www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Veðrið út vikuna
Miðvikudagur, 09. febrúar 2005

Doddi kemur mér stundum á óvart, eins og í morgun. Hann vakti mig uppáklæddur í ljónabúninginn sinn og spurði mig hvenær við gætum farið af stað. Ég sagðist þurfa að klæða mig og borða fyrst.

Þegar ég var að klæða mig sagði hann mér frá því að það væri svo vont veður úti og það yrði þannig næstu daga. "Ha?", spurði ég hissa, "af hverju segirðu það?". "Vegna þess að þegar það eru fréttir kemur stundum mynd af Íslandi og ef það er snjór á myndinni þá er snjór úti og kallinn sagði að það yrði snjór næstu daga", svaraði Doddi eins og ekkert væri eðlilegra.

Ég ætti kannski að fara að fylgjast með veðurfréttum - eins og sex ára sonur minn...

Annars finnst mér að það ætti að færa öskudaginn. Hafa hann snemma að hausti frekar en á þessum árstíma. Jóhanna er niðrí bæ að syngja fyrir nammi. Ég ætla að vera mamma dauðans og banna massa nammiát þangað til um helgina. Annars verður mikið fjör hjá krökkunum um helgina því þau eru að hjálpa pabba sínum að flytja í nýja íbúð með Þóru og sirkúskettinum Hrapp. Jóhanna getur ekki beðið því hún fær langþráð sér herbergi og Doddi tilkynnti mér hróðugur að nú ætti hann kött.

Jóhanna hefur reyndar skotið á mig óspart síðan þessar breytingar komu til og spyr mig hvenær ég ætli að skaffa henni sér herbergi líka. Ég hef gefið henni loforð um að það verði að veruleika áður en hún verður þrítug.

Um helgina ætla ég í massíva endorfínframleiðslu og liggja í leti þess á milli. Fer kannski líka í bað eitthvað..


| anna | 13:26 |
comments

Hér hefur engin farið út úr húsi í dag í tilraun til þess að syngja fyrir utan eiginmanninn sem fór í vinnunna snemma í morgun og söng yfir verktökum í allan dag. Við mæðgur notumst við tölvu til þess að tjá okkur. Sitjum hver í sínu herbergi með nettengdar tölvurnar og skrifumst á í msn enda allar raddlausar með hita og ógeðslegt kvef, hálsbólgu, beinverki, vöðvaverki og allt tilheyrandi. Vonumst bara til að lifa nóttina af og morgundagurinn verði betri. Húsbóndinn hefur aldrei upplifað annað eins - þögnin yfirþyrmandi enda hafa konurnar í lífi hans aldrei verið þekktar fyrir annað en einstaka "tal"hæfileika! shy
Eitt er víst að Doddi hefur rétt fyrir sér - það snjóar og snjóar úti.

Nr. 1 | posted by: edda | 9.02.2005 | 18:13:42 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web