Place your bets
Föstudagur, 01. apríl 2005
Ég er að fara á stefnumót í hádeginu. Þekki mann sem er no show í 75% tilfella vegna þess að hann gleymir stefnumótunum eða vegna þess að hann þurfti að sofa. Hann er vinnualki þessi elska. Ég var einu sinni alveg dauðástfangin af honum en.. jah.. ég er meira í þessu fyrir spennuna núna. Mætir hann? Mætir hann ekki? Hvaða afsökun kemur hann með? Inngróin tánögl? Sprungið dekk? Óhrein ára? Staða himintunglana var óhagstæð?
Cheap thrills.
Stundum tvíbóka ég mig þegar ég er nokkuð viss um að hann mæti ekki, svona til að auka á spennuna. Til dæmis bókaði ég deit við hann í gær, ætlaði að hitta hann í ræktinni en stólaði á að hann hefði fengið kusk í augað eða eitthvað og myndi ekki mæta því ég meikaði líka deit við annan strák sem gaf mér númerið sitt í ræktinni um daginn. Anyway.. þegar ég mætti á svæðið.. hvað haldiði að hafi verið það fyrsta sem ég sá? Nú Mr NoShow! Ég fékk overdós af adrenalíni. Sem betur fer hafði hann steingleymt að hann væri að fara að hitta mig og var á leiðinni út.
Veðbankinn er opinn. Klukkutími og korter til stefnu. Líkurnar á að hann mæti í dag eru 0%
|
|
 |
 |
1. apríl
Föstudagur, 01. apríl 2005
Það eru allir dagar á anna.is 1. apríl.
|
|
 |
 |
Tighten up your panties boy..
Föstudagur, 01. apríl 2005
Júlía kom hér áðan. Lét mig tæma hálfa geymsluna til að ná í ísskáp sem hún hætti svo við að ná í og við þurftum að bera allt inní geymsluna aftur.
Gleði.
Ég fann samt ýmislegt í geymslunni. Ég fann saumadótið mitt, brúðarkjólinn minn og eitthvað fleira dót sem ég man ekki hvað er. Gleymdi því um leið og ég skellti geymslunni í lás. Dragnaðist með saumadótið mitt upp og ákvað að taka brúðarkjólinn minn líka með. Var að máta hann. Það er ljóst að brjóstin á mér hafa vaxið gríðarlega síðan síðast en ég passa í friggin kjólinn ennþá, sem hlýtur að vera töluvert afrek þar sem ég var.. að mig minnir.. 27 ára þegar ég gifti mig og bara búin að eiga eitt barn. Nú á ég 37 börn og ég passa ennþá í kjólinn. Magnað. Það er bara alveg rosalega mikið "fletja út og safna saman uppúr kjólnum" action í gangi í brjóstadeildinni. (ég ákvað að hafa mynd sem sýnir einmitt fram á þetta tæknilega atriði þar sem sumir virtust ekki alveg ná því hvað ég var að meina þegar ég minntist á þetta síðast)
Annars var ég að skoða víraverkið í honum. Þetta er bjútifúl enda saumað eftir þessari bók um kjóla frá 15. og 16. öld. Var búin að gleyma að ég væri svona klár. Þurfti smá egó búst til áður en ég legst í saumaskap. Ég er í óvenju góðu skapi. Fór í bað þegar Júlía fór heim og þegar ég kom uppúr baði var skemmtilegur maður komin á msn. Ég settist niður við tölvuna í handklæðinu og þegar ég stóð upp var ég þurr - og í góðu skapi.
Jæja.. nú ætla ég að tæta saumadótið mitt upp úr kössunum og kætast yfir því að ég er að fara að sauma.. en fyrst.. nýr brjóstahaldari. Það er must. Let me elaborate..
.. þegar um sérsaumaða flík er að ræða þarf fyrst að mæla viðfangsefnið uppúr og niðrúr í þeim nærfötum sem það ætlar að vera í undir flíkinni.
Þetta er afar mikilvægt atriði - sérstaklega þegar um kjól er að ræða, hefur með staðsetningu brjóstanna að gera. Miklu mikilvægara þetta með brjóstahaldarann en nærbuxurnar, þó þær gætu orðið mikilvægar ef þú ætlar að vera í t.d. nærbuxum af afa, eða skírlífsbelti úr járni, þá gæti sniðið þurft að vera aðeins víðara o.s.frv. Ég þarf ekki að stressa mig á þessu atriði því ég er löngu búin að skila öllum nærbuxunum hans afa eftir að hann hótaði mér lögreglu og nálgunarbanni og mitt skírlífsbelti.. er.. ónýtt. Það var brotið upp með kúbeini fyrir nokkrum árum síðan, um það leyti sem ég fór að eignast börn. Mamma grét.
Anyway.. þegar brjóstin á manni þurfa utanaðkomandi hjálp til að ná ekki niður á mið læri þá getur munað töluverðu um hvar þau eru staðsett á bringunni á manni, eftir því hvernig brjóstahaldara þú ert í. Þar sem ég á orðið bara ljóta brjóstahaldara sem sæma sér ekki undir svona fínan kjól þarf ég að leggjast í brjóstahaldaraleit dauðans. Best ég taki morgundaginn í það helvíti.
Mikið ansk er þetta vel saumaður kjóll. Hún Guðrún Erna myndi tárast ef hún sæi þetta.. en svo myndi hún skamma mig fyrir að hafa aldrei sett hann í hreinsun. Það er ekki nokkur leið að hafa þessa konu ánægða..
|
|
 |
 |
Við skulum ekki gleyma að..
Laugardagur, 02. apríl 2005
Ég sauma ekki á aðra. Ég sauma ekki fyrir foreldra mína, börn þeirra, bestu vini mína, maka, frændur, frænkur. Ég sauma ekki á mín eigin börn en ég á það til að gera við fötin þeirra, svona þegar ég er í miklu stuði.
Þetta er ekki nógu vel borgað og svo er ég haldin einum persónuleikagalla sem gerir mig að skelfilegri saumakonu.. ég nenni ekki að sauma neitt sem mér finnst ljótt. Það væri ljóta uppákoman "já nei.. ég get ekki tekið að mér að sauma þennan hrylling, því miður.. þú verður að leita eitthvað annað".
Ein pæling. Hvað værir þú tilbúin til að borga fyrir sérsaumaða dragt/jakkaföt? -Og ekki taka fairytale tölu. Taktu tölu sem þú værir tilbúin að leggja á borðið í dag, cash, fyrir þessa vinnu. Taktu svo þessa tölu, dragðu frá henni virðisaukaskatt og deildu henni með 24. Sem er bara tíminn í klukkutímum sem fer í að sauma jakkann. Þá á eftir að taka með í reikninginn máltöku, mátanir, teikningu á sniði o.s.frv., OG neðri partinn hvort sem það eru buxur eða pils. Já.. og svo má ekki gleyma að efnið í flíkina kostar peninga líka. Ég efast um að þú sleppir undir 20 þúsund kalli í efniskostnað fyrir dragt, enda.. what's the point að láta sérsauma á sig ef þú ætlar að kaupa efni sem er drasl?
Myndir þú nenna þessu fyrir þetta tímakaup?
Ekki ég heldur.
Daginn sem saumaskapur verður metin að verðleikum gæti farið svo að ég tæki að mér verkefni. Þangað til.. er bara ein manneskja í heiminum sem ég er tilbúin til að vinna fyrir á svona lúsarlaunum. Ég sjálf.
Því miður er fatabransinn á Íslandi á frekar lágu plani því það eru ekki nógu margir efnaðir einstaklingar sem hafa class.
Til gamans geti þið tekið eftir því næst þegar þið horfði á spjallþætti með "frægu" fólki í sjónvarpinu. Menn með bumbu eru oft með axlirnar lafandi niður sitthvoru megin, vegna þess að þessir menn hafa ekki class og láta ekki sauma á sig yfirmálsjakkaföt og jakkinn er þremur til fimm númerum of stór á viðkomandi, keyptur til að ná utanum bumbuna. Það er skelfilegt.
Hann Ólafur Ragnar má eiga það.. hann hefur class. Lætur sérsauma á sig úr rándýrum efnum, þó þau mættu oft á tíðum vera aðeins meira fyrir augað. Kannski á hann bara skilið að vera kóngur, hann klæðir sig eins og einn.
|
|
 |
 |
Helgin í stuttu máli
Sunnudagur, 03. apríl 2005
Í gær fór ég í Smáralind þar sem ég fann brjóstahaldara sem ég keypti og svo með krakkana í bíó að sjá Robots. Það hefur aldrei verið hringt í mig jafn oft þegar ég er í bíó. Ég fór þrisvar fram til að svara símanum. Fyrst hringdi fréttamaður sem ég þekki (en hef aldrei búið með) sem þurfti svör við nokkrum spurningum tengdum vinnunni, næst hringdi kona sem var með verkefni fyrir mig og svo hringdi mamma. Ég skellti reyndar á mömmu en hún hringdi strax aftur og þá fór ég fram, svaraði og sagði henni að ég væri í bíó. Ég er að sjálfsögðu með símann á vibe þegar ég er í bíó en dauðskammaðist mín fyrir að vera á þessu rápi. Sem betur fer var ég nálægt inngangnum og engin þurfti að færa sig.
Ég missti nú af einhverju smá en fannst myndin alveg stórgóð. Fór að sjálfsögðu á hana með ensku tali.
Dagurinn í dag var hlaðinn. Líkamsrækt, í heimsókn með krakkana og svo afmæli. Í þessum töluðu orðum er Jóhanna úti að leika og þegar hún kemur heim ætlar hún að koma með shake handa mér. Nú ætla ég upp í rúm að kúra við Dodda, hvort sem honum líkar það betur eða verr..
|
|
 |
 |
Fuck it..
Sunnudagur, 03. apríl 2005
|
|
 |
 |
Það sem skiptir mestu máli í lífinu..
Sunnudagur, 03. apríl 2005
Anna says: jesús
Anna says: mamma hringdi í mig áðan
Anna says: spurði
Anna says: "Anna.. hvernig raðar þú hnífapörunum í hnífaparaskúffuna þína?"
Anna says: ég sagði "lengst til hægri eru skeiðar.."
Anna says: SKEIÐAR - sagði mamma
Anna says: stórhneyksluð
Anna says: já, hélt ég áfram, hnífar í miðjunni
Anna says: HNÍFAR Í MIÐJUNNI ANNA! HVAÐ LÉT ÉG ÞIG VASKA OFT UPP SEM BARN, LÆRÐIR ÞÚ EKKERT?
Harpa says: hnífar í miðjunni segir Harpa stórhneyksluð
Anna says: svo ég fór að hlæja og rauk inní eldhús með símann
Anna says: hvernig á þetta að vera mamma?
Anna says: segðu mér það!
Anna says: ég get lagað þetta núna
Harpa says: lærðir þú ekkert sem barn segi ég nú bara líka !!!
Anna says: lol
Anna says: HVAÐA HELVÍTIS MÁLI SKIPTIR ÞETTA HARPA?
Anna says: WHO CARES?
Harpa says: varstu án gamans með hnífa í miðjunni?
Anna says: ÉG HEF BARA HNÍFANA Í MIÐJUNNI EF MIG LANGAR
Anna says: já
Anna says: hvað?
Harpa says: JESÚS MINN
Anna says: WAHAHAHAHA
Anna says: HVAAAAAAAAAAAAAAAÐ?
Harpa says: í nafni guðs föður og svo framvegis
Harpa says: LOL
Anna says: já eða eins og mamma sagði..
Harpa says: LOL
Anna says: "ég myndi nú blogga um þetta góða mín og athuga viðbrögðin"
Anna says: nema ég er ekki viss um að ég ÞORI ÞAÐ
Harpa says: LOL
Anna says: miðað við viðbrögðin hjá þér
Harpa says: hnífarnir til vinstri!
Anna says: þeir eru lengst til hægri núna
Anna says: skv. fyrirmælum frá móðurstöðinni
Harpa says: þér er ekki viðbjargandi!
