www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Það sem skiptir mestu máli í lífinu..
Sunnudagur, 03. apríl 2005

Anna says: jesús
Anna says: mamma hringdi í mig áðan
Anna says: spurði
Anna says: "Anna.. hvernig raðar þú hnífapörunum í hnífaparaskúffuna þína?"
Anna says: ég sagði "lengst til hægri eru skeiðar.."
Anna says: SKEIÐAR - sagði mamma
Anna says: stórhneyksluð
Anna says: já, hélt ég áfram, hnífar í miðjunni
Anna says: HNÍFAR Í MIÐJUNNI ANNA! HVAÐ LÉT ÉG ÞIG VASKA OFT UPP SEM BARN, LÆRÐIR ÞÚ EKKERT?
Harpa says: hnífar í miðjunni segir Harpa stórhneyksluð
Anna says: svo ég fór að hlæja og rauk inní eldhús með símann
Anna says: hvernig á þetta að vera mamma?
Anna says: segðu mér það!
Anna says: ég get lagað þetta núna
Harpa says: lærðir þú ekkert sem barn segi ég nú bara líka !!!
Anna says: lol
Anna says: HVAÐA HELVÍTIS MÁLI SKIPTIR ÞETTA HARPA?
Anna says: WHO CARES?
Harpa says: varstu án gamans með hnífa í miðjunni?
Anna says: ÉG HEF BARA HNÍFANA Í MIÐJUNNI EF MIG LANGAR
Anna says: já
Anna says: hvað?
Harpa says: JESÚS MINN
Anna says: WAHAHAHAHA
Anna says: HVAAAAAAAAAAAAAAAÐ?
Harpa says: í nafni guðs föður og svo framvegis
Harpa says: LOL
Anna says: já eða eins og mamma sagði..
Harpa says: LOL
Anna says: "ég myndi nú blogga um þetta góða mín og athuga viðbrögðin"
Anna says: nema ég er ekki viss um að ég ÞORI ÞAÐ
Harpa says: LOL
Anna says: miðað við viðbrögðin hjá þér
Harpa says: hnífarnir til vinstri!
Anna says: þeir eru lengst til hægri núna
Anna says: skv. fyrirmælum frá móðurstöðinni
Harpa says: þér er ekki viðbjargandi!
Harpa says: lol
Anna says: HVAÐ???
Harpa says: lol
Anna says: Á ÉG AÐ FOKKING ÞÓKNAST ÖLLUM
Harpa says: já
Anna says: Á ÉG AÐ BREYTA ÞESSU Á KLUKKUTÍMA FRESTI?
Harpa says: LOL
Harpa says: lágmark
Anna says: fokk this


| anna | 22:06 |
comments

Það er bara einu við þetta að bæta: "Eins gott að blessaður páfinn þurfti ekki að lifa þetta hneyksli!" what doubt

Nr. 1 | posted by: Harpa | 3.04.2005 | 22:13:56 | [+] |

Já þú meinar. Dettur mér í hug.. ég sendi honum handskrifað bréf og ljóstmynd af hnífaparaskúffunni minni fyrir viku síðan. Ef ég hefði ekki gert það væri hann kannski ennþá á lífi.. silent

Nr. 2 | posted by: anna | 3.04.2005 | 22:16:43 | [+] |

Jæja , hann dó þó allavega með bros á vör við getum huggað okkur við það clown thumb up

Nr. 3 | posted by: Harpa | 3.04.2005 | 22:19:50 | [+] |

Hnífar til hægri. Skeiðar til vinstri, og gafflar í miðjunni.

Ekkert „en“... wink

Nr. 4 | posted by: Þór | 4.04.2005 | 9:21:47 | [+] |

En af hverju datt mömmu þinni í hug að spyrja þig um hnífaparaskúffuna? doubt

Nr. 5 | posted by: meinvill | 4.04.2005 | 10:55:16 | [+] |

ó mæ GOOD!

sammála, Þór, eina leiðin til að hafa þetta laughing thumb up wink

Nr. 6 | posted by: Hildigunnur | 4.04.2005 | 10:59:32 | [+] |

Dásamlegt, minnir mig á athugasemdir einnar sem ég þekki í sambandi við að hengja út þvott. Öllu raðað eftir lit, svo stærð; buxur vinstra megin frá, svo peysur, bolir og svo frv. í hægri átt. Og að lokum toppurinn: hælarnir á sokkunum eiga að snúa í norður!
Kommon maður, þarf maður nú að eiga kompás til að hengja þvottinn út á snúru..?

Nr. 7 | posted by: Ása | 4.04.2005 | 11:39:54 | [+] |

Meinvill: Þetta er eins og með suma xfiles þætti.. maður fær aldrei skýringar.

Ása: Vá.. ég hélt að mamma væri erfið. Samt.. ef maður væri með snúrur nálægt björgunarsveit væri þetta eiginlega brill leið til að kynnast karlmönnum.

Næst þegar allt tæmist úr skúffunni verður hipsumhaps hvar þetta lendir aftur, en ég hef þó alltaf allar skeiðar saman og hnífa saman o.s.frv. Ég hélt í einfeldni minni að það væri aðal málið. Á reyndar eftir að opna skúffuna og ná mér í hnífapör eftir að ég breytti þessu, hver veit.. kannski er þetta eitthvað feng shúí dæmi og nú verður allt gott aftur.

Nr. 8 | posted by: anna | 4.04.2005 | 11:57:05 | [+] |

ég raða alveg eins og þú í mína hnífaparaskúffu.
segi það með þér; WHO CARES?!?!?!?!

Nr. 9 | posted by: Linda | 4.04.2005 | 12:48:49 | [+] |

Gaflar til vinstri, skeiðar í miðju, hnífar til hægri.

Langt síðan ég hef lesið jafn áhugavert blogg.

Nr. 10 | posted by: Sverrir | 4.04.2005 | 14:52:02 | [+] |

Núna er ég orðin alveg viss um að hægri er vinstri what

Nr. 11 | posted by: Harpa | 4.04.2005 | 21:57:10 | [+] |

Nei Harpa.. þú ert bara að tala um hitt hægri..

Nr. 12 | posted by: anna | 4.04.2005 | 22:43:31 | [+] |

Ja hérna... alltaf heyrir maður eitthvað nýtt. Ef það tæmist í hnífaparaskúffunni breytist uppröðunin oftast jafnóðum svo ég get ekki sagt að það sé nokkuð skipulag á kaosinu heldur embarassed

Nr. 13 | posted by: Jóhanna Ýr | 4.04.2005 | 23:50:29 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web