Föstudagur, 11. mars 2005
Ég fór næstum því að gráta þegar hann birtist með yfirvaraskegg, í gallabuxum, smekklegum herraskóm, skyrtu og dinner jakka. What a RIP OFF! Hann var búin að lofa mér að vera í rauða glimmer dressinu! Sýndist þetta fyrst vera Steinn Ármann eða Kiefer Sutherland.
Eddie Izzard er klæðskiptingur. Jú.. hann er fyndin en miklu fyndnari í kjól með blásið hár og varalit. Come on...
Neinei.. ég er bara að taka út smá frústreisjón vegna þess að af fimm hundruð manns.. þurfti ég auðvitað að setjast við hliðiná nítján ára beyglum sem drukku tad too much og voru með frammíköll og leiðindi allt helvítis kvöldið. Undir það síðasta voru þær farnar að leita að gsm síma og spekúlera í því hvar þær fengju meiri bjór. Þær yfirgnæfðu manninn með míkrafóninn. Meira að segja gæjarnir sem voru að reyna við þær voru farnir að segja þeim að þegja því þeir voru að hlusta á "kallinn".
Á tímabili missti ég alveg þráðinn vegna þess að ég var upptekin við að sjá fyrir mér hvað myndi gerast ef ég myndi taka glasið sem ég hélt á og keyra það aftan í hnakkann á þeirri sem sat með rassinn klesstan upp við lærið á mér. Ef hægt er að segja að manneskjan hafi setið.. hún meira.. lafði.
Ef ég er gömul kelling vegna þess að mér fannst þetta óþolandi þá er ég hamingjusöm gömul kelling. Vá hvað mig langar ekki að vera eins og þessar stelpur. Standupparnir fóru illa með píurnar og Eddie brilleraði. Bað þær að þegja "because if you don't you'll be knived after the show". Hann fékk ekki eins mikið applause allt friggin' kvöldið eins og þegar hann sagði þetta. Það segir kannski meira en þúsund orð.
Sá að Jude var rather annoyed, eins og allir sem sátu þarna í kring. Mér var þannig lagað slétt sama hvernig hann skemmti sér, var upptekin af því að reyna að heyra í Eddie fyrir "úúúúújé", "Eddie bestur", "oh ég er svo full", "hvar er síminn minn?", "er til meiri bjór?".
Á eftir fórum við baksviðs og hittum Eddie sem fékk lánaðan varalit hjá mér, hann er haust eins og ég. Honum fannst jakkinn minn æði, en við erum því miður ekki í sama númeri. Fínn náungi og ekki síður fyndin up close and personal. Skutlaði þeim báðum uppá hótel stuttu síðar og fór heim, má ekki vera að þessu. Þarf að fara að sofa. Komin með nýja nögl og þarf að vinna á morgun.
Bygons.