Harpa says: lol
Anna says: HVAÐ???
Harpa says: lol
Anna says: Á ÉG AÐ FOKKING ÞÓKNAST ÖLLUM
Harpa says: já
Anna says: Á ÉG AÐ BREYTA ÞESSU Á KLUKKUTÍMA FRESTI?
Harpa says: LOL
Harpa says: lágmark
Anna says: fokk this
|
|
 |
 |
****
Mánudagur, 04. apríl 2005
|
|
 |
 |
Cartoon network
Mánudagur, 04. apríl 2005
Stundum er líf mitt eins og teiknimynd, eða farsi.
Tragikómedía?
Það vantar ekki menn sem vilja allt fyrir mig gera, mér hefur allavega ekki verið boðið út að borða til útlanda áður.
Þetta er engin smá séns að taka, ef þið pælið aðeins í því, fyrir hann. Kannski er ég með viðbjóðslegustu borðsiði norðan alpafjalla; lyfti mér upp og prumpa svakalega eftir þriðja hvern bita, brennisteinslykt dauðans, tygg með opin munninn og frussa mat út um allt þegar ég tala, slefa líka, hræki út úr mér mat á gólfið sem mér finnst vondur og heimta skýringar frá kokknum, ek mér í sætinu þegar ég tygg, stekk upp og hrópa JESSSSSSSS í hvert sinn sem ég er búin að kyngja, hef þá áráttu að reyna að byggja Eiffel turninn úr frönskum kartöflum og næ mér í byggingarefni af diskum í nágrenninu þegar ég er búin með mitt eigið, ropa eftir hvern sopa af kókinu þannig að undirtekur í öllu og bíð svo í ofvæni eftir því að borðfélagi minn og fólk á næstu borðum klappi eða fæ svo svakaleg hlátursköst að kókið frussast út um nefið á mér og yfir allt borðið - og mér finnst það svo fyndið að ég reyni að gera það aftur...
Kannski finnst mér gaman að bretta uppá augnlokin og stinga sogrörum upp í nefið á mér. Kannski finnst mér lifandi borðskreytingar góðar á bragðið. Kannski átti ég í ástarsambandi við þjón, brotna niður og fer að gráta í hvert sinn sem ég sé einn. Kannski kann ég ekki að nota hnífapör og borða allt með höndunum, líka súpu. Kannski finnst mér gaman að borða með tánum.
Maður veit aldrei.
Þessi maður kann greinilega við sig á ystu nöf. Ekki einu sinni ég myndi taka svona séns.
|
|
 |
 |
Í vinnunni
Mánudagur, 04. apríl 2005
Hermann Páll gaf sér tíma til að hringja í mig áðan á milli spjallþátta í útvarpinu, spurði: "er búið að ráðast mikið á ykkur í dag?"
"Njé..", sagði ég, "er nú bara með glóðarauga, brotna nögl, skökk gleraugu og svo er mér smá illt í tánni".
Hann hefur húmor.
Skattur frh.
Mánudagur, 04. apríl 2005

Újé..
|
|
 |
 |
Hjá lækni
Mánudagur, 04. apríl 2005
Þið vitið að stundum er sagt á ensku "he grows on you" um fólk sem þú lærir að meta smátt og smátt. Á þennan hátt óx ég víst á Halldóri vini mínum forðum daga "eins og myglusveppur", svo við notum hans orð. Það er ekki bara ég sem vex á fólki eins og myglusveppur. Um daginn (fyrir ca ári síðan) tók ég eftir því að eitthvað var bogið við mig alla svo í dag fór ég uppá húð og kyn til að grynnka aðeins á kynsjúkdómunum.
Nei ég er að ljúga þessu, en ég var að fara til húðsjúkdómalæknis í Dómus Medica vegna þess að ég er með torkennilegt hreystur á bakinu og það eru farin að vaxa hár úr því.
Djöfull lýg ég!
Ég var samt að fara til húðsjúkdómalæknis vegna þess að ég er orðin eins og connect the dots þraut á maganum, öll í hvítum blettum. Hélt að ég væri komin með the Jackson disease og hann væri slowly spreading. Varð að gera eitthvað í þessu máli þar sem ég er að fara til útlanda og þó mér muni örugglega leiðast smá ætla ég ekki að eyða tímanum í að tengja hvíta bletti með kúlupenna á maganum á mér. Nei.. þá var þetta bara óhugnarlegur húðsveppur sem er ólæknandi og mun draga mig til dauða á sjötíu árum. (Þessi færsla er innblásin af ást minni og aðdáun á.. Rýninum)
Anyway..
Ellen Mooney er þarna á jarðhæðinni þar sem barnalæknarnir eru. Ég á margar góðar minningar frá þessari biðstofu. Minnir að Jóhanna hafi stigið sín fyrstu skref þarna eftir sex vikna bið eftir lækni og gott ef Doddi sagði ekki "mamma" í fyrsta skiptið eftir fjóra daga þarna inni. Æ come on.. þó ég ýki smá...
Ég sat á biðstofunni og stytti mér stundir við að skoða börnin og mömmur þeirra. Þarna var eitt barn sem grét heil ósköp, eitthvað ósátt við lífið og mamman reyndi hvað hún gat til að róa barnið niður. Beint á móti mér sat önnur mamma með algjöran dúllustrák í fanginu sem var að borða mjólkurkex og djús. Ég er ekki að segja að grátandi barnið hafi ekki verið dúlla, bara soldið hávær dúlla. Þegar mamman með vansæla barnið fór með það framhjá okkur á leiðinni út til að tjónka við barnið í einrúmi mættust augu okkar, mín og dúllubarnsins. Ég brosti og hann brosti til baka. Þá setti ég upp "rosalega hissa" svipinn minn og þá gerðist svolítið skrítið. Hann stökk úr fanginu á mömmu sinni og byrjaði að ganga í áttina til mín með útbreiddann faðminn og sólskinsbros á vör.
Svona bros eru smitandi, og ég brosti auðvitað á móti og breiddi út faðminn. Hann er greinilega nýbyrjaður að ganga en komst alla leið og stökk uppí fangið á mér. Þessi atburðarás gerðist frekar hratt og mamma hans fór að hlæja og sagði "heyrðu nú mig" og ég hló líka en barnið sat þarna sem fastast og var hið ánægðasta.
Rétt í þessu kom Ellen Mooney, kallaði mig upp og ég skilaði barninu to his rightful owner, "nú er þetta ekki þitt barn", spurði Ellen. "Nei", sagði ég brosandi. "Eignaðist þú það á biðstofunni", spurði hún og hló.
Hugsið ykkur. Ég hika ekki við að stofna til skyndikynna á biðstofum lækna með ungabörnum sem ég veit ekki einu sinni hvað heita!. Án gríns, þá var þetta ekki alveg það sem eggjastokkarnir á mér þurftu á að halda, úff hvað hann var mikil dúlla.
Hvað sem það er.. hvort það er hvernig ég ranghvolfi í mér augunum, þykist vera hissa, brosi eða breiði út faðminn. Hvort það er hárið, sem er rafmagnað í dag og stendur út í allar áttir rétt eins og ég hafi farið í skrúfusleik við innstungu í morgun, eða fallhlífin sem ég klæðist religiously.. karlmenn á öllum aldri eru tilbúnir að taka stóra sénsa bara til að vera nálægt mér...
Hvað um það, mér fannst vissara að spyrja Ellen og hún fullvissaði mig um að þetta væri ekki Halldór sem væri að vaxa á maganum á mér. Ég er samt ekki alveg viss um að ég treysti þessari sjúkdómsgreiningu og ætti auðvitað að fá second opinion..
|
|
 |
 |
Mission impossible
Þriðjudagur, 05. apríl 2005
Vindurinn ýlfraði og snjódrífu lagði inn um gluggana, það var farið að skyggja þegar Jóhanna kom að mömmu sinni við tölvuna á þriðjudagskvöldi. "Mamma.. ég..", sagði Jóhanna en hikaði. Hún vissi að mamma hennar var upptekin kona. "Hvað?", spurði móðir Jóhönnu og leit þungbrýn upp úr skattskýrslugerðinni, "hvað er að?"
"Ég er að fara í ferðalag mamma", sagði Jóhanna eftir að hún hafði safnað í sig kjark til að tala, "ég er að fara á morgun". Mamma hennar hvessti augun. "Og hvert þykist þú vera að fara góða mín? Hefur þú séð veðrið úti? Þú ferð ekki neitt, verður inni í kvöld. Málið er dautt, ég er upptekin". "En mamma.. þetta er á morgun og kennarinn minn.. ég er að fara á Úlfljótsvatn með skólanum". Mamma Jóhönnu spratt uppúr stólnum "HVAÐ! ÚLFLJÓTSVATN? AF HVERJU FRÉTTI ÉG ALLT SÍÐUST?!?! HVERS Á ÉG AÐ GJALDA? ÉG ER UNG KONA! HVERNIG Á ÉG AÐ HÖNDLA SVONA ÓHUGNAÐ!", svo settist hún aftur.. þungt hugsi og muldraði: "já.. it all makes sense to me now.. ég fékk tölvupóst um þetta ákveðna mál, fyrir mánuði.. tíminn líður.. " svo sat hún og starði í tómið.
"Mamma..", hélt Jóhanna áfram, "mig vantar.. svefnpokann" (special effects 1 wav)
Mamma Jóhönnu lokaði augunum og stundi þungann. Svefnpokann. Það var bara einn staður sem svefnpokinn gat verið á. Einn, kaldur, óhugnarlegur og einmanalegur staður: geymslan. (special effects 2 wav)
Það var skuggalegt á ganginum og þar sem blokkin er freka illa byggð gnauðaði í öllu. Sorplykt lagði frá ruslalúgunni og reykingarlykt lagði frá sumum íbúðunum, móðir Jóhönnu átti það til að stoppa við þessar hurðir, draga djúpt andann og brosa nostalgísku brosi. Það glitti í tár. Rétt eins og fyrir eitthvað kraftaverk rak Doddi, bróðir Jóhönnu, tánna í handriðið sem náði athygli móður hans og þau héldu áfram niður stigana. Hægt og hægt.. skref, fyrir skref.. nálguðust þau.. stað þar sem margir hraustir menn hafa farið, og engin þeirra snúið til baka.. GEYMSLUNA! (special effects 3 wav)
Þegar þau voru hálfnuð niður sótti mamma barnanna vatn í bakpokann og samlokur, þau settust í sitthvora tröppuna og snæddu í hljóði. Þau gerðu sér öll grein fyrir alvöru málsins. Þegar nestið var búið vippaði móðir barnanna bakpokanum á öxlina svo klingdi í ísöxunum og þau héldu áfram.
Áður en tvær mínútur höfðu liðið stóðu þau andspænis ytri geymsludyrunum. Vitandi að börnin hennar voru verðandi munaðarleysingjar tók móðir þeirra utanum þau bæði, kyssti og sagði þeim að vera hugrökk. "Í versta falli getiði búið hjá klikkaða frænda ykkar fyrir vestan". Börnin brotnuðu niður og grétu. "mamma neeiiiiii" kallaði Doddi um leið og móðir hann snéri lyklinum í skránni. "Jú, Doddi minn.. við vitum öll að það fer engin í ferðalag án þess að hafa svefnpoka. Ég verð að sinna móðurlegri skyldu minni. Ég vil hvíta líkkistu, blóm og kransar eru afþakkaðir. -Og.. ég vil að það sé reykt í jarðaförinni."
