Miðvikudagur, 02. mars 2005
Ég nenni ekki að elda fyrir mig eina. Hef aldrei nennt því. Þegar blaðamaðurinn komst að því að miðvikudagskvöldið í kvöld er hans kvöld með krökkunum breyttust kvöldmatarplön mín úr tyrkneskum kjúkling í spelt brauð með agúrku. Svona getur lífið verið óvænt.
Fór í bað þegar ég kom heim og setti í þvottavél. Svo lagðist ég upp í rúm. Ég var að vakna. Dásamlegt..
Ég hlakka ekkert smá til að borða Tyrkneskan kjúkling á morgun.