Fimmtudagur, 24. mars 2005
Hvað þarf maður að gera til að gera gott betra? Svarið við þessari spurningu blasir við eftir að ég fór í nýju Nóatúnsbúðina í JL húsinu áðan.
Maður þarf að kveikja í því..
Þetta jaðraði við trúarlega lífreynslu að fara inn í gömlu góðu búðina mína*. Ég eyddi ekki löngum tíma þarna, enda þurfti ég ekki að versla mikið en það sem ég sá er ég mökk ánægð með og finnst hafa tekist mjög vel til að endurnýja verslunina. Fann reyndar ekki pecan hnetur en kom bara við í Melabúðinni á bakarleiðinni. Að sjálfsögðu voru til pecan hnetur þar. Hef sagt það áður.. maður finnur ótrúlegustu hluti í Melabúðinni.
Nú ætla ég að taka til og búa til gulrótarköku.
*ég á ekki Nóatún í JL húsinu en versla oftast þar, nema þegar ég versla í Bónus, Melabúðinni, 10-11 eða Krónunni. Þetta eru að sjálfsögðu alltsaman MÍNAR búðir. Látiði nú ekki svona..