Fimmtudagur, 17. mars 2005
Í gær fór ég á fund hjá félaginu Auði og var ekki komin heim fyrr en rúmlega tíu. Þetta var frábær fundur. Mér líður alltaf eins og ég hafi fengið innblástur í æð þegar ég hitti þessar konur. Fundurinn endaði á hláturæfingu, sem var snilld. Sumir sáu sér leik á borði og notuðu tímann á meðan ég var í burtu til að vinna. Þegar ég kom heim var búið að láta renna í froðubað með seyðandi ilmjurtum fyrir mig.
Rýnirinn er klár.
Við ætluðum að hitta fjölskylduna hans síðasta sunnudag en það datt uppfyrir þegar mamma hans ákvað að lengja dvöl sína í Frakklandi aðeins en nú lítur út fyrir að ég fái að hitta hana um páskana. Ohhh.. ég er eitthvað svo.. ég er smá stressuð yfir þessu. Málið er að mér líður bara alveg ágætlega svona "einstæðri" og það skelfir mig pínu að vera komin í sambúð, þó að ég sé í sambúð með manni sem er eins og hugur manns. Það er bara.. að vera fjárhagslega sjálfstæður, þurfa ekki að spyrja einn eða neinn um neitt. Hálfgerður einræðisherra.. hvað get ég sagt? It rocks!
Hann sýndi þessu mikinn skilning þegar ég talaði við hann í gær. Átti svosem ekki von á öðru. Sagði mér að ég mætti alveg vera einræðisherra áfram hans vegna, ég væri ekki að gera neitt sem færi í taugarnar á honum. Komumst að samkomulagi um að ég myndi halda mínu fjárhagslega sjálfstæði, hann myndi borga mér leigu og búa hjá mér undir mínu einræði. Allir sáttir.
Ég er samt pínu stressuð.
Ákvað í gær að ég ætla að fara til Kúbu um páskana á næsta ári. Bæði langar mig rosalega að fara þangað OG svo fer hver að verða síðastur að læra einhverja einræðistakta þar á bæ.