Hurðin hrökk upp. (special effects 4 wav)
Rétt eins og staðan hafi ekki verið nógu vonlaus fyrir komst móðir barnanna fljótt að því að ljósið var bilað í geymslunni. Þetta er flúor ljós og í stað þess að varpa frá sér birtu sem gerir fallegasta fólk herfilega ljótt blikkaði það ótt og títt og lýsti ekki rassgat. Hún saup hveljur á meðan hún gekk þessi þrjú skref sem hún átti eftir að aðal geymsluhurðinni. Hjarta hennar barðist ótt og títt þegar hún renndi lyklinum í skránna.. og snéri... (special effects 5 wav)
Hún vatt sér fimlega undan poka fullum af tómum egils kristals flöskum sem réðist á hana þegar hún opnaði hurðina. Í draugalegri birtunni reyndi hún að greina handa skil. Hún vissi að það myndi engin koma að bjarga henni. Hún teygði sig í ísöxi og lét hana vaða í fremsta kassann og byrjaði að klífa upp draslið. Það mátti heyra saumnál detta þegar saumnálarnar, sem hún hafði leitað að mánuðum saman, duttu í gólfið. Nú voru þær glataðar að eilífu. Sjö hundruð krónur sem hún hefði betur eytt í sígarettur og kók. Hún ákvað að leggjast ekki í þunglyndi yfir því strax og hélt ótrauð áfram upp kassa og rusl.
Þegar hún var komin efst í hauginn fann hún eitthvað slímugt og hart. Ó NEIIIII ! Myndbrot úr lífi hennar leiftruðu fyrir augum hennar, hún mundi eftir þríhjólinu sem hún fékk sem barn, hvað það var fallegt.. glænýtt... glansandi. Hún mundi eftir fermingunni sinni.. klósettmottunni.. menntaskólagöngunni, sem var reyndar bara eitt andartak, sigrunum.. ósigrunum.. ástarsorgunum... og nú var þetta allt búið. (special effects 6 wav)
Nei.. þá var þetta bara gamalt mosavaxið affallsrör.
--
Fyrir utan geymsluna sátu Doddi og Jóhanna með tárin í augunum. Þau heyrðu hvernig kassarnir gáfu sig einn af öðrum og heyrðu formælingar móður sinnar. Jóhanna tók þétt utanum Dodda. "Það verður allt í lagi", hvíslaði hún að bróður sínum sem hélt dauðahaldi í systur sína. "ARRRRGG HELVÍTIS DRASL", heyrðu þau og svo glumdu við hræðilegir skruðningar sem virtust engan enda ætla að taka. Á eftir kom þögn. Óhugnarleg, skerandi þöng. Eftir það sem virtist heil eilífð heyrðu þau þrusk og þar á eftir heyrðu þau "fokk" og svo "shit" og svo.. skreið rykug og skítug vera eftir gólfinu, stóð upp og hampaði svefnpoka eins og meistari hampar bikar og hrópaði: "ÉG FANN HANN!"
(special effects 7 wav)
|
|
 |
 |
Póstburðamaður dauðans
Miðvikudagur, 06. apríl 2005
Já það er magnað hvað eitt off season "gleðileg jól" getur áorkað.
Ég og fyrrverandi póstburðamaður dauðans, eða "pósturinn", eins og ég kalla hann núna, því ég veit ekki hvað hann heitir, við erum orðin bestu vinir. Í dag var ég eitthvað að hengslast um þegar hann kom og á leiðinni út um leið og hann. Ég bauð honum góðan daginn, hann sagði "daginn" og svo bauð hann mér kurteisislega að fara á undan honum út um hurðina. "Er það ekki dömurnar fyrst?" spurði hann og brosti. "Jú er það ekki þannig í ævintýrunum", spurði ég til baka og svo hlóum við.
Sigrún var ekki viðstödd þegar ég náði sambandi við hann fyrir páska og kom að máli við mig þegar hann var farinn, spurði mig: "hvað gerðist eiginlega með þennan mann? Þú varst ekki hérna þegar hann kom í gær og hann talaði bara heilmikið við mig og var hin hressasti, ég var lengi að ná mér".
Að hugsa sér hvað viðhorf fólks og framkoma breytist við það eitt að halda að maður sé klikk.
Mér finnst fara fólki miklu betur að brosa, svona almennt.
|
|
 |
 |
Miklu lokið.. slatti eftir
Miðvikudagur, 06. apríl 2005
Eftir vinnu fór Doddi til vinkonu sinnar og ég fór í ræktina að hitta einkaþjálfara sem bjó til frekar staðlað prógram fyrir mig og kenndi mér almennilega á tækin. Honum fannst súperman bolurinn minn rosalega flottur og bað mig að tala við sig aftur eftir mánuð til að fá framhaldsprógramm.
Hann reiknar með því að ég mæti fimm sinnum í viku. Hmmm.. ég er viss um að ég lít ekkert út fyrir að vera svona dugleg..
Á eftir dreif ég mig að sækja Dodda og haldiði að hún María hafi ekki gefið mér skáp undir sjónvarpið mitt! Þvílík snilld! Kærar þakkir María!!!
Nú get ég loksins legið í sófanum þegar ég horfi á sjónvarpið, var að klára að setja þetta upp. Skattskýrslan er búin og nú þarf ég að leggjast yfir gögn og senda ákveðnum fjölmiðlum smá upplýsingar um um ákveðið mál sem þeir hafa verið að fjalla um á ansi einsleitan hátt s.l. daga. Ekki hef ég tíma til að sinna því í vinnunni þessa dagana.. síminn stoppar ekki.
Þetta er náttúrlega.. tjah.. hálfgert xn--kjafti-tua4f
|
|
 |
 |
Hann á afmæl'í dag
Fimmtudagur, 07. apríl 2005
Mér er boðið í afmæli hjá Dórinu í dag klukkan tvö en ég kemst ekki. Það þykir mér mjög leiðinlegt. Ég hefði viljað gefa honum afmælisgjöfina sína. Á hverju ári fær hann að velja hvort ég gef honum koss eða kjaftshögg. Hann hefur eitthvað verið að kvarta yfir því að þetta sé náttúrlega ekkert val, margt fleira sem ég get gefið honum sem kostar engan pening en myndi gera hann mjög.. afslappaðan.
Ég veit því miður ekki hvað maðurinn er að tala um.
Hann velur alltaf kjaftshöggið enda væri hitt kannski borderline ólöglegt.. þar sem hann er nítján, að eigin sögn. Mér finnst þetta allt hið einkennilegasta mál.. en er treg og það er lífsins ómögulegt fyrir mig að reikna út aldur út frá fæðingarári svo ég verð að taka hann trúanlegan. Finnst samt mega ósanngjarnt að ég verði 34 á árinu og hann 19 þegar við erum fædd á sama ári, en það sagði víst engin að lífið væri sanngjarnt.
Til hamingju með afmælið Halldór! Megir þú finna lífsgleði, hamingju og ást! -en þú munt leita ansi lengi áður en þú finnur aðra illsku eins og mig.
Mér þykir alveg ofsalega mikið vænt um þig. Fnugge með fnörrið snuggums!
|
|
 |
 |
Memory lane
Föstudagur, 08. apríl 2005
Ég þreif alla íbúðina í gær, meira að segja ísskápinn. Þegar ég var að skrúbba vaskinn inná baði fór ég einhverra hluta að hugsa um..
Þegar ég var fimmtán ára fór ég í partí á gamlárskvöld. Það var svo sætur strákur í þessu partíi og mig langaði rosalega til að kynnast honum. Eftir að ég hafði talið í mig kjark fór ég til hans og... man ekki hvað ég sagði.. kannski "hæ". Hann horfði á mig og spurði: "heim til mín eða þín?" Hann var ekki að djóka, því þegar ég vildi hvorugt velja gekk hann einfaldlega í burtu. Nennti ekki einu sinni að eyða orðum í mig.
Ég veit ekki af hverju ég man eftir þessu. Líklega vegna þess að þetta var í fyrsta skipti sem strákur sendi mér skýr skilaboð um að hann vildi ekkert með mig hafa annað en að sofa hjá mér.
Fyndið hvað maður man.
Nákvæmlega ári síðar var ég stödd í bandaríkjunum, í áramótapartíi hjá kaþólskum presti sem var með tvo franska skiptinema. Ég hitti þessa stráka þegar ég fór á skíði eina helgina fyrir jólin og annar þeirra bauð mér að koma. Hann var svakalega sætur. Eftir að ég mætti á svæðið kom fljótt í ljós að hann var jafn leiðinlegur og hann var sætur. Þar sem hann var georgeous getiði reiknað út hversu painful var að tala við hann, held ég hafi ekki hitt leiðinlegri mann. Hefði frekar fróað mér á rifjárni. Þeir voru búnir að bjóða mökk af skiptinemum í þetta partí, man ekki hvað við vorum mörg. Tíu eða jafnvel fleiri. Þetta var í öðrum bæ og fósturforeldrum mínum fannst allt í lagi að ég fengi að gista nóttina vegna þess að þetta var prestsetur. Meira eins og friggin' hótel. Við fengum öll sérherbergi með litlum sjampó og hárnæringabrúsum eins og eru á hótelum.
Þessa nótt kom einn strákurinn inn í herbergi til mín þegar ég var farin upp í rúm. Hann var þýskur. Hann tjáði mér ást sína á bjagaðri ensku og þegar ég bað hann að fara fór hann að gráta. Ég lá í rúminu og hlustaði á hann gráta að því er virtist endalaust, að lokum sofnaði ég. Hann var sofandi á gólfinu við hliðiná rúminu þegar ég vaknaði eld snemma um morguninn og þurfti að pissa.
Ég breiddi teppi yfir hann og fór aftur að sofa.
Í febrúar þetta ár kynntist ég Wiebo, hollenskum skiptinema. Hann var rosalega fínn strákur. Hann bjó líka í öðrum bæ og við skrifuðumst á. Á gamla mátann. Alvöru handskrifuð bréf og mökkur af þeim því við vorum alveg svakalega hrifin af hvoru öðru. Stundum sendi hann mér tvö á dag. Það var ekkert smá gaman að bíða eftir póstinum í þá daga. Ég sat við eldhúsgluggan og beið. Ég vildi óska þess að ég ætti þau ennþá en afbrýðisamur akureyringur kom þeim fyrir kattarnef. Kræst.. afbrýðisamir karlmenn, og út í hvað! Ég spurði hann again and again: Hvað? Heldurðu að ég skreppi í matarhléinu mínu til hollands til að halda framhjá þér eða?
Sumir karlmenn eru...
Þetta var nú eiginlega soldið fyndið vegna þess að Wiebo kom frá mjög efnaðri fjölskyldu, áttu svaka fyrirtækjakeðju í matvælaiðnaði í Hollandi, við erum að tala snekkjur og læti og t.d. hafði Wiebo eytt sínum unglingsárum so far í að stunda surfing, víða um heim. Sokkarnir hans voru meira að segja merkjavara. Ég stríddi honum ekkert smá á þessu og gaf honum einu sinni nærbuxur úr K-mart. Sem hann notaði reyndar þetta krútt. Þegar hann fór að senda bréf heim og segja frá íslensku stelpunni sem hann ætlaði að giftast (við giftum okkur reyndar í partíi, alvöru prestur meira að segja sem gaf okkur saman) þá leist pabba og mömmu hans ekkert á málið og gerðu sér ferð til US til að skoða mig. Vá.. ég var búin að gleyma þessu. Kellingaruglan sem Wiebo var hjá hélt þeim veislu og alles. Hún var eins og hæna í laginu, kellingin. Með svo feitann rass að ef hún stóð nálægt stól þurfti hún varla að beygja hnén til að setjast. Hún var mjög lítil líka.
Anyway..
Til að gera langa sögu stutta leist þeim ekkert á mig og borguðu mér mökk af peningum fyrir að hætta með honum, sem ég gerði. Þessir peningar eru í Swiss og vegna þess að ég vil ekki að neinn viti að ég er skrilljónamæringur hef ég haldið þessu leyndu.
Ég er að grínast. Þeim leist mjög vel á mig en fannst við frekar ung til að vera að ræða giftingar. (16 og 18) Ég hef aldrei verið tekin í aðra eins þriðju gráðu eins og þegar foreldrar hans króuðu mig af og létu spurningunum rigna yfir mig. Greinilegt að það átti ekki hver sem er að klófesta prinsinn. Shit. Ég hélt reyndar alltaf að við værum bara að grínast með að gifta okkur. Málið með Wiebo var að ég vissi alltaf að við myndum ekki enda saman. Held að hann hafi vitað það líka innst inni þó við grínuðumst með hvort við ættum að búa á Íslandi eða Hollandi, en svo bara hætti ég með honum. Það var ekki vegna þess að mér fannst hann ekki nógu góður fyrir mig eða vegna þess að hann var ekki nógu þetta eða hitt. Ég hafði nákvæmlega ekkert útá hann að setja annað en að stofublóm fóru í taugarnar á honum og við leystum það reyndar með því að hann ætlaði að gefa mér gróðurhús og garð. Ég hætti með honum vegna þess að þó ég væri rosalega hrifin af honum.. trúði ég ekki að við værum "it", og við vorum það ekki.
