Var inná baði..
Laugardagur, 12. mars 2005
Það er heillandi sjón að sjá fullorðinn mann í hjólastól með lappirnar gifsaðar út í loftið vinna hörðum gúmmíhanskaklæddum höndum að því að gera kvenmannsnærbuxur óaðlaðandi með klór, ofnhreinsi og öðrum kemískum efnum. Honum gengur bara þokkalega. Ef ég færi í þennan hrylling núna myndi ég drepa alla eðlilega flóru þarna niðri - for life.
Þetta þarf ekki að vera svona mikið vandamál. Gifsið nær jú bara upp á mið læri og ef ég þekki mig rétt mun ég rukka leigu þegar ég kem heim í nótt. Segi honum það á eftir bara..
Það er einfaldlega of gaman að fylgjast með þessu.
Ég var búin að gleyma öllum þessu litlu hlutum sem gerir það svo skemmtilegt að búa með karlmanni. Það er soldið eins og að eignast barn, sem getur keyrt sjálft uppá slysó þegar það hefur farið sér að voða.