Fimmtudagur, 10. mars 2005
Nú væri Dr. Sváfnir ekki ánægður með mig en á sama tíma myndi evil emperor úr Star Wars skríkja af kæti.
Ég er með hatur í blóðinu. Það streymir um mig. Ég finn hvernig það brennur og flæðir í gegnum æðarnar og ég fæ skrítna kippi þegar það fer í gegnum kransæðastíflurnar. Er með fyrirlitningu í augunum og gnýsti tönnum.
Ég vil taka fram að það er ekki rýnirinn sem ég hata af þessari ástríðu. Ég finn ekkert nema þakklæti í hans garð. Hjarðdýrið í mér var farið að örvænta og það hefur engin skrifað svona um mig áður, auk þess finnst mér þetta soldið sætt...
Úff.. vont. Mig verkjar í kjálkann.