Föstudagur, 18. mars 2005
Í kvöld er ég að fara í óvissuferð á Grillið. Þetta er óvissuferð vegna þess að ég veit ekki hvað ég er að fara að borða. Lúí neitar að gefa mér það upp. Segir að þetta sé bara "smá" surprise.
Gat skeð. Á nú að gefa manni snigla og froskalappir að borða til að sjá hvort ég sé frakklands-fær?
Iss!
Ég er ekkert feimin við að borða lindýr og fluguætur. Finnst hann bara óendanlega sætur að bjóða mér út.
Fegin að það er lyfta á Grillinu. Hann er svo lengi að staulast upp tröppur á þessum hækjum, hann er reyndar allur að koma til. Kannski er það bara allt þetta fótanudd sem ég gef honum í tíma og ótíma.