Föstudagur, 25. mars 2005
Fékk póst áðan frá vini mínum sem er að segja mér að drullast til að koma með upphæð í verkið sem hann er með fyrir mig. Nú hef ég drullast til þess og ef ég fæ þetta djobb fæ ég peninga sem eru ekki fyrirfram eyrnamerktir í skuldir eða heimilisútgjöld.
Úúúúú.. kannski kaupi ég mér ný föt! Hef ekki gert það mjög lengi, eða harðann disk og strauja vélina mína. Það er eiginlega löngu komin tími á það. Gætu eitthvað af þessum forritum sem ég er með hérna farið að virka aftur.
Sem minnir mig á annað verkefni sem ég tók að mér sem ég ætlaði að klára um páskana... sem ég fæ líka pening fyrir og svo er eitt enn í gangi sem á eftir að skila mér meiri pening í kassann. Þeir eru ekki að djóka með þetta, peningar eru í alvöru félagsverur! Ef þetta heldur svona áfram gæti ég keypt mér sjónvarp og DVD spilara líka!
Best af öllu.. ég kem til með að vera á kafi í vinnu.
Ég hef oft verið miklu leiðari en þetta.
Peningar, peningar, peningar.. þeir kaupa ekki hamingju en gera eymdina svo miklu bærilegri...
Farin í ræktina.