Æ.. ég er bara að líta yfir farinn veg. Tékka á hvort ég hafi gert afdrifarík mistök einhverstaðar og svona. Ég sé eiginlega mest eftir því að hafa ekki sagt "heim til mín" við skíthælinn sem ég hitti þarna í áramótapartíinu, láta hann borga leigubílinn, fara út úr bílnum á undan.. standa við opna hurðina og skella henni svo á nefið á honum.
Svona er að vera vitur eftirá.
|
|
 |
 |
U-turn
Laugardagur, 09. apríl 2005
Ég er búin að vera skilin í tæpt ár núna. Síðan fyrrverandi eiginmaður minn flutti út hef ég alltaf sofið ein í rúminu mínu, ekki vegna þess að mér finnst svo frábært að sofa ein, meira.. af því sumum öðrum finnst alveg frábært að sofa einir. Þegar ég var yngri fannst mér rosalega gott að sofa ein, svo lærði ég að meta að sofa með einhvern við hliðiná mér og satt að segja hef ég saknað þess. Þegar ég fór út í gær var það þó ekki með það að markmiði að ná mér í einhvern til að sofa með, enda þarf ég ekki að leita langt yfir skammt... stalkerinn minn hringdi í mig og bauð fram þjónustu sína áður en ég fór.
Skrapp á Ölstofuna og hitti m.a. Matta úr Blues Express. Ég var næstum því ekki búin að þekkja hann og hann var næstum því ekki búin að þekkja mig.. en þetta small hjá okkur. Við rifjuðum upp gamla daga frá því þegar Blues Express var að spila á Blúsbarnum og vinur Matta trúði varla að þeir hefðu spilað í innflutningspartíi hjá mér, en.. ójá... það gerðist. Matti sagði mér að bandið væri að koma saman aftur. Þvílík snilld.
Ég hitti fleira fólk, m.a. Örn, sem sagði mér að hann væri með blogg og þegar ég sagði honum að ég væri líka með blogg og hvar það væri sagði hann: "ert það þú?"
Þegar líða tók á kvöldið fann ég að augu mín renndu oftar og oftar á yfir á næsta borð þar sem falleg, dökkhærð kona sat. Þessi kona er reyndar nokkuð þekkt í fréttabransanum og oftar en ekki mættu augu mín hennar.
Til að gera langa sögu stutta þá er hún sofandi upp í rúmi as we speak. Ég veit að engin sem les mig tekur þessu trúanlega.. en þarna er hún, í snoopy náttfötunum sem María gaf mér.. steinsofandi.
Ef ég mætti velja myndi ég sofa miklu sjaldnar ein en ég fæ samt ennþá hroll þegar ég hugsa um sambúð. Samt.. það var miklu skemmtilegra að fara heim með stelpu en strák, við þrifum framanúr okkur saman áður og alles. Hvað get ég sagt? I didn't plan this..
Ætti ég að fara út í bakarí? Það er nákvæmlega ekkert til að borða hérna og maður vill make a good impression..
|
|
 |
 |
Gær/dag
Laugardagur, 09. apríl 2005
Halldór er flensaður, fór í gærkvöldi með samloku úr Aktu Taktu til hans. Ætlaði reyndar að fá mér líka samloku en missti matarlystina á meðan ég beið í bílabiðröðinni. Ég hef komist að því að verði ég vitni að ofbeldi missi ég lyst og ég varð vitni að heiftúðugu rifrildi stráks og stelpu þar sem þau enduðu á að ganga í skrokk á hvoru öðru þarna á bílaplaninu.
Það hræðir mig að sjá svona lagað. Veit svosem ekki af hverju, það er ekki eins og þau hafi verið að ráðast á mig. Mér finnst bara alveg ferlega óþægilegt að sjá þegar fólk fer niður á þetta plan og endaði á að horfa á Halldór borða þriggja hæða samloku, einn. Ottó kom í heimsókn á meðan ég var þarna og sýndi okkur brill myndir sem hann er búin að kaupa sér. M.a. Orgasmo unrated. Hann ætlar að lána mér hana. Ottó útskýrði líka fyrir mér af hverju DVD spilarinn minn spilar allt í svart/hvítu. Það er ekki spilarinn, það er sjónvarpið. Það er hægt að stilla tækið þannig að það sendi út PAL mynd en þá kemur smá prop.. spilarinn er japanskur og fjarstýringin líka. Vill til að Dórið og Ottó þekkja menn sem eru fluent í japönsku svo ég á að taka mynd af fjarstýringunni og senda þeim til að fá fjarstýringuna þýdda.
Hvernig ég eignaðist japanskan DVD spilara er löng saga og í raun er ég bara með hann í láni.
Ég fór útí bakarí áðan. Þegar ég kom aftur með bakkelsi og blöðin sagði konan í snoopy náttfötunum: "það er rosalega gott að sofa hjá þér". Ég spurði "can I quote you on that?" Hún sagði já. Svo bárum við saman broddana á fótleggjunum og hún tók niður nafnið á andlitshreinsikreminu mínu, fengum okkur að borða og ræddum strákamál og svona, því auðvitað er þetta bara vinkona mín sem fékk að gista. Sagan er bara ekki eins skemmtileg þannig.
Nú þarf ég hinsvegar að græja þetta lostabæli því hingað eru að koma konur í ónefndri sóknarnefnd sem vilja ræða viðskipti. Ójá.. þegar maður lifir í jafn mikilli synd og ég þarf maður að gera ráðstafanir, fyrst fólk er almennt á þeirri skoðun að það sé líf eftir dauðann. Ég vinn ekki pro bono nema mögulega fyrir Guð og samt bara vegna þess að ég ætlast til þess að ég komist til himnaríkis í staðinn.
Það er náttúrlega ekki einu sinni pro bono. Shit. Ég fer beina leið til helvítis.
Oh well.. mér verður þá allavega ekki kalt.
|
|
 |
 |
Samningar og sérstaða
Laugardagur, 09. apríl 2005
Það náðist lending í himnaríkismálinu sem allir aðilar eru sáttir við. Ég fæ greitt fyrir þetta út í hönd og fer til helvítis.
Fokk ég er að fatta að ég hló ekki evil henchmen hlátrinum fyrir þær, klikkaði illilega á því. Ég er búin að vera að æfa mig og þróa svona MÚHOHOHOHhohohoho hlátur sem ég nota við ýmis tækifæri, eins og t.d. þegar ég segi við Jóhönnu: "nú þarftu að ganga frá eftir matinn - MÚHOHOHOHhohohoho. Eða við Dodda: "tími til að fara á fætur Doddi - MÚHOHOHOHhohohoho. Mér hefur farið gífulega fram.
DOH! Gleymdi líka að nota hláturinn þegar ég sparkaði í fótinn á Dórinu í gær. Annars gerðist svolítið skemmtilegt hjá Dórinu. Allt í einu spratt hann uppúr stólnum.. ég mun reyna að lýsa þessu en efast um að mér takist það vel. Hann hallaði undir flatt, dró annað augað í pung en glennti hitt upp og beyglaði munninn svakalega þannig að efrivörin hvarf næstum svo það skein í tennurnar, gretti sig og tók sér stöðu.. ekki ólíkt og þegar börn leika teketil nema hann var með fingurna alla kræklótta eins og á monsteri og reyndi að feika kryppu á meðan á öllu þessu stóð. Svo spurði hann mig í sífellu: "sérðu þetta?, sérðu?" og ég velti fyrir mér hvað hann væri eiginlega að sýna mér.. en var engu nær. Sat bara og starði í forundran. Þegar hann settist aftur sagði hann, svona eins og fólk segir frá því að það hafi verið að búa um rúmið: "ég var að sýna þér sérstöðu mína".
Ég er ennþá að hlæja að þessu.
|
|
 |
 |
Frjálsi markaðurinn
Sunnudagur, 10. apríl 2005
Hitti Halldór aftur í kvöld nema núna vorum við að skiptast á verðmætum. Ég lét Dórið fá lögg af Bacardi og fékk í staðinn Lambi® klósettpappír með bleikum hjörtum, tvær rúllur. Ég átti sko bara Andre aloe vera, sem er ekki myndskreyttur en með mjög skemmtilegri.. eins og hamraðri áferð, líka original Bónus® sem maður getur notað til að slípa upp parket og Nóatún medium. Þarna bætist heldur betur í safnið. Af hverju er ekki seldur klósettpappír sem lyktar eins og vanilla? Maður spyr sig..
|
|
 |
 |
Það sem á mig er lagt
Sunnudagur, 10. apríl 2005
Halldór var að hringja í mig í annað sinn í dag. Í fyrra skiptið lá ég uppí rúmi og sagði honum m.a. frá því að ég fyndi Skúla skröltorm hvergi. Í seinna skiptið, klukkutíma síðar, var ég að sofna uppí rúmi og Halldór spurði: "af hverju ertu svona skrýtin í röddinni?" "Vegna þess að ég ligg upp í rúmi og var að sofna", svaraði ég. "Miklu meiri vinna án Skúla?", spurði Halldór. "Já, ég er alveg búin", svaraði ég.
|
|
 |
 |
Vinir Dóra
Mánudagur, 11. apríl 2005
Skondið, Halldóri var ekki ljóst að ég ætti vinkonur. Hann hefur heyrt mig tala um vinkonur mínar en hann hafði aldrei séð neina þeirra fyrr en hann hitti mig og Jude á Eddie Izzard um daginn og ég var að tala við Unu vinkonu. Reyndar vippaði hann sér að henni og spurði hvað ég væri að borga henni fyrir að tala við mig en það er önnur saga. Ég veit alveg að Halldór á vini, en ég gerði mér hinsvegar ekki grein fyrir því að hann ætti svona frambærilega vini.
Á föstudagskvöldið var ég í heimsókn hjá Dórinu þegar maður sem ber nafnið Jón kom í heimsókn. Halldór er flensaður. Eitt skiptið á meðan hann beið eftir hnerra spurði ég Jón hvort hann væri fiskur og átti þá við stjörnumerkið. "Nei, en læknamistökin líta út eins og sporður", sagði hann og lét eins og hann ætlaði að sýna mér bakið á sér og brosti. Ég kann að meta menn með húmor. Þegar Jón var farin skammaði Halldór mig fyrir að þykjast vera fórnarlamb endalaust. Sagði að ég væri miklu meira together en ég gæfi mér kredit fyrir og ég ætti að hætta að vorkenna mér, finna það sem mig langar í og taka það, svo gaf hann mér símanúmer.
Í gær var ég á leiðinni út í bíó þegar síminn minn hringdi og birti númerið sem Halldór hafði gefið mér: "Sæl Anna, Jón heiti ég. Mér skilst að þú hafir þann leiða ávana að fara ein í bíó á sunnudagskvöldum og þar sem úrvalið af hryllingsmyndum er einstaklega gott um þessar mundir datt mér í hug hvort þig langaði að koma með mér á eina slíka, því þegar ég sá þig á föstudaginn helltis yfir mig yfirnáttúruleg þörf fyrir að hræða úr þér líftóruna svo þú gætir ekki án mín verið - lengi." Ég var löngu farin að hlæja svo hann hélt áfram: "eða gamanmynd þó útkoman yrði líklega aðeins önnur, ég sleppi því bara að raka mig.. það er ögn skerí".
