonu sinnar og ég fór í ræktina að hitta einkaþjálfara sem bjó til frekar staðlað prógram fyrir mig og kenndi mér almennilega á tækin. Honum fannst súperman bolurinn minn rosalega flottur og bað mig að tala við sig aftur eftir mánuð til að fá framhaldsprógramm.

Hann reiknar með því að ég mæti fimm sinnum í viku. Hmmm.. ég er viss um að ég lít ekkert út fyrir að vera svona dugleg..

Á eftir dreif ég mig að sækja Dodda og haldiði að hún María hafi ekki gefið mér skáp undir sjónvarpið mitt! Þvílík snilld! Kærar þakkir María!!!

Nú get ég loksins legið í sófanum þegar ég horfi á sjónvarpið, var að klára að setja þetta upp. Skattskýrslan er búin og nú þarf ég að leggjast yfir gögn og senda ákveðnum fjölmiðlum smá upplýsingar um um ákveðið mál sem þeir hafa verið að fjalla um á ansi einsleitan hátt s.l. daga. Ekki hef ég tíma til að sinna því í vinnunni þessa dagana.. síminn stoppar ekki.

Þetta er náttúrlega.. tjah.. hálfgert xn--kjafti-tua4f


| anna | 21:19 |
comments

haha.. þú verður að ákveða þig hvort þetta heitir "halfgert kjaftaedi" eða "hálfgert kjaftæði" það þarf að borga meira ef þú ætlar að meina bæði!!!

Nr. 1 | posted by: Langi Sleði | 7.04.2005 | 10:19:50 | [+] |

Langi Sleði: Ætla að láta kjaftaedi duga wink

Helgi: Ég er búin að vera að fara ca 3x í viku núna í 2 mán og finn þvílíkan mun á mér þó að ég sé bara að gera eitthvað út í loftið og gjörsamlega ómarkvisst. Ég hef ekkert peninga né tíma til að vera hjá einkaþjálfara, var bara að læra á tækin. Ég stefni einmitt á að fara 3x í viku. Hann má alveg segja mér að mæta 5x, allt annað mál hvort ég ætli að gera það.

Hann vildi samt ekki kenna mér á lóðin, sagði "það er seinni tíma mál". Mig vantar kennara.

Nr. 2 | posted by: anna | 7.04.2005 | 11:35:47 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web