Tyrkneski kjúklingurinn breyttist í krókódíla kjúkling þegar ég hafði zuccini með honum í stað belgbauna. Doddi borðar ekki krókódíla en mér finnst þeir æðislegir.
| anna | 19:53 |
comments
Piri Piri kjúklingur er fínn. Lítur reyndar út eins og einhver hafi sest ofan á hann, en þannig passar hann á heill á grillið. Mæli hins vegar ekki með kjúklingum sem hafa verið ofaldir á fiskafóðri. Gjaran slógi. Þá kemur lýsisbragðið í gegn. Hefurðu tekið eftir hvað beinin eru mjúk í kjúklingnum áður en þú setur hann í ofninn? Kjúklingar eru svona "Hans&Grétu" dæmi. "Make it big in a hurry." Beinvöxturinn nær einfaldlega ekki að hanga með. Eins og að skrúfa kroppinn af Gauja litla á sex ára krakkafætur.
Ég bjó til góða salatdressingu í kvöld. Here goes: kannski 4 msk. ab-mjólk, væn sletta matvinnslurjómi, hvítlauksduft í hóflegu magni, smá dass herbs de Provence (Pottagaldrar), nokkuð vel af parmesanosti úr dós (sveitó en virkar).
Dugði þó ekki til að koma grænfóðrinu ofan í börnin. Sigh.
Ég man það vel þegar ég bragðaði Aligator kjöt í fyrsta skipti. Það var í Motown City fyrir nokkrum árum. Liturinn var ekki ósvipaður og kjúklingur og bragðið jafnvel líka.
Í lok máltíðar var þrammað yfir á næsta bar. Downtown Detroit. Þar inni voru eingöngu blökkumenn og fór ekki á milli mála hver var Íslendingurinn - hvítur sem mjöll. Gerðist Igor það djarfur að bjóða heimamönnum birginn í billjard - og tapaði - kannski eins gott. Eða eru það bara fordómar.
Daginn eftir var ég upplýstur um hátt hlutfall glæpa í miðborg Detroit og þá áttaði ég mig á því afhverju lögreglan fylgdi okkur hvert fótmál þarna um kvöldið. Og beið eftir okkur þegar við komum út af barnum aftur. Engin smá þjónusta hjá Detroit Police Department.
Nr. 3 | posted by: igor |
4.03.2005 | 1:49:58 | [+] |
Ertu nokkuð að reyna að sannfæra okkur hin um það að það hafi ekki verið þú sem rændir The National Bank of Detroit þarna fyrr um daginn og varst eftirlýstur um gervöll Bandaríkinn?
Það var ekki verið að vernda þig karlinn minn heldur fylgjast með hverju þínu fótmáli.