www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Cartoon network
Mánudagur, 04. apríl 2005

Stundum er líf mitt eins og teiknimynd, eða farsi.

Tragikómedía?

Það vantar ekki menn sem vilja allt fyrir mig gera, mér hefur allavega ekki verið boðið út að borða til útlanda áður.

Þetta er engin smá séns að taka, ef þið pælið aðeins í því, fyrir hann. Kannski er ég með viðbjóðslegustu borðsiði norðan alpafjalla; lyfti mér upp og prumpa svakalega eftir þriðja hvern bita, brennisteinslykt dauðans, tygg með opin munninn og frussa mat út um allt þegar ég tala, slefa líka, hræki út úr mér mat á gólfið sem mér finnst vondur og heimta skýringar frá kokknum, ek mér í sætinu þegar ég tygg, stekk upp og hrópa JESSSSSSSS í hvert sinn sem ég er búin að kyngja, hef þá áráttu að reyna að byggja Eiffel turninn úr frönskum kartöflum og næ mér í byggingarefni af diskum í nágrenninu þegar ég er búin með mitt eigið, ropa eftir hvern sopa af kókinu þannig að undirtekur í öllu og bíð svo í ofvæni eftir því að borðfélagi minn og fólk á næstu borðum klappi eða fæ svo svakaleg hlátursköst að kókið frussast út um nefið á mér og yfir allt borðið - og mér finnst það svo fyndið að ég reyni að gera það aftur...

Kannski finnst mér gaman að bretta uppá augnlokin og stinga sogrörum upp í nefið á mér. Kannski finnst mér lifandi borðskreytingar góðar á bragðið. Kannski átti ég í ástarsambandi við þjón, brotna niður og fer að gráta í hvert sinn sem ég sé einn. Kannski kann ég ekki að nota hnífapör og borða allt með höndunum, líka súpu. Kannski finnst mér gaman að borða með tánum.

Maður veit aldrei.

Þessi maður kann greinilega við sig á ystu nöf. Ekki einu sinni ég myndi taka svona séns.


| anna | 14:32 |
comments

Geggjað laughing laughing

Ef þú værir ALLT þetta, þá færi ég út að borða með þér, bara upp á skemmtanagildið wink laughing

Nr. 1 | posted by: Þór | 4.04.2005 | 15:44:33 | [+] |

Ég haga mér bara svona á erlendum veitingahúsum toungue

Nr. 2 | posted by: anna | 4.04.2005 | 17:27:02 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web