Ég var hinsvegar að fara með Hjördísi í bíó í gær. Við fórum að sjá Spanglish og á eftir kíktum við á kaffihús og spjölluðum fram á lokun. Spanglish er ágæt, ég hafði mest gaman af ömmunni.
|
|
 |
 |
Spam
Mánudagur, 11. apríl 2005
Mér voru að berast fréttir um að það sé búið að dæma spammara í us-of-a í níu ára fangelsi fyrir að senda spam.
Mér hlýnaði um dýpstu hjartarætur og fannst þetta verulega gott á hann en þegar ég las lengra rak ég augun í að maðurinn var að þéna 46 milljónir (ISK) á mánuði. Ég endurtek.. á mánuði.
Hann er laus gegn tryggingu (sem hann hefur líklega tekið upp úr rassvasanum) því menn eru ekki alveg vissir um hvort dómurinn haldi vatni, ný lög og svona. Ef hann fer í steininn finnst mér að hann eigi ekki að hafa aðgang að nettengdri tölvu og mér finnst að fangaverðirnir eigi að koma í klefann hans á fimm mínútna fresti og garga: "cheap viagra! penis enlargement! breast implants! nude girls! see christy bend over and **** ** ** *** ***!"
Mér finnst það bara sanngjarnt.
Málataka fyrir kjólasaum
Mánudagur, 11. apríl 2005
95,5 - 69 - 96
Ég hef oft verið í miklu verri málum en þetta!
|
|
 |
 |
Ræktin og saumakonuhúmor
Þriðjudagur, 12. apríl 2005
Þegar ég las leiðara moggans í gær varð ég svo reið að ég gnýsti tönnum, settist við tölvuna og skrifaði og skrifaði og skrifaði og skrifaði..
Varð að hætta þegar Júlía kom að taka af mér mál. Hún var að gera grín að mér á meðan. Þegar hún tók mittismálið sagði hún: "Vá! Anna! 36!!" Veit ekki hvað maður þarf að vera illa haldin af anorexíu til að ná því takmarki en mér fannst þetta mjög fyndið. Þegar hún tók hæðina sagði hún: "Vá! Anna! 1.15!!!" -Saumakonuhúmor. Glataðasti húmor í heimi en mér fannst þetta óborganlega fyndið. Rifjaðist líka upp fyrir mér á meðan hún var að sauma tölu á mittisteygjuna að saumakonur eru geðbilaðar. Ég meinaða. Maður situr einn og er að vinna í höndunum og ruglið sem vellur upp úr manni.. sjís.. Þótti vænt um að systir mín er jafn geðveik og ég þegar hún er með nál á milli fingranna. Það er ákveðin huggun.
Fór þessu næst í líkamsrækt, á aumingjavélina í 50 mínútur, eða á meðan Survævör rúllaði. Hélt að rassinn á mér myndi detta af á eftir vegna þess að ég var ekkert að drolla við þetta og Hjördís hló og hló þegar ég gekk um í Laugum eins og eftir verulega sérhæft kynlíf. Fórum að teygja og í gufu á eftir. Þegar ég kom heim var ég svo þreytt að ég skreið upp í rúm og fór að sofa.
Sem betur fer teygðum við svakalega vel því ég fann ekki fyrir þessu í morgun og ætla aftur í kvöld.. þegar ég er búin að laga það sem ég skrifaði og birta það.
Þetta er búin að vera langur dagur.
|
|
 |
 |
Lén með íslenskum stöfum
Þriðjudagur, 12. apríl 2005
Undanfarna daga hafa fjölmiðlar fjallað um að nú getur fólk skráð lén með séríslenskum stöfum. Þeir sem um málið hafa fjallað gera það bæði af litlum áhuga og vankunnáttu. Staðreyndir eru hundsaðar og sú krafa að forræðishyggja einkafyrirtækis eigi að ríkja fær byr undir báða vængi. Þetta er sorglegt dæmi um fréttamenn sem vinna ekki vinnuna sína, hafa ekki þekkingu á tækninni sem liggur á bak við né fordæmum og vinnureglum erlendis heldur lepja upp skoðanir einstaklinga og fyrirtækja án þess að kafa dýpra í málið, núna síðast í leiðara Morgunblaðsins í gær. Þeim til málsbóta birta þeir þó fréttatilkynningu ISNIC (Internet á Íslandi hf) í blaði sínu í dag en sjá einhverra hluta vegna ekki ástæðu til að minnast á hana á mbl.is.
Er í lagi að brjóta lög þegar það er hægt?
Hermann Páll hjá Netvistun skráði nýlega rúv.is, morgunblaðið.is og fleiri "þekkt" nöfn til þess eins að vekja athygli á því að hann gæti gert það, hann krefst þess að nafn eins og rúv.is sé tekið frá og eingöngu úthlutað til Ríkisútvarpsins vegna þess að nafnið ruv.is er nú þegar í þeirra eigu. Viti borið fólk þarf ekki að velta málinu lengi fyrir sér til að sjá gallann á þessari kröfu Hermanns. Vélar sem eru færar um að taka ákvörðun um hver ber réttmætt tilkall til nafns umfram annan eru eingöngu til í vísindaskáldsögum og mögulega í örbylgjuofninum hjá Bill Gates. Það sem fólk virðist ekki gera sér grein fyrir er að þetta er í raun krafa um að ISNIC fari aftur í forneskju og taki upp pappírsumsóknir með tilheyrandi vafstri sem fylgir því að fjalla um hverja umsókn fyrir sig og úrskurða hver á rétt á hvaða léni. Það eru auðvitað nokkur 3ja heims ríki eftir sem hafa ennþá þannig fyrirkomulag, segi það ekki.
Þegar Hermann skráði t.d. lénið rúv.is, kom upp eftirfarandi athugasemd, skrifuð stórum, áberandi stöfum: "Við bendum þér vinsamlega á að rétthafi lénsins ruv.is er Ríkisútvarpið og að notkun lénsins rúv.is af öðrum aðila getur brotið í bága við 25. gr. samkeppnislaga". ISNIC gerir umsækjanda grein fyrir því að hann gæti verið að brjóta lög og gerir þá kröfu til Hermanns að hann taki ábyrgð á gjörðum sínum ef hann skráir þetta lén, eitthvað sem sönnum íslendingum er oft meinilla við að þurfa að gera. Hermann vill að einhver annar sé búin að hugsa þetta mál fyrir hann og hann geti ekki gerst brotlegur við þessi lög einn og óstuddur. Virðir þessi maður umferðarlög? Geta ekki all flestir bílar keyrt hraðar en á 90? Er þá í lagi að gera það? Meina.. fyrst það er hægt...
Kerfið sem engin vildi
Í árdaga Internetsins, voru reglur um úthlutun léna hjá Internet á Íslandi hf mjög strangar. Sýna þurfti fram á "rétt" til þess að skrá hvert lén. Einstaklingar höfðu t.d. ekki rétt á að skrá lén, aðeins fyrirtæki eða félagasamtök. Forræðishyggjan var algjör: Lén þurfti að vera heiti fyrirtækis, stílfæring á heiti, þekkt vara eða þjónusta fyrirtækis. Alls fengust þrjú lén út á nafn fyrirtækisins skv. þessum reglum, öll önnur lén (skráð á kennitölu viðkomandi fyrirtækis) þurftu að vera skráð sem vörumerki í eigu viðkomandi. Umsóknarferlið tók marga daga og skila þurfti inn pappírsumsóknum á faxi. Þetta þótti mörgum einkennilegt, sérstaklega fyrirtækjum sem vildu tryggja sér mörg lén, m.a. öll heiti á þjónustunni sem þau voru að veita eða vörum sem þau voru að selja. Einnig var ISNIC (þá intís) gagnrýnt fyrir að vera "risaeðla" vegna þess að lénaskráning erlendis var orðin rafræn og hver sem er gat sótt um hvað sem er.
Ekki leið á löngu þar til háværar raddir þess eðlis heyrðust að hvorki væri eðlilegt að einstaklingar gætu ekki skráð lén, né að fyrirtæki þyrfti fyrst að skrá vörumerki til að fá lén skráð. Enda var fólk ekki lengi að finna leið í kringum það, Hagstofan skráði á þessum tíma svokölluð "áhugamannafélög" og fyrirtækin stofnuðu áhugamannafélög í gríð og erg í því skyni að nota nafn áhugamannafélagsins til að skrá lén. Þetta var farsi. Einstaklingar gerðu þetta líka: "Internet áhugamannafélagið liksnyrtir.is" gat fengið lénið liksnyrtir.is. Kannski fór Jón Jónsson, freelance líksnyrtir, þessa leið vegna þess að hann var að reka fyrirtæki á eigin kennitölu, þetta var fyrir skattaívilnanir stjórnvalda og það hreinlega borgaði sig ekki fyrir hann að borga sextíu þúsund fyrir að stofna ehf, miklu ódýrara að borga fimm þúsund og fá áhugamannafélag - og lén.
Það var ljóst að þetta kerfi virkaði ekki. Einnig eru oft margir aðilar sem hafa sama rétt á að fá sama lén. Dæmi eru um að fyrirtæki beri sama nafn þó eitt sé hf, annað ehf og þriðja sf. Hvert þessara fyrirtækja á rétt á léninu vikingur.is? Víkingur hf eða Víkingur ehf. Hvort á Gunna Þórðar eða Gunna Sigurðar rétt á léninu gunna.is? Sá sem skráir lénið á undan á meiri rétt á léninu, það er bara svo einfalt. Hinn aðilinn þarf að finna sér annað lén t.d. vikingurehf.is eða gunnasig.is.
alþingi.com líka?
Þegar ISNIC stóð frammi fyrir því að samræmdir staðlar höfðu verið búnir til um íslenska sérstafi í lénum (áéíóúýþæðö) var ákveðið að úthluta þessum lénum hér á landi. Töluvert fyrr var byrjað að úthluta samskonar lénum og þessum hjá .com, .net og .org, enda sáu þeir ekki ástæðu til að bíða eftir stöðlunum, af einhverjum ástæðum.
Já.. þið vitið það? Það er líka hægt að skrá lén með íslenskum stöfum undir .com, .net og .org. Á ekki að hlaupa til og trygga sér þau líka?
Hagsmunaárekstrar
Ef ég héti Guðríður og ætti lénið gudridur.is. Þá gæti einhver allt önnur Guðríður en ég skráð íslenska lénið guðríður.is. Guðríður (gudridur.is) reiðist svakalega og bölvar ISNIC í sand og ösku fyrir að brjóta svona gróflega á henni, enda þykir henni augljóst að hún sé hin sanni rétthafi af léninu guðríður.is þar sem hún átti gudridur.is fyrir.
Á meðan.. kemst guðríður.is að því að örfáir komast inn á heimasíðuna hennar, tölvupósturinn virkar ekki og kemur ekki til með að virka í nokkur ár, í sumum vöfrum fær hún meldinguna um að lénið hennar, xn--gurur-1satc.is, could not be found og hún veit ekki einu sinni hvað það þýðir! Sannleikurinn er sá að lénið guðríður.is lítur svona út: xn--gurur-1satc.is. Já.. þetta er ekki fallegt. Íslendingar gleyma oft að íslenska er ekki alþjóðatungumál og let's face it.. íslenska verður það aldrei. Úps!
Eitt ú getur breytt öllu
Sem er reyndar besta dæmið: Úps! ehf. Það er til dómur frá Hæstarétti sem sýnir fram á að það er ekki í hlutverki einkafyrirtækis sem sér um að úthluta lénum að úrskurða hver á rétt á nafni og hver á ekki rétt á nafni, það er í verkahring dómstóla í þeim tilfellum sem deilur rísa um hver á tilkall til hvaða nafns.
Léninu ups.is var úthlutað á sínum tíma til auglýsingastofunnar Úps!, og þótti það ekkert óeðlilegt. Nokkru síðar kemur United Parcel Service of America (UPS) sem gerir kröfu á lénið. Héraðsdómur dæmdi auglýsingastofunni í vil en Hæstiréttur hnekkti þeim dómi og dæmdi United Parcel Service of America í vil, á þeim grundvelli að ups sé ekki það sama og úps. Þetta blasir einhverra hluta vegna við löglærðum mönnum. Af þessu má skilja að ef Internet á Íslandi hf tæki lénið úps.is frá, (eins og Hermann fer fram á) vegna þess að ups.is lénið er skráð, er fyrirtækið að brjóta á rétt fyrrnefndrar auglýsingastofu til að skrá eigið nafn: úps.is. Eins og Hæstiréttur skilur málið eru þetta nefnilega sitthvor nöfnin með sitthvora merkinguna.
