www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
"Not all treasure is silver and gold"
Mánudagur, 21. mars 2005

Óðum steðjar að sá dagur,
afmælið þitt kemur senn.
Lítill drengur, ljós og fagur
lífsins skilning öðlast senn.

Vildi ég að alltaf yrðir
við áhyggjunar laus sem nú
en allt fer hér á eina veginn
í átt til foldar mjakast þú.

Ég vildi geta verið hjá þér
veslings barnið mitt.
Umlukt þig með örmum mínum.
Unir hver við sitt.

Oft ég hugsa auðmjúkt til þín
einkum þegar húmar að.
Eins þótt fari óravegu
átt þú mér í hjarta stað.

Man ég munað slíkan,
er morgun rann með daglegt stress,
að ljúfur drengur lagði á sig
lítið ferðalag til þess
að koma í holu hlýja,
höfgum pabba sínum hjá.
Kúra sig í kotið hálsa,
kærleiksorðin þurfti fá.

Einka þér til eftirbreytni
alla betri menn en mig.
Erfiðleikar að þó steðji
alltaf skaltu vara þig.

Að færast ekki í fang svo mikið
að festu þinnar brotni tré.
Allt hið góða í heimi haldi
í hönd á þér og með þér sé.

Man ég munað slíkan,
er morgun rann með daglegt stress,
að ljúfur drengur lagði á sig
lítið ferðalag til þess
að koma í holu hlýja,
höfgum pabba sínum hjá.
Kúra sig í kotið hálsa,
kærleiksorðin þurfti fá.

Lítill Drengur


| anna | 12:25 |
comments

Var einusinni ljós og myndarlegur, er enn ekki farinn að skilja merkingu lífsins, og á afmæli í dag.

Takk fyrir lagið happy

Þó það hafi ábyggilega ekki verið ætlað mér embarassed

Nr. 1 | posted by: Þór | 24.03.2005 | 0:02:19 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web