www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sælgætisostakaka
Mánudagur, 21. mars 2005

Ég bjó til ostaköku í gær. Júlía var í heimsókn. Alltaf gaman að sjá fólk sem hefur ekki smakkað þessa ostaköku smakka í fyrsta skiptið.

Júlía notaði sleikjuna til að skafa allar restar innanúr skálinni og borða. Gaf frá sér nautnarleg hljóð á meðan. Fór næstum að gráta þegar ég sagði henni að kakan yrði ekki borðuð fyrr en um páskana. Og nota bene.. Júlía fékk bara að smakka ostafyllinguna. Ekki kremið, sem er svo gott að maður lygnir aftur augunum og finnst eins og þetta bragð hljóti bara að vera til í himnaríki.

Fyrir þá sem vilja prufa.. hér uppskriftin:

Homeblest kex 22 stk
75 g smjör
300 g rjómaostur (ég hafði 400 g)
200 g flórsykur
1/2 l þeyttur rjómi
2 tsk vanillusykur
2 mars súkkulaði (ef þið eruð með lítil, .. notið 3)
1 poki daim kúlur


Krem (sem er syndsamlega gott)

200g suðusúkkukaði
1 msk rjómi
1 dós sýrður rjómi 18%

Smjörið er brætt í potti, þá homblest mulið útí, best að mylja það í tætlur í matvinnsluvél. Þessu er hrært saman og sett í botninn á forminu. Rjómaostur er hrærður út, flórsykri og vanillusykri bætt við. Rjóminn er þeyttur sér og settur útí rjómaostablönduna. Að lokum er namminu bætt útí. Ég er með kitchenaid vél og sker marssúkkulaðið í bita og hendi því svo bara útí ásamt daim kúlunum og læt þetta maukast í vélinni. Þetta er sett ofaná kexbotninn.

Kakan er fryst í allavega 3 klst, best að frysta hana yfir nótt. Þegar hún er tekin úr frystinum er kremið búið til. Súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði, rjómanum og sýrða rjómanum er bætt við, hrært saman og voila! Sett á kökuna.

Kakan er skreytt með jarðaberjum eða blæjuberjum.

Bon appetit!


| anna | 10:35 |
comments

Þetta verður sko prófað! takk smile

Nr. 1 | posted by: Hildigunnur | 21.03.2005 | 12:00:18 | [+] |

Þetta hljómar mjööög girnilega nema að ég fíla ekki ost - fæ klígju af honum. Er hægt að nota eitthvað annað í staðinn? sick

Nr. 2 | posted by: Gummi | 21.03.2005 | 14:53:56 | [+] |

Það er nefnilega trikkið við þetta. Þeir sem borða þetta vita stundum ekki einu sinni að þetta er ostakaka. Þetta er sælgæti..

Nr. 3 | posted by: anna | 21.03.2005 | 15:24:58 | [+] |

Þrír tímar í frysti er nóg og svo skellirðu kreminu á kökuna, í ísskáp á meðan mesta frostið er að taka sig og svo bara down the hatch! Borgar sig ekki að frysta kremið.

Já og þetta er stór uppskrift. Ég set hana í stórt djúpt hringlaga glerform en annars passar hún í tvö venjulega ostakökuform.

Nr. 4 | posted by: anna | 21.03.2005 | 15:38:45 | [+] |

*slef*

Nr. 5 | posted by: Ljúfa | 21.03.2005 | 20:30:43 | [+] |

Aðalmálið er að setja kremið á hana meðan hún er frosin og svo má frysta hana aftur. wink Þetta er einmitt sjúklega góð ostakaka fyrir þá sem ekki borða osta colgate Muna bara að taka hana út úr frysti áður en það á að borða hana!!!! nerd ég lenti í því einmitt þann 6.mars nákvæmlega að "gleyma" að taka hana úr frysti og mundi það ekki fyrr en 1klt áður en ég ætlaði að bjóða upp á hana og homblestið var svo frosið að það varð eftir íbotninum... Svo bara finn ég ekki dajm kúlur lengur sour þurfti ða brytja niður dajm flykkin!
Já maður getur endalaust talað um þessa köku hún er HRIKALEGA góóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóóððð!

Nr. 6 | posted by: Ásta ostakaka | 22.03.2005 | 20:33:05 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web