Fimmtudagur, 07. apríl 2005
Mér er boðið í afmæli hjá Dórinu í dag klukkan tvö en ég kemst ekki. Það þykir mér mjög leiðinlegt. Ég hefði viljað gefa honum afmælisgjöfina sína. Á hverju ári fær hann að velja hvort ég gef honum koss eða kjaftshögg. Hann hefur eitthvað verið að kvarta yfir því að þetta sé náttúrlega ekkert val, margt fleira sem ég get gefið honum sem kostar engan pening en myndi gera hann mjög.. afslappaðan.
Ég veit því miður ekki hvað maðurinn er að tala um.
Hann velur alltaf kjaftshöggið enda væri hitt kannski borderline ólöglegt.. þar sem hann er nítján, að eigin sögn. Mér finnst þetta allt hið einkennilegasta mál.. en er treg og það er lífsins ómögulegt fyrir mig að reikna út aldur út frá fæðingarári svo ég verð að taka hann trúanlegan. Finnst samt mega ósanngjarnt að ég verði 34 á árinu og hann 19 þegar við erum fædd á sama ári, en það sagði víst engin að lífið væri sanngjarnt.
Til hamingju með afmælið Halldór! Megir þú finna lífsgleði, hamingju og ást! -en þú munt leita ansi lengi áður en þú finnur aðra illsku eins og mig.
Mér þykir alveg ofsalega mikið vænt um þig. Fnugge með fnörrið snuggums!