Hliðar saman hliðar..
Sunnudagur, 13. mars 2005
Ég er búin að dansa í þrjá og hálfan klukkutíma straigt án þess að fara á klóið eða á barinn. Vöðvarnir í lærunum á mér eru on fire og mér er smá illt í hnjánum. Ég ætlaði í líkamsrækt á morgun en - as of now - er ég hætt við. Búin að taka út líkamsrækt helgarinnar og ef ég stend í lappirnar á morgun kalla ég mig góða. Ég á ekki von á því. Ágætt að hafa hjólastól á staðnum.
The power of the subconcios mind! Ég óskaði mér að dansa við einhvern í allt kvöld og Soffi kom to the rescue í þeim flottustu jakkafötum sem ég hef séð á ævinni. Þið verðið að skilja að ég hef aldrei séð Soffa í jakkafötum áður. Ég hef séð hann í bol, gallabuxum og strigaskóm enda vann ég með honum í þónokkurn tíma fyrir nokkrum árum. Hann er brilliant tæknimaður og hann kann að dansa. Það get ég vottað.
Ekki oft sem karlmaður dansar mig í spað. Harpa og Valdi beiluðu á Rex þó að Valdi hafi tekið nokkra í danskennslu í biðröðinni. Veit ekki hvort ég er með þetta rétt.. Harpa leiðréttir mig þá seinna.. "hliðar saman hliðar.. nei.. eitthvað...styðja? Man ekki en þetta var óborganlegt. Ég hefði nú alveg verið til í að taka smá hliðar saman hliðar með þeim á dansgólfinu..
Okkur Soffa langaði að dansa við diskó en fengum bara 80's endurvinnslu og R&B. Gáfumst upp á Rex og kíktum á Thorvaldsen til að sjá hvort eitthvað skárra væri í boði þar. Jesús kristur. Daddi diskó greinilega ekki á svæðinu heldur einhver plötusnúður að fríka út á skiptingunum.. það er þreytt. Fórum aftur á Rex eftir korter og fengum helvíti góða salsa syrpu undir lokin, djöfull var það gaman!
Ekkert diskó. Ekki eitt einasta lag! Ahh.. bíttar ekki. Það var ógeðslega gaman og ég held í alvöru talað að ég hafi aldrei dansað svona mikið í einni lotu. Takk fyrir kvöldið Soffi, you got moves! Ég skemmti mér rosalega vel!
Rýnirinn hefur sofnað í sófanum út frá sjónvarpinu. Hann er svo mikið krútt. Ég er verulega þreytt, hreinlega svíður í lærin og held ég sleppi því að vekja hann til að athuga hvort gifs er það eina harða sem er í boði á þessu heimili. Komið að mér að skríða yfir gólfið og uppí rúm...
Hold on! Þetta var: hliðar saman hliðar, lyfta, styðja!