www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Páskaegg græjuð
Miðvikudagur, 02. mars 2005

Fór í Bónus í hádeginu og verslaði það sem mig vantaði í Tyrkneska kjúklinginn. Ákvað að kaupa páskaegg í leiðinni, en gerði það í Krónunni. Það voru nefnilega bara til Bónus egg í Bónus og það gengur ekki á mínu heimili. Ó nei.

Það hefur allt verið reynt. Afar og ömmur hafa komið færandi hendi með Mónu, Góu, Bónus og guð má vita hvað.. það eina sem gengur ofaní krakkana mína (og mig sjálfa) er Nói þegar kemur að páskaeggjum.

Við erum íhaldssöm þegar að þessu kemur og mér finnst að allir eigi að fá páskaegg með unga en ekki einhverjum fígúrum. Stóla samt eiginlega á að afi Úlfur gefi púkaegg eins og venjulega. Ef ekki.. so be it. Það er súkkulaðið og nammið sem trekkir hvort sem er.

Sá mann í Bónus sem ég held að sé sálufélagi minn. Það er bara vegna þess að ég er geðveik og þarfnast hjálpar.

Þegar ég kom heim áttaði ég mig á því að ég á ekki kjúkling nema í frysti...


| anna | 12:53 |
comments

Hvaða geðlæknir verslar í þinni Bónusbúð?

Nr. 1 | posted by: edda | 3.03.2005 | 11:20:47 | [+] |

Engin sem ég veit um.

Nr. 2 | posted by: anna | 3.03.2005 | 11:35:47 | [+] |

Innilega sammála með páskaeggin. Öll óæt nema Nóa egg!

Nr. 3 | posted by: Sigga | 6.03.2005 | 11:20:26 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web