Laugardagur, 09. apríl 2005
Halldór er flensaður, fór í gærkvöldi með samloku úr Aktu Taktu til hans. Ætlaði reyndar að fá mér líka samloku en missti matarlystina á meðan ég beið í bílabiðröðinni. Ég hef komist að því að verði ég vitni að ofbeldi missi ég lyst og ég varð vitni að heiftúðugu rifrildi stráks og stelpu þar sem þau enduðu á að ganga í skrokk á hvoru öðru þarna á bílaplaninu.
Það hræðir mig að sjá svona lagað. Veit svosem ekki af hverju, það er ekki eins og þau hafi verið að ráðast á mig. Mér finnst bara alveg ferlega óþægilegt að sjá þegar fólk fer niður á þetta plan og endaði á að horfa á Halldór borða þriggja hæða samloku, einn. Ottó kom í heimsókn á meðan ég var þarna og sýndi okkur brill myndir sem hann er búin að kaupa sér. M.a. Orgasmo unrated. Hann ætlar að lána mér hana. Ottó útskýrði líka fyrir mér af hverju DVD spilarinn minn spilar allt í svart/hvítu. Það er ekki spilarinn, það er sjónvarpið. Það er hægt að stilla tækið þannig að það sendi út PAL mynd en þá kemur smá prop.. spilarinn er japanskur og fjarstýringin líka. Vill til að Dórið og Ottó þekkja menn sem eru fluent í japönsku svo ég á að taka mynd af fjarstýringunni og senda þeim til að fá fjarstýringuna þýdda.
Hvernig ég eignaðist japanskan DVD spilara er löng saga og í raun er ég bara með hann í láni.
Ég fór útí bakarí áðan. Þegar ég kom aftur með bakkelsi og blöðin sagði konan í snoopy náttfötunum: "það er rosalega gott að sofa hjá þér". Ég spurði "can I quote you on that?" Hún sagði já. Svo bárum við saman broddana á fótleggjunum og hún tók niður nafnið á andlitshreinsikreminu mínu, fengum okkur að borða og ræddum strákamál og svona, því auðvitað er þetta bara vinkona mín sem fékk að gista. Sagan er bara ekki eins skemmtileg þannig.
Nú þarf ég hinsvegar að græja þetta lostabæli því hingað eru að koma konur í ónefndri sóknarnefnd sem vilja ræða viðskipti. Ójá.. þegar maður lifir í jafn mikilli synd og ég þarf maður að gera ráðstafanir, fyrst fólk er almennt á þeirri skoðun að það sé líf eftir dauðann. Ég vinn ekki pro bono nema mögulega fyrir Guð og samt bara vegna þess að ég ætlast til þess að ég komist til himnaríkis í staðinn.
Það er náttúrlega ekki einu sinni pro bono. Shit. Ég fer beina leið til helvítis.
Oh well.. mér verður þá allavega ekki kalt.