And so it is..
Föstudagur, 04. mars 2005
Closer.
Einhverra hluta vegna minnti þessi mynd mig á draum sem mig dreymdi um daginn sem er eiginlega eins og stutt.. mynd.
Maður biður mig að hitta sig á hóteli. Ég samþykki. Ég ligg á rúminu, nakin, hendurnar bundnar við rúmgaflinn með snæri og það er bundið fyrir augun á mér. Ég hef aldrei séð manninn sem ég er að fara að hitta og ég veit ekki hver það er.
Ég veit samt hvað hann hugsar. Ég heyri þegar lykli er snúið í skránni og ég heyri að hann lokar hurðinni og hikar augnablik þegar hann sér mig. Ég heyri það á fótatakinu þó að það sé teppi á gólfinu. Hann heilsar og röddin er alveg eins og ég hafði ímyndað mér. Hann kemur til mín og losar hendurnar mínar. Ég snerti andlitið hans og þegar hann ætlar að losa um klútinn sem er bundin fyrir augun á mér færi ég hendurnar mínar á hans og stoppa hann.
[klippt for pg rating]
Það er ekki fyrr en hann er að fara og ég heyri hann opna hurðina sem ég losa klútinn og sé baksvipinn. Af því ég vil hafa það þannig.
Eða var þetta dagdraumur?