Hefur ISNIC rétt til að ákveða eitthvað annað?
Ekki er malari málari, eða hvað?
Fjallað var um lénamál í þættinum Ísland í bítið þann 6. apríl. Þar var staddur málari sem hafði tryggt sér lénið malari.is á sínum tíma og eytt miklum fjármunum í að auglýsa það lén upp fyrir sína starfsemi. Óprúttin aðili hafði hinsvegar skráð lénið málari.is og boðið honum til sölu. Tökum einn vinkil á þetta mál sem vert er að skoða.. maðurinn sem á lénið malari.is er ekki bara alls enginn malari. Eina ástæðan fyrir því að hann gat skráð þetta lén er sú að hann var á undan öllum öðrum og fékk léninu úthlutað skv. reglunni "fyrstur kemur, fyrstur fær", sömu reglu og gildir í dag. Myndi eitthvað vit vera í því að taka lénið af honum ef "alvöru" malari gerir kröfu til þess? Af hverju ekki? Þetta eru tvö ólík íslensk orð með sitthvora merkinguna. Þetta er ekki flókið, eða hvað? Hvort hefur málari eða malari meiri rétt á að hafa malari.is? Á ISNIC að taka ákvörðun um það?
Hvað ætlum við að nota?
Persónulega, og þessi pistill er skrifaður út frá mínum persónulegu skoðunum, þá sé ég ekki fram á að Alþingi komi nokkurtíma til að segja upp léninu althingi.is og nota alfarið xn--alingi-jza.is (alþingi.is) í staðinn. Það eru allt of mikil erlend samskipti sem eiga sér stað í gegnum þetta lén til þess að sú ákvörðun sé verjandi og í ljósi þess að hugbúnaður frá Microsoft styður ekki þessi lén í dag (default) nema með sérstökum viðbótum sem hægt er að ná í á vefnum, væri það einfaldlega rugl ef tekið er með í reikninginn hversu margir nota þennan annars handónýta hugbúnað. Það kemur til með að líða mjög langur tími þangað til hægt er að senda tölvupóst óhindrað sem inniheldur séríslenska stafi, ekki vegna þess að hugbúnaðurinn verður ekki til .. notandinn þarf að ná í nýja hugbúnaðinn líka og setja hann upp á tölvunni sinni. Hvað eru margir þarna úti að nota gamla vafra, innhringitengingar, hvað tekur langan tíma fyrir þetta að virka allt saman?
Aðeins lengur en korter, gæti ég trúað.
WWW
Internetið er world wide og má ekki rugla því saman við staðbundið textavarp eða sms sem fólk sendir sín á milli í símanúmer. Vissulega er hip og cool að geta sett inn í vafra "alþingi.is" með blessuðu þ-inu okkar, íslenskan er okkar mál og allt það.. en world wide er lykilorðið í þessari umræðu og hefur alveg gleymst. Þegar allir í heiminum eru komnir með forrit á vélarnar sínar sem styðja íslensku stafina og allt virkar eins og smurt.. world wide.. er bara ein spurning eftir: hvað eru margir jarðabúar með þæðö á lyklaborðinu sínu?
|
|
 |
 |
Vibrate
Fimmtudagur, 14. apríl 2005
Þegar ég kom heim áðan frá Jóni sá ég að hann hafði sent mér póst. Þetta er eitt fallegasta lag sem ég hef heyrt. Þetta er maður sem segist aldrei geta orðið ástfanginn aftur - vegna þess að það er allt dáið.
Skyndilega dettur mér í hug.. einhverra hluta vegna.. póstberi dauðans.
Rufus Wainwright - Vibrate
My phone's on vibrate for you
Electroclash is karaoke to
I tried to dance Britney Spears
I guess I'm getting on in years
My phone's on vibrate for you
God knows what all these new drugs do
I guess to have no more fears
But still I always end up in tears
My phone's on vibrate for you
But still I'll never ever feel from you
Pinocchio's now a boy
Who wants to turn back into a toy
So call me..
Call me in the morning, call me in the night
So call me..
Call me anytime you like
My phone's on vibrate..
For you.. for you
lagið
|
|
 |
 |
Í ræktinni..
Fimmtudagur, 14. apríl 2005
Ég sat í gufu og fór að hugsa um fitusog.
Ég fór að spá í að það er til fólk í alvörunni, aðallega konur, sem láta sjúga fitu úr rassinum og setja í varirnar.
Þetta gefur hugtakinu "kiss my ass" alveg nýja merkingu.
|
|
 |
 |
Doddi höfrungur
Fimmtudagur, 14. apríl 2005
Doddi er komin í frí hjá KR. Fórum áðan á sundsýningu hjá hópnum hans og það var svo gaman. Hann syndir skriðsund betur en ég og hann er svo flottur þegar hann er að stinga sér af stað, eða sýna flugsund.. vá. Þetta var æðislegt.
Á eftir fór ég með krakkana út að borða í ósviknar sjoppupulsur og franskar. Mér fannst mín pulsa svo vond að ég gat bara borðað tvo bita og frönsku kartöflurnar smökkuðust eins og táfýla.
Krakkarnir voru eitthvað heppnari.
Á leiðinni heim fór ég að söngla Vibrate lagið. Í aftursætinu sögðu börnin "booooring" í kór, og spurðu af hverju ég gæti nú ekki fengið skárri lög á heilann, nema Jóhanna ákvað að hjálpa mér aðeins með það.. og nú er ég með theme lagið úr Sledge Hammer á heilanum.
Þau eru svo miklu yngri en ég og strax búin að sjá við mér. Ég verð að vera duglegri að taka vítamínin mín!
|
|
 |
 |
Ghosting
Föstudagur, 15. apríl 2005
Ég lærði nýtt orð í gær: "ghosting". Þetta orð er notað yfir fólk sem eltir einkaþjálfara í líkamsræktarstöðvum og gerir sömu æfingar og einkaþjálfarinn lætur viðskiptavin sinn gera. Ég lærði líka að fólk græðir voðalega lítið á þessu, þeir sem horfa á sex and the city vita hvað ég er að meina. Ég var að tala við einkaþjálfara í sem ég þekki og við ákváðum döðlu á næstunni (date). Hann heyrði um þetta staðlaða prógram sem ég er komin með, hristi hausinn og sagði að hann ætlaði að fara með mér einn hring og búa til prógram sem er sérsniðið fyrir mig.
Ghosting virkar ekki vegna þess að það er mismunandi hvað hver og einn þarf að leggja áherslu á í ræktinni. T.d. þori ég að veðja að Heather Locklear og Jennifer Lopes séu ekki látnar gera sömu rassæfingarnar. Ég er líklega í JLo deildinni, það er óumdeilanlegt, ég er með rass.
Þetta eru vísindi. Stóla á að Helgi komi með sitt innput í þetta mál. Spurði þjálfarann líka að gamni hvað honum fyndist ég ætti að fara oft í viku: "tvisvar, þrisvar topps - til að byrja með", var svarið.
Ég held ég sé í góðum málum og hlakka ekkert smá til að fá svona alvöru custom made prógram þó eina vitið fyrir mig sé auðvitað að fara að æfa breakdance aftur. Ég hef aldrei verið í betra formi og á þeim tíma. Held samt að ég myndi líklega drepa mig ef ég myndi reyna að snúa mér á bakinu eða hausnum. Já.. líf og sjúkratrygging er málið áður en ég fer út í svoleiðis áhættusport..
|
|
 |
 |
Dagur í helvíti
Föstudagur, 15. apríl 2005
Þetta er óumdeilanlega hræðilegasti vinnudagur sem ég hef upplifað, síminn stoppaði hreinlega ekki og smám saman fann ég hvernig mojo-ið mitt fór þverrandi. Um hálf fimm var ég búin á því og velti alvarlega fyrir mér, á meðan ég talaði við tæknimann í símanum, að hringja á klepp og láta menn í hvítum sloppum sækja mig. Gefa mér lethal injection.. ég gat ekki meir.
Þegar ég kom heim hringdi Halldór í mig og ég sagði honum frá hvað ég væri þreytt og lítil og uppgefin eftir þetta sífella áreiti í allan dag. Hann spurði hvort ég kæmi bara ekki í heimsókn á eftir: "get gefið þér sígarettur í skiptum fyrir hand job", það kom smá þögn og svo hélt hann áfram: "ég er alltaf að fá fólk hingað í allskonar handavinnu, búa til kerti og sauma út.." Ég brosti og svaraði: "það er vel sloppið, ég er venjulega beðin um blow job.. blása gler og svoleiðis".
Hann segir mér venjulega að hengja mig þegar ég er lítil, býðst til að kenna mér að hnýta snöru og segist eiga helvíti traust reipi sem hann sé ekki að nota, en í dag sagði hann svolítið annað sem kom mér verulega úr jafnvægi. Hann sagði mér að ég væri grænt krækiber.
Hvað þýðir það? Er ég óþroskuð? Verulega óvenjuleg? Óæt?
Grænt krækiber! Og þetta á að heita vinur minn!
|
|
 |
 |
Pósturinn droppaði við áðan
Föstudagur, 15. apríl 2005
Can it be? That I hold in my mortal hand.. the second season of Sledge Hammer on DVD?
Top ten Sledge Hammer pickup lines:
1. "Freeze!"
2. "Your ammo dump or mine?"
3. "I feel connected to you.. by handcuffs"
4. "You're irresistible.. or maybe you're resisting arrest"
5. "Where have you been all my life? Incarcerated?"
6. "When I saw you across a crowded room, I decided not to shoot"
7. "Bullet for your thoughts?"
8. "Try a little tenderness, and if that doesn't work.. brute force"
9. "How about some fine wine and pork chops?"
10. "Shut up"
update:
Auðvitað á ég season one líka. Come on!
|
|
 |
 |
Hætturnar leynast víða
Sunnudagur, 17. apríl 2005
Ég er af sniffkynslóðinni. Þegar ég var í skóla var rosalega vinsælt að sniffa lím, kveikjaragas og eitthvað fleira. Ég þorði ekki að prufa því ég óttaðist að ég myndi verða fáviti, sniðgekk sniffið og fór beint í áfengið. Á seinni árum hef ég stundað litla og ómarkvissa áfengisneyslu og líklega blundaði sniffþörfin í mér.. ég var bara í afneitun.
Ástæðan fyrir því að ég hef ekkert bloggað um helgina er sú að ég hef verið að sniffa trefil.
|
|
 |
 |
Þeir sem minna mega sín
Mánudagur, 18. apríl 2005
Ég hef bara séð eitt dagskrárbrot á skjá einum þar sem þriflarnir tveir ríða húsum. Þessi þáttur er rosalega mótiverandi. Langt síðan ég hef nennt að skríða meðfram gólflistunum með tusku.
Verður líka langt þangað til ég nenni því aftur.
Það er hollt að hafa ákveðið magn af skít í kringum sig, á meðan það eru ekki matarleyfar undir sófa. Mér finnst það viðbjóður. Ég er mjög hlynnt ryki og finnst bara heimilislegt að hafa smá ló í hornunum. Innan skynsamlegra marka auðvitað. Þegar maður getur spilað tic-tac-toe á stofuborðinu er kannski tími til kominn að ná í tusku og einhvernvegin er maður alltaf búin að ná í tusku áður en maður getur tekið góðan leik með einhverjum. Sem væri töluvert umhverfisvænna en að spæna upp pappír.
Mér finnst að fólk eigi ekki að sterílæsera í kringum sig. Hugsið um rykmaurana og hamfarirnar í þeirra heimi sem ein ryksuga getur framkallað! Þúsundir farast. Þúsundir missa foreldra sína eða verða viðskila við þá. Margar milljónir heimilislausar og matarlausar dögum saman. Þar sem einu sinni dafnaði blómleg byggð er nú eyðimörk.
