Miðvikudagur, 30. mars 2005
Ég er búin að finna kjólinn.. nema ég á ekki von á að hann verði rauður. Það er of áberandi.
Þetta er náttúrlega allt á hugmyndastiginu ennþá. Ég hef aldrei teiknað kjól sem endar eins og fyrirmyndin. Ég þarf að breyta allt of mörgu áður en ég er ánægð með lokaútkomuna. Er samt eiginlega komin á þá skoðun að ég þurfi tvo kjóla því ég á ekki svartan.
Verður maður ekki að eiga svartan kjól líka?