Sunnudagur, 27. mars 2005
Ég ætlaði að skrifa um mig og mömmu og lífsreynslu sem við áttum saman í kvöld en þegar ég kom heim gerðist svolítið sem ég ætla frekar að skrifa um. Hitt krefst þess eiginlega að ég sé í spes skrif stuði.. og ég er ekki í þannig stuði því í millitíðinni gerðist svolítið sem.. ja.. miðað við fyrri skrif mín er það mjög ótrúlegt en engu að síður á disclaimerinn minn ekki við í þetta skipti.
Þegar ég kom heim tékkaði ég á símanum mínum og á honum var missed call. Símanúmer sem ég þekki ekki... þið vitið hvað ég er að fara.. en.. og ég veit hvað þið eruð að hugsa.. en.. no kidding.. missed call - nýtt númer. Á meðan ég settist niður við tölvuna til að kveikja hringdi ég. Því það hringir engin í mig nema þeir sem þekkja mig og ég var viss um að þetta væri einhver af stelpunum í einhverju partíinu að kalla mig á vakt eða eitthvað..
Það var karlmaður sem svaraði. Ég sagði "hæ, varst þú að hringja í mig?" "Nei.. þú varst að hringja í mig", svaraði hann. "Þú hringdir fyrst", sagði ég, "annars hefði númerið þitt ekki verið í símanum mínum". Þegar hann fattaði að ég var að hringja til baka þá fattaði hann hver þetta var "er þetta Anna Helgadóttir?". Hann var komin skrefi á undan mér.. því ég vissi ekki hver hann var, á akkúrat þessum tímapunkti.
Ég veit það hinsvegar núna og hann hringdi bara til að segja mér að hann sé búin að fylgjast með mér í smá tíma, finnist ég "rosalega falleg stelpa", hann býr einn.. og vill bjóða mér í leikhús.
Ég á.. real life.. bonified.. alvöru.. flesh and blood.. stalker. Hann býr meira að segja í næsta nágrenni! Viljiði friggin spá. Og hann veit ekki að ég er bloggari. WAHAHAHAHA
Ja.. ef hann veit það þá var hann allavega ekki að flagga því.
Óborganlegt.
Mér líður eins og ég sé í friggin BIG FISH bíómyndinni!
Væri viðeigandi reyndar.. ef lógíkin er að þú segir bara sömu lygasöguna nógu oft.. þá verður hún að veruleika. Þarf aðeins að ná mér.. og þá ætla ég að skrifa um bíóferðina sem ég fór í áðan. Besta bíóferð sem ég hef farið í langan tíma. Ég þarf bara fyrst að draga fyrir gluggana og leyfa þessu að sink in...
Mér finnst þetta ótrúlegt og ég er auðvitað að djóka. Maðurinn er ekki að stalka mig, held ég.
Ég gaf bílnum hans einu sinni start. hehehe
Maður á alltaf að hafa kapla í bílnum. Og skóflu. Þarf að fá mér svoleiðis...