Föstudagur, 15. apríl 2005
Ég lærði nýtt orð í gær: "ghosting". Þetta orð er notað yfir fólk sem eltir einkaþjálfara í líkamsræktarstöðvum og gerir sömu æfingar og einkaþjálfarinn lætur viðskiptavin sinn gera. Ég lærði líka að fólk græðir voðalega lítið á þessu, þeir sem horfa á sex and the city vita hvað ég er að meina. Ég var að tala við einkaþjálfara í sem ég þekki og við ákváðum döðlu á næstunni (date). Hann heyrði um þetta staðlaða prógram sem ég er komin með, hristi hausinn og sagði að hann ætlaði að fara með mér einn hring og búa til prógram sem er sérsniðið fyrir mig.
Ghosting virkar ekki vegna þess að það er mismunandi hvað hver og einn þarf að leggja áherslu á í ræktinni. T.d. þori ég að veðja að Heather Locklear og Jennifer Lopes séu ekki látnar gera sömu rassæfingarnar. Ég er líklega í JLo deildinni, það er óumdeilanlegt, ég er með rass.
Þetta eru vísindi. Stóla á að Helgi komi með sitt innput í þetta mál. Spurði þjálfarann líka að gamni hvað honum fyndist ég ætti að fara oft í viku: "tvisvar, þrisvar topps - til að byrja með", var svarið.
Ég held ég sé í góðum málum og hlakka ekkert smá til að fá svona alvöru custom made prógram þó eina vitið fyrir mig sé auðvitað að fara að æfa breakdance aftur. Ég hef aldrei verið í betra formi og á þeim tíma. Held samt að ég myndi líklega drepa mig ef ég myndi reyna að snúa mér á bakinu eða hausnum. Já.. líf og sjúkratrygging er málið áður en ég fer út í svoleiðis áhættusport..