Laugardagur, 19. mars 2005
Ég kveið því ekkert smávegis að fara að sækja Dodda í skólann og græja allt sem þurfti að græja fyrir kvöldið þegar ég var búin að vinna. Á leiðinni út í bíl svimaði mig og mér leið verulega illa. Hver haldiði að hafi mætt á svæðið á nýja bimmanum. Hann var búin að sækja Dodda í skólann, stöðvaði bílinn og opnaði hurðina fyrir mig. Ég settist inn í bíl og fór að gráta.
Ég var svo fegin og þakklát og svo þreytt og óglatt og svimaði og mér leið svo illa og..
Á meðan aðrir karlmenn hefðu líklega farið í vörn og spurt hver fjandinn væri að mér sýndi Lúí þessu mikinn skilning, tók utanum mig og sagði mér að "cheer up", þetta yrði ekkert mál, hann myndi sjá um þetta alltsaman, enda veit hann að þetta er búin að vera erfið vika hjá mér. Hann keyrði okkur heim og sendi mig í heitt froðubað. Þegar ég var búin að liggja í baði í hálftíma kom hann og nuddaði á mér hársvörðinn. Þegar ég steig uppúr baði var ég sem ný manneskja en hann tók ekki annað í mál en að ég legði mig aðeins, hringdi á Grillið og frestaði borðinu um tvo klukkutíma og sendi mig inní rúm.
Ég steinrotaðist og svaf til átta. Þegar ég kom fram beið mín pakki með bláum og gylltum borða á eldhúsborðinu. Í honum var dökkblár kjóll, háhælaðir skór við og lítill miði. Á honum stóð: "Þú verður glæsileg, eða ekki." Þegar ég var búin að lesa miðann blikkaði hann mig. Ég fór að hlæja. Hann hefur lag á að láta mér líða vel og hlæja. Það er ómetanlegt. Auk þess hefur engin karlmaður, hvorki fyrr né síðar gefið mér spariföt svona upp úr þurru auk þess sem þau passa á mig.
Mér líður soldið eins og prinsessu í Disney ævintýri og bíð bara eftir the villain sem kemur og skemmir alltsaman. Þangað til ætla ég að njóta hverrar sekúntu.
Á meðan ég svaf hafði hann tekið vídeó með krökkunum, pantað pizzu fyrir þau og komið frá sér pistli sem hann er búin að vinna að núna í tvo daga. Hann var að vanda sig enda heldur hann mikið uppá Nönnu, eins og fleiri. Vá. Nú skil ég hvað þessi eina vel gifta kona sem ég þekki er að tala um! Það er engin smá munur að hafa einhvern to fall back on þegar maður er útkeyrður og þreyttur. Auðvitað er hann að fara svolitlu offari, en vitiði.. mér finnst það bara ekkert leiðinlegt þó ég reikni nú ekki með að fá svona treatment á hverjum degi, enda væri það bara rugl.
Ég fullyrði að ég hef aldrei litið eins vel út og þegar ég steig út úr bimmanum fyrir framan innganginn á Radisson SAS áðan og að fara út að borða á Grillið er eitthvað sem allir ættu að gera minnst einu sinni á ævi. Þetta var æðislegt kvöld. Ég spurði hann hvað tilfefnið væri og hann yppti öxlum og sagði "bara.. mig langaði að bjóða þér út að borða".
Maturinn þarna er ólýsanlega góður og þjónustan superb. Fyrst var okkur fært sushi sem lystauka og svo fengum við laxa og humar "Ballontine" með sítrus-skelfiskssmjöri og tómatsultu. Næst kom þjónninn með einhvern fisk, man ekki hvað hann heitir en hann var með kartöflumauki. Mjög ljúffengur. Þá komu dádýralundir með pecan hnetum, ristuðum gulrótarturni, villisveppaskel og sætu kartöflumauki. Úff... vissi ekki að Bambi bragðaðist svona rosalega vel. Á eftir lundunum fengum við mjólkursúkkulaði mús "Bonne femme" með lychee sorbet. Ég held ég hafi aldrei smakkað annað eins. Maður lyngdi aftur augunum og gaf frá sér nautnalegar stunur á meðan þetta bráðnaði uppí manni. Þvílík snilld. Á eftir fékk hann sér kaffi og koníak á meðan ég drakk dry kók.
Útsýnið var svo dásamlegt og veðrið eins og best verður á kosið. Við löbbuðum heim á eftir og komum að krökkunum í æsispennandi playstation keppni. Hann er að koma þeim uppí rúm as "we speak".
Mér er ekkert smá illt í upphandleggnum. Ég er búin að klípa mig í hann svona þrjátíu sinnum í kvöld. Ég trúi ekki að þetta sé að gerast. Spyr mig aftur og aftur hvað ég hef gert til að eiga þetta skilið. Þú mátt alveg vita hvað ég er þakklát fyrir hvað þú ert frábær. Ég veit þú lest þetta. Takk fyrir æðislegt kvöld ástin mín.
Ég mun aldrei gleyma þessu.