Föstudagur, 15. apríl 2005
Þetta er óumdeilanlega hræðilegasti vinnudagur sem ég hef upplifað, síminn stoppaði hreinlega ekki og smám saman fann ég hvernig mojo-ið mitt fór þverrandi. Um hálf fimm var ég búin á því og velti alvarlega fyrir mér, á meðan ég talaði við tæknimann í símanum, að hringja á klepp og láta menn í hvítum sloppum sækja mig. Gefa mér lethal injection.. ég gat ekki meir.
Þegar ég kom heim hringdi Halldór í mig og ég sagði honum frá hvað ég væri þreytt og lítil og uppgefin eftir þetta sífella áreiti í allan dag. Hann spurði hvort ég kæmi bara ekki í heimsókn á eftir: "get gefið þér sígarettur í skiptum fyrir hand job", það kom smá þögn og svo hélt hann áfram: "ég er alltaf að fá fólk hingað í allskonar handavinnu, búa til kerti og sauma út.." Ég brosti og svaraði: "það er vel sloppið, ég er venjulega beðin um blow job.. blása gler og svoleiðis".
Hann segir mér venjulega að hengja mig þegar ég er lítil, býðst til að kenna mér að hnýta snöru og segist eiga helvíti traust reipi sem hann sé ekki að nota, en í dag sagði hann svolítið annað sem kom mér verulega úr jafnvægi. Hann sagði mér að ég væri grænt krækiber.
Hvað þýðir það? Er ég óþroskuð? Verulega óvenjuleg? Óæt?
Grænt krækiber! Og þetta á að heita vinur minn!