Vá. Þetta er náttúrlega bara rugl þegar maður fer að hugsa út í þetta.
Verum mannúðleg. Björgum lífum. Hættum að ryksuga.
ps. Ég hlusta ekki á þetta rugl að það séu ekki til rykmaurar á Íslandi. Leyfiði mér að halda að ég sofi ekki ein alltaf. Geriði það nú fyrir mig..
|
|
 |
 |
OMG
Miðvikudagur, 20. apríl 2005
|
|
 |
 |
Búkolla á bekkjarskemmtun
Miðvikudagur, 20. apríl 2005
Í dag var fyrsta bekkjarsýningin hans Dodda. Hann lék afturendann á nautinu sem pissaði á eldinn sem hárið úr halanum á Búkollu bjó til. Sýndi mikil leikræn tilþrif þegar nautið pissaði en það kom í hans hlut að túlka það enda lék hann rassinn á skepnunni.
Áður en leikritið var sýnt var sett á svið danssýning og krakkarnir sýndu dansana sem þau eru búin að læra í vetur. Í lok þeirrar sýningar buðu krakkarnir pabba eða mömmu upp í dans og við dönsuðum "hendur, hné og bommsassa" og fugladansinn. Doddi sveif á mig, hneigði sig og bauð mér upp. Algjör dúlla.
Þegar ég kom heim sá ég að "meintur" Halldór, aka sjarmörinn, hefur ekki setið auðum höndum í dag. Hann sendi mér nýjan hljóðfæl sem hægt er að setja í staðinn fyrir default hljóðið í póstforritinu þínu á makkann. Ef þú vilt bara hlusta geturðu náð í mp3 fælinn hér. Hann gaf mér sérstakt leyfi til að dreyfa þessu, enda allt sem hann segir höfundarréttarvarið.
|
|
 |
 |
Sérstakur húmor II
Fimmtudagur, 21. apríl 2005
Sjarmörinn sendi mér annað hljóð í gær. Þessari hugmynd var hafnað í "stundum er bara betra að senda sms" auglýsingaherferðinni.
símtal
Já.. og gleðilegt sumar!!
A miracle has happened
Fimmtudagur, 21. apríl 2005
Hið ótrúlega hefur gerst. Það er ekkert að spilaranum í bílnum mínum, það er bara traktorinn sem ég er að vinna á sem er klikk. Fór með Jóhönnu áðan í heimsókn til frelsara míns, Halldórs, sem brenndi tilraunadisk fyrir mig og sýndi frammá þetta. Ég spilaði song of the week alla leiðina heim.
Þegar við Jóhanna komum heim bað ég hana að hjálpa mér að setja saman disk sem inniheldur lög sem henni og Dodda finnast skemmtileg. Þetta er útkoman:

Ég táraðist þegar ég áttaði mig á því að loksins get ég farið að skrifa diska í bílinn aftur.
Goodbye
Föstudagur, 22. apríl 2005
Um helgina er ég að fara í smá ferðalag. Það verður ekki hægt að ná í mig í síma þar sem ég verð, en ég kem aftur.
Halldór! Vertu stilltur og ekki nota kommentakerfið mitt til að koma á framfæri ósmekklegum athugasemdum! Annars verður þú laminn í frímínútum og dæmdur til að búa með Ævari í minnst sex ár!
|
|
 |
 |
Var í sjúkdómsgreiningu
Laugardagur, 23. apríl 2005
Ég fæ kryppu fyrir fertugt ef ég held áfram að ganga svona hokin, er nú þegar komin með músagigt í hægra herðablað, hárlos og þrýstiójafnvægi í þumalputta.
Not to worry... það er til lækning við þessu. Ég bara veit ekki hver hún er.
Í dag fór ég á danskeppni í Garðabæ með Dofra Hvannberg, sem er góðkunningi minn og lögreglunnar. Dans er eitt af brjáluðum áhugamálum Dofra og hann plataði mig til að fara með sér. Aðallega vegna þess að hann missti prófið í síðasta mánuði og nennti ekki í strætó. Í hléinu dreif hann mig útá dansgólfið á meðan bleiki pardusinn ómaði í óskýru hátalarakerfinu og þar sem ég er ekki vön því að fólk actually komi við mig marðist ég illa á höndum og á baki. Don't ask.
Þeir eru ekki að djóka með þetta.. ég held að þetta hafi bara verið sæmilegt hjá okkur enda er Dofri maður sem kann að stjórna, hefur dansað í Prag!
Korteri eftir að ég kom heim hringdi hann og bauð mér í matarleifar. Á leiðinni til hans heyrði ég lag sem fær mig alltaf til að gráta. Ekki skánaði það þegar hann var svo ekki heima þegar ég mætti á svæðið. Ég upplifði svakalega höfnun og hélt áfram að gráta á útidyratröppunum. Þegar hann kom heim brá honum nokkuð, sem ég skildi svosem þegar ég leit í spegil seinna, ég leit út eins og Alice Cooper. Hann hafði bara skroppið í einhverja verslun í Álfheimunum sem selur ólöglegar, tvílitar ansjósur frá Alsír. Ég settist við borðið hjá honum og grét á meðan hann hitaði leifarnar og sagði mér að það væri ekki sjón að sjá mig og auðvitað væri engin furða á því að það nennti ekki nokkur maður að þekkja mig, svona útlítandi. Mér finnst Dofri yfirborðskenndur. Útlitið er ekki allt.
Ég sjænaði mig aðeins til (lesist: strauk svarta tauma af kinnunum og gleraugunum) og kíkti inní eldhús til að bjóða fram aðstoð mína. Þar var allt á floti og Dofri hund skammaði mig, á meðan hann moppaði gólfið, fyrir að gráta svona mikið.
Kvöldinu eyddi ég svo í heitu baði með öllum ósýnilegu vinum mínum.
|
|
 |
 |
Danger, danger.. high voltage!
Mánudagur, 25. apríl 2005
Ég er veik, ekki að það séu neinar fréttir í sjálfu sér, en hvað gerir maður þá?
Jú.. maður horfir á flott myndband og lætur heillast.
Electric 6, Danger (high voltage).

Mér finnst þetta myndband æðislegt. Gæjinn er svo.. eitthvað.. perralegur að það hreint undursamlegt, augnarráðið, hvernig hann kippist allur til, blikkar og þetta skelfilega yfirvaraskegg. Hún.. vá.. hún er friggin' brill. Hún er svo rugluð að það er unun að horfa á hana. Ætti auðvitað að vera í spennitreyju með þetta augnarráð og þegar ljósið kviknar.. þá bara deyr maður úr hlátri.
Og textinn...
"Fire in the disco... fire in the.. taco bell"
-Á bresku sveitasetri með Elg! Vá.. ég er heilluð af þessu myndbandi. Þetta finnst mér hilaríus, og þá er ég ekki að meina karlmannsnafnið..
Þeir sem vilja sjá þessa snilld geta strímað þetta hér
Þrusu gott lag.
|
|
 |
 |
Óráð
Mánudagur, 25. apríl 2005
Mér leiddist áðan. Vafraði um íbúðina í bleiku kanínuinniskónum með dúskunum og batman náttsloppnum sem Doddi fékk í jólagjöf frá einni langömmu sinni þegar hann var fimm ára. Þessi amma gefur alltaf rúmlega stór föt, stundum aðeins of rúmlega en ekki kvarta ég.. mig vantaði slopp. Þvældist inná bað og datt í hug að stíga á vigtina. Ég er 55 kg. Ef þetta heldur svona áfram hverf ég eftir þrjú ár. Spurning um að tékka á líftryggingunni aftur. Þeir eru ennþá að hugsa málið. Mörg skelfileg orð í sjúkrasögu minni: ilsig, ofnæmi, ofsakvíði.
Þeir sendu mann til að athuga hvort ég liti út fyrir að vera mjög geðveik. Hann þurfti náttúrlega akkúrat að droppa við þegar ég var með hálft folald uppá eldhúsborði sem ég fékk sent frá aðdáanda sem hefur einmitt áhyggjur af því að ég borði ekki nóg. Ég var að hluta það í sundur, með sveðju í hægri höndinni þegar ég opnaði, öll blóðug. Síðan þá segir maðurinn að skýrslan sé í þýðingu. Hann er búinn að segja þetta við mig í hálft ár!
Hann þorir örugglega ekki að segja nei við mig en þorir ekki að líftryggja mig heldur. Ég á nafnspjaldið hans, veit hvar hann á heima, veit hvar konan hans vinnur og á hvaða elliheimili amma hans er á. Ég er alveg róleg, ég fæ þessa tryggingu. If all else fails á ég ennþá hausinn af folaldinu í frystihólfi útí bæ. Sem ég segi.. maður á aldrei að henda neinu! Maður veit aldrei hvenær sumir hlutir koma í góðar þarfir.
Fire in the disco..
Ég er í stuði fyrir stíflaðar slagæðar, heilablóðfall eða kransæðastíflu akkúrat núna.
Don't you wanna know how he keeps starting fires?
trallalla..
Ég er með óráði...
|
|
 |
 |
In a zzzzone
Þriðjudagur, 26. apríl 2005
Fór úr óráði í ofvirkni. Ég á það til.
Setti upp mt á tveimur stöðum og færði heimasíðu á annað kerfið. Þar sem búið var að fokka upp mt kerfinu á gömlu síðunni var ekki hægt að exporta gömlum færslum og ég þurfti að gera þetta handvirkt. Það var rosalega gefandi lífsreynsla. Ég tók afrit af minni síðu á meðan - just in case. Sem betur fer er bloggarinn sem ég var að vinna fyrir ekki ofvirkur svo þetta voru ekkert heví tvö ár. Annars væri ég búin að missa vitið, það er nokkuð ljóst. Auk þess fæ ég rosalega vel borgað fyrir þetta, seinna.
Kíkti líka á verkefnið sem ég er að vinna fyrir Guð. Græjaði smá myndvinnslu og sendi frá mér. Vantar meira efni til að komast í gang með það dæmi.
fire in the disco..
Hvað gerði ég fleira? Já.. það kom upp fokking villa þegar ég setti þetta upp og ég var að velta því fyrir mér að fara að sofa.. þegar ég áttaði mig á því að ég átti eftir að versla í matinn fyrir allsnægtarheimilið. Ég leyfði mér nefnilega þann munað að kaupa mér brjóstahaldara í byrjun mánaðarins og þrjá bómullarboli. Ljóta ruglið. Ég fæ svona mikilmennskubrjálæði öðru hvoru og held að ég hafi efni á að kaupa mér eitthvað. Gleymdi að hugsa útí að í þessum mánuði voru skráningargjöld í Karate, sérsmíðaðir skór fyrir Dodda og innlegg. Það setur heldur betur dæld í sjúskaða debetkortið. On the bright side þá rofaði til í heilabúinu á mér á leiðinni heim og ég fattaði hvað var að. Gæti hafa gerst þegar ég keyrði yfir þessa hraðahindrun áðan á kolólöglegum hraða.
fire in the... taco bell..
Áðan átti ég heilar tvö þúsund krónur til að lifa á fram á föstudag og ég lét það ekkert dampen my spirits. Núna held ég að ég eigi ca 600 kall, eftir ég fór í skjóli nætur í 10/11 eða 11/11 og keypti brauð, banana, mjólk, smjör og eitthvað fleira.. ab mjólk og svona... þetta verður ekkert mál.
danger, danger..
Í kvöldmatinn hafði ég lasanja sem ég fann í frystinum frá einhverju ofvirkniskasti sem ég hef tekið í eldhúsinu og eldað svoleiðis í massavís til að eiga þegar ég nenni ekki að elda. Works like a charm þegar maður er blankur líka. Sá eitthvað meira af mat þarna svo við munum ekki svelta. Mér var líka bent á það um daginn að það má alveg borða endur. Maður finnur þær niðrí bæ, við tjörnina. hehehe
high voltage..
