Þriðjudagur, 01. febrúar 2005
Í morgun vaknaði ég rétt fyrir átta. Fór fram úr rúminu og kíkti inn til Dodda. Hann hóstaði í svefnrofunum, var við það að vakna.
Ég klæddi mig, burstaði tennurnar og hamdi hárið á mér með teygju. Ég er með allt of liðað hár. Ef ég sofna með það blautt, sem gerist oftar en ekki, þá krullast það allt og stendur út í allar áttir. Ég er að borða allt of hollan mat augljóslega. Ef ég myndi lifa á fitu og sykri myndi hárið á mér lyppast niður, eins og það á að gera. Bygons.
Ég stóð yfir hafragrautspottinum þegar dyrabjallan hringdi og Tinna kom í heimsókn. Hún er farin að rata sjálf á milli og hún er svo ofur gáfaður hundur að hún veit hvaða dyrabjöllu ég á. Æ.. eða þannig. MAD kom með hana.
Hún var í pössun hjá okkur fyrir hádegi. Doddi hafði eytt það sem af var morgninum í að sífra og gráta yfir verkjum í hálsinum. Fúlsaði samt við hungangsvatninu sem ég bjó til fyrir hann en borðaði hafragrautinn. Hef séð hann borða hafragraut með betri lyst.. en hann vissi af hrísmjólk inní ísskáp sem pabbi hans hafði sent með honum heim. Ég sýndi enga miskunn. Hann skyldi klára hafragrautinn og svo mátti hann fá hrísmjólkina. Ég er ómenguð illska, þetta vita börnin mín.
Tinna var rosa kát þegar hún kom og rétt á meðan MAD var að kveðja.. en þegar hann var farin stóð hún við hurðina, urraði og gelti ræfilslega.
Ég byrjaði á að setja vatn í skál og hún fékk sér að drekka. Svo settist ég hjá Dodda inní stofu og kallaði á hana. Hún leit á útidyrahurðina og urraði, leit svo á mig, svo á hurðina... en endaði á að koma til okkar Dodda.
Hún er algjör dúlla og fullkomið aristókrat. Situr eins og hefðarfrú á arminum á stólnum í stofunni og fylgist af athygli með því sem gerist í kringum hana. Stundum stekkur hún upp og sleikir mann í framan. Ég kann það nú eiginlega ekki ef ég á að vera alveg hreinskilin, en hún er svo mjúk og hlý og góð og yndisleg.
Ég gaf henni smá ís í skál sem hún borðaði og svo fór hún í rannsóknarleiðangur um íbúðina. Í hvert skipti sem hún sá útidyrahurðina ýlfraði hún eða urraði á meðan hún starði á hana í smá stund, að vona að húsbóndi hennar myndi koma inn um dyrnar.. en henni varð ekki að ósk sinni og hélt áfram rannsóknum sínum. Ég held að hún hafi fullkannað íbúðina að baðherberginu undanskildu, enda var þvottavélin í gangi með óhljóðunum sem henni fylgja.
Nú er hún farin heim í bili. Gaman að fá svona gest í heimsókn.