www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Open season!
Þriðjudagur, 22. febrúar 2005

Harpa er búin að hundskamma mig á msn. Sagði mér að hætta þessu helvítis væli, aldrei hafi hún nennt að eyða tíma og orku í svona volæði.

Ekkert að marka hana auðvitað. Þetta er kona sem myrðir varnarlaus dýr og étur þau!

Reyndar hef ég étið nokkur dýr hjá henni líka og var að vonast til þess að þessar kanínur færu nú að fjölga sér svo ég gæti étið eina eða tvær. Bygons.

Halldór hringdi í mig og byrjaði á að bjóða fram aðstoð sína. Sagðist geta sent mér menn ef mér leiddist. "Annars er augnmeiðandi útlitsfötlun, karakterleysi þitt og illt innræti, tilfinningalegur kuldi og ruddaskapur nóg til að sálarmyrða sterkustu menn, og ég þekki nokkra sem ég þarf að ná mér niðri á. Verst að það nennir engin að eyða tíma með þér svo þú nærð aldrei að gera neinn varanlegan skaða."

Svo spurði hann mig hvort ég kæmi í heimsókn á eftir.

Ég er þreytt og ætla snemma að sofa.


| anna | 21:57 |
comments

Wahahahaha Anna laughing
Ég er hrædd um að þú hafir tekið hlutina úr samhengi sem ég var að predika yfir þér.

Það vita allir (a.m.k. þeir sem lesið hafa bloggið mitt) að ég er sérfræðingur í væli og raunar fer mestur tími minn í slíka iðju.

Ég sagðist hinsvegar aldrei hafa lagst svo lágt að eyða tíma og orku í ástarsorg. Og skammastu þín svo bara fyrir að segja að það væri ekki að marka því ég hefði aldrei komist út fyrir túnfótinn heima. clown

Það er ekki satt, ég fór einu sinni til Reykjavíkur þegar ég var 17. ára angel

Nr. 1 | posted by: Harpa | 22.02.2005 | 22:42:42 | [+] |

Það er einmitt kjarni málsins góan mín. Ef þér tækist nú einu sinni að setja hlutina í rétt samhegni værir þú ekki svona lítil og brothætt. Hættu bara þessu helvítis væli, farðu í ræktina 5 sinnum í viku (þar sem þú hefur engar rollu....ur til að eltast við) Við það mun þér vaxa styrkur.

Þessar líkamlegu kvalir sem þú minnist á eru af sálrænum toga, ég sem þinn einka"réttar"geðlæknir er löngu komin með útskýringarnar á þeim toungue

Til Reykjavíkur sautján og aftur eftir hálfan mánuð angel

Nr. 2 | posted by: Harpa | 22.02.2005 | 22:58:29 | [+] |

Þetta er ekki sálrænt. Það er ekki séns.

Nr. 3 | posted by: anna | 22.02.2005 | 23:09:31 | [+] |

kvaðakvaða látiði konuna í friði með sína ástarsorg.. þetta er vel þekkt megrunarleið enda fátt sem virkar betur wink

Nr. 4 | posted by: Væla V | 23.02.2005 | 10:02:06 | [+] |

Jæja, búinn með "Shutters Island"? Hvað með Janet Evanovich næst? Meira húmor en krimmi. Trúverðugleikinn aukaatriði, meira svona uppákomur og skondnar athugasemdir. Svipuð skúffa og Carl Hiaasen.

Nr. 5 | posted by: Refurinn Loki | 23.02.2005 | 10:58:47 | [+] |

Ég er búin með shutter island. Kláraði hana á sunnudaginn og fannst hún bara allt í lagi. Kom á óvart endirinn. Næst kaupi ég mér Hiaasen. Einhver titill sem þið mælið með?

Prófa ég Janet næst.

Nr. 6 | posted by: anna.is | 23.02.2005 | 11:49:59 | [+] |

Síðast las ég "True Crime" eftir Andrew Klavan. Eftirminnileg. Vissi ekki að búið er að filma hana með Clint Eastwood. Nei, það er sama hvað valið er eftir Evanovich. Aðalkarakterinn er kona, ágætis tilbreyting. Textinn flýtur vel hjá henni, persónurnar ýktar og yfirdrifnar, en eftirminnanlegar. Svona eins og amman. Plott og trúverðugleiki er aukaatriði. Hiassen fléttar gjarnan saman pólitískri spillingu og umhverfisverndarspjöllum í Flórída. Það er alltaf skrautlegt gallerí þarna, og svona hefðbundinn uppbygging með hetju, skúrk, smá rómantik og smá aksjón. Hiassen er líka góður að halda dampi út í gegn og endirinn oft kostulegur.

Nr. 7 | posted by: Refurinn Loki | 23.02.2005 | 12:26:12 | [+] |

Sumt get ég ekki lesið. Hef aldrei getað lesið Stephen King, nema smásögurnar. Hann eyðir allt of miklum tíma í undirbúning og tekst ekki að kveikja áhuga hjá mér til að festa mig í textanum. Ég þarf að fá áhuga á fyrstu 20 síðunum. Auk þess hreinlega þoli ég ekki hvað endirinn er oft ódýr hjá King.

Ég er fljót að lesa, nenni því hinsvegar sjaldnast, en dett niður í lestrar maraþon occasionally. Yfirleitt er það þegar ég má ekki hugsa og ef ég hef ekkert að gera þá hugsa ég. Þetta er auðvitað bara flótti en the way I figure.. ef ég les eina "fagurbókmennt" á móti hverjum sex krimmum er þetta í góðu lagi. Ég nenni bara ekki að lesa leiðinlega krimma og ég nenni allra síst að lesa ástarsögur. Gefið mér vel nógu vel skrifað eitthvað sem er twisted, sick og spennandi. Kórónið það með óvæntum endi sem gengur upp - og ég er ánægð.

Mér fannst Shutter Island ganga upp. In a twisted and sick sort of way. Much to my liking. Ekki gleyma að kannski skildi ég þetta bara ekki. Ég á það líka til, að skilja hlutina einhvernvegin allt öðruvísi en til er ætlast. Það virkar.

Nr. 8 | posted by: anna | 23.02.2005 | 12:54:08 | [+] |

Ég er að plata. Það þarf að festa mig á fyrstu 5-10 síðunum.

Nr. 9 | posted by: anna | 23.02.2005 | 12:56:19 | [+] |

Native Tongue finnst mér best af Hiaasen, Tourist Season fast á hæla henni. Eldri bækurnar betri en þær nýrri.

Evanovich er víst góð, hefur þynnst svolítið út (eins og fleiri). Flestir karlmenn fíla hana ekki eins vel, ná ekki upp í suma brandarana

Nr. 10 | posted by: Hildigunnur | 23.02.2005 | 22:17:28 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web