Neinei.. þetta lagast. Fæ pening þegar ég klára verkefnið fyrir Guð og svo þarf ég að nota Bidtman rökin til að fá hin verkefnin. Ég mun eyða 24/7 fyrir framan tölvuskjá en það er ágætt. Það kostar ekkert. A.m.k. þarf ég ekki að borga fyrir það.
danger, danger...
Sexhundruð kall eftir. Nei! Fjögurhundruð... frumburðinum vantar tvöhundruðkall fyrir ferðalag með skólanum á morgun.
high voltage..
Fimm ár. Ætli ég verði hætt að blogga þá?
fire in the.. gates of hell
|
|
 |
 |
Grotesque
Þriðjudagur, 26. apríl 2005
Bólurnar Kvöl, Pína og allar litlu frænkur þeirra eru farnar úr andlitinu á mér. Í stað þeirra er ég komin með stærstu bólu sem um getur og á rassinn! Ég er að tala um stærð sem sést á veðurfarsmyndum utanúr geimnum. Ég hef ekki séð hana berum augum vegna staðsetningarinnar en ég veit af henni þarna og sumt þarf maður ekki að sjá til að vita nákvæmlega hversu hryllilegt það er.
-Svipað og þegar Dofri Hvannberg er búin að prumpa og segir: "alveg sama hversu kalt það er.. opnaðu út NÚNA!" Alvara málsins skín úr hverjum andlitsdrætti og maður hlýðir skilyrðislaust.
Hvað? Var haldin fundur sem ég missti af?
Dagskipunin: "Let's re-group on her ass"?
Give me a break!
|
|
 |
 |
Fundur í júní
Miðvikudagur, 27. apríl 2005
Fékk símtal áðan. Þegar manneskjan var búin að ljúka máli sínu þagði ég heillengi á meðan ég var að jafna mig.. svo sagði ég: "bíddu.. viltu segja þetta aftur?"
Ég held ég hafi ekki verið svona spennt.. síðan.. tjah.. síðan ég fékk óvænt tölvupóst fyrir ári síðan.
fire in the disco marr!
Má ekki klúðra þessu dæmi.
|
|
 |
 |
Í stuði með?
Fimmtudagur, 28. apríl 2005
Best ég haldi áfram að skrá niður atvik sem varpa ljósi á ótvíræðan dugnað minn, hæfni og.. hvað ég er dugleg að redda mér. Ég er byrjuð að vinna verkefni sem er samt ansi snúið að vinna. Aðallega vegna þess að ég fæ ekki aðgang að kerfinu sem ég er að vinna með svo ég er að vinna þetta soldið útí loftið.
Kemur í ljós hvað gerist. Ég er allavega komin með grunn útlitið.
Ég reis upp úr veikindum mínum og mætti í vinnuna í dag. Eyddi morgninum í að hósta á fólk í símann.
fire in the disco.
ÚH! Vá, var næstum búin að gleyma... Helgi.. þú verður ánægður með mig núna. Ég er allavega mökk stolt af sjálfri mér og grunar að Óli kerfisstjóri sé líka ánægður með skjólstæðing sinn sem hann er búin að pína áfram með orðunum rtfm (read the fucking manual) í fleiri ár.
Í dag fékk ég skyndilega nóg af því að blacklist græjan virkar ekki. Ég hef rosalega háan umburðalyndisþröskuld en svo fæ ég nóg og í dag ákvað að gera eitthvað í málinu - sjálf. Fann leiðbeiningar á netinu og editeraði PluginData.pm skjalið í mt og lagaði ruslið maður! Kann ekki staf í perl! Shit hvað ég var ánægð með mig og mig grunar að annar maður, sem ég bjó einu sinni með, hafi líka verið kátur þegar rusl kommentunum var mokað útaf síðunni hans.
Ég var í stuði í dag.
|
|
 |
 |
Vúhú!
Föstudagur, 29. apríl 2005
Á eftir fæ ég útborgað, húlabba-labba-ley
Fjölskyldu föstudagur
Föstudagur, 29. apríl 2005
Þegar börnin voru að fara í skólann í morgun lofaði ég þeim að við myndum gera eitthvað skemmtilegt í kvöld saman. Spurði hvort það væru einhverjar óskir um mat. Já.. soðin fiskur og kartöflur.
Spurning um að spila eitthvað með þeim. Ég nenni ekki að horfa á sjónvarpið í kvöld og ég ætla ekki að vinna heldur.
Nema kannski þegar þau eru farin að sofa...
Ég er búin að lofa sjálfri mér að kaupa mér harðan disk þegar ég fæ borgað fyrir þessa síðu. Það er óþolandi orðið að vinna á vélinni minni.
|
|
 |
 |
Msn
Föstudagur, 29. apríl 2005
Msn er vettvangur þar sem fólk segir hluti sem það myndi jafnvel aldrei þora að segja annars. Ég átti svona "msn móment" í dag..
Dofri says: ég sakna þín
Anna says: ha? síðan í gær?
(fór í heimsókn til hans í gær)
Dofri says: já.. ég sakna þín verulega mikið
Anna says: ertu nokkuð veikur?
Dofri says: af hverju spyrðu að því?
Anna says: bara
Dofri says: ekki bara, af hverju?
Anna says: vegna þess að venjulega segirðu...
Anna says: af hverju hringirðu í mig?
Anna says: láttu mig vera herfa
Anna says: vertu í bandi - hengdu þig
Anna says: farðu úr símanum mínum!
Anna says: drusla
Anna says: belja
Anna says: tík
Dofri says: nei sannleikurinn er..
Anna says: lufsa
Dofri says: ætli það sé ekki best að taka sénsinn og tala hreint út..
Sirka hér fékk ég míní taugaáfall. Hvað var maðurinn að fara að segja mér? Ætlaði hann að segja mér að hann gæti ekki lifað án mín? Að hann elskaði mig útaf lífinu og vildi giftast mér og eignast með mér fimm börn?
Dofri says: sko..
Púlsinn hjá mér kominn upp úr öllu valdi. Spurningar eins og "hvernig get ég útskýrt fyrir honum að ég elska hann líka en ekki á þann hátt?" sóttu á mig og ég fann hvernig mér varð heitt og svitnaði í lófunum.
Dofri says: þegar ég er almennilegur stundum við þig, er það ekki það sem þú heldur..
Jesús kristur. Fokk. Shit. Hvað í fjandanum er maðurinn að fara að segja við mig?????
Dofri says: það er svo miklu skemmtilegra að vera leiðinlegur við þig ef þú heldur að mér sé ekki sama um þig inná milli
SPENNUFALL!
Anna says: hjúkk!
Anna says: shit hvað þú hræddir mig þarna!
Dofri says: ég er hommi
Anna says: já það..
Anna says: so what else is new?
Dofri says: beljur eru sætar
Hvernig gat ég verið hissa? Hálftíma fyrr hafði hann nefnilega hringt í mig og samtalið var eitthvað á þessa leið:
Anna: "halló?"
Dofri: "er þetta á naglasnyrtistofu klikkuðu herfunnar?"
Anna: "já.. vorum einmitt að fá geðbilaða sumarliti í dag"
Dofri: "hvenær ætlarðu að laga á mér neglurnar?"
Anna: "viltu koma í kvöld?"
Dofri: "klukkan?"
Mér finnst æðislegt að eiga vin sem er hommi. Það var akkúrat sem mig vantaði alltaf. Loksins einhver sem getur sett í mig sómasamlegar strípur!
Verð að rjúka.. þarf að finna til naglabandaeyðirinn og kremið...
|
|
 |
 |
Fjölskyldukvöldið að taka á sig mynd..
Föstudagur, 29. apríl 2005
Frumburðurinn: "þegar við erum búin að borða, getum við þá farið útá vídeóleigu og náð í vídeó og keypt nammi og svo spilum við og svo horfum við á vídeó?"
Doddi: "já! Vídeó!"
Anna: "af hverju vilji þið endilega taka vídeó?"
Frumburðurinn: "af því það er það eina sem við getur gert almennilega saman, horfa á vídeó"
Doddi: "já! Vídeó!"
Anna: "hrmpf"
Hvað gerir venjuleg fjölskylda saman? - Annað en að horfa á vídeó..
|
|
 |
 |
Rættist úr þessu
Laugardagur, 30. apríl 2005
Við fórum ekki á vídeóleiguna. Þegar ég var búin að laga neglurnar á Dofra kom Halldór og spilaði scrabble við mig og svo spilaði hann pictionary með mér og krökkunum. Það var æðislega gaman. Halldór fór á kostum og í hvert skipti sem einhver byrjaði að teikna sagði Doddi lymskulega: "ég veit sko pottþétt hvað þetta er". Það var nú oftar en ekki einhver misskilningur hjá honum. Hann skildi nú samt sem áður flest sem ég teiknaði fyrir hann, fyrir utan blóðgjöf.
Frumburðurinn hjálpaði Dodda, sagði honum hvað hann ætti að teikna. Í eitt skiptið teiknaði hann önd, og ég gat uppá því. Kom í ljós að Jóhanna hafði sagt honum að teikna hönd. Hann heyrir jafn vel og ég barnið.
Ég er mjög ánægð með að hafa stoppað vídeóglápið af. Mér finnst allt í lagi að horfa á vídeó once in a while.. en mér finnst óhugnarlegt að heyra frá börnunum mínum að það sé það eina sem við erum "góð" í að gera saman.
Það gengur ekki alveg upp í ljósi þess að ég fer ca 1x í mánuði og tek vídeó fyrir þau. Við þurfum greinilega að finna fleiri hluti sem við erum "góð" í að gera saman.
Núna ætla ég að hit the hey.
|
|
 |
 |
Brauðvél, prógramm og skrif
Laugardagur, 30. apríl 2005
Fór til mömmu að fá lánaða brauðvelina í dag. Hnífurinn í hana fannst ekki svo ég kom tómhent heim, en ekki fyrr en ég var búin að laga format villu í word skalinu sem mamma er að vinna í. Hún hringdi í mig í ofboði í gærkvöldi og ég hélt að einhver væri dáinn. Nei.. þá gat hún bara ekki sett inn síðunúmer á skjalið, kom alltaf {PAGE} í staðin fyrir númerið. Ég var ekki lengi að finna svarið við því hvernig á að laga það á netinu. Það er snilld að kunna á leitarvélar. Mamma trúir því að ég sé snillingur þegar kemur að tölvum. Sem ég er ekki. Ég bara kann að redda mér. Ekkert vera að segja henni frá því samt..
Í morgun fór ég í líkamsrækt og fékk fyrsta prógrammið af þremur sem ég á að vinna eftir. Þar var mér sagt að ég væri með "kúlurass" og ætti að þakka Guði fyrir hann. Ég tók fram að ég vil ekki stækka rassinn og er skíthrædd við að gera allar þessar rassaæfingar, en set allt mitt traust á þennan mann sem sagði að ég myndi ekki stækka hann.. bara tóna. Úúúú.. ég verð með tónaðann rass! Hann pískaði mér líka áfram á magaæfingum. Það er ekki magnið.. það eru gæðin. Ég finn ennþá fyrir þessum magavöðvum sem ég var að æfa sem hafa bara verið þarna ónotaðir í rúman áratug. Ég er að tala um neðri magavöðvana þarna.. þessa sem fara verst þegar maður gengur með börn.
Þegar ég kom heim mátaði ég bikiníið sem ég notaði í fyrra. Ég var nefnilega 67 kíló þegar ég keypti þetta bikiní í fyrra en er 12 kílóum léttari núna. Ég er hinsvegar svo heppin að þetta er bundið utanum mig svo ég þurfti bara að herða í böndunum og þá er ég rosalega fín. Snilldin ein. Vissi að ég átti að geyma þetta.
Annars er að skrifa og skrifa og skrifa. Er að velta upp hugmyndum og fá feedback. Búin að redda mér laptop til að fara með til Króatíu. Það verður snilld. Liggja í leti.. skrifa.. liggja í leti.. skrifa.. liggja í leti..
|
|
 |
 |
|
 |
|
ravings í apríl 2005
monthly archive
|
|
|