www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Of mikið salt
Þriðjudagur, 08. febrúar 2005

kvein.jpg

Scrabble getur verið skemmtilegt. Talaði við netstjóra í dag sem sagði mér að hann hafi mjög gaman að scrabble, þá sérstaklega ef fólk reynir að koma með rök fyrir því af hverju eitthvað er leyfilegt orð. Rökin sem ég fékk fyrir þessu orði voru alveg að gera sig. Þar sem unglingurinn á heimilinu les síðuna mína læt ég fólk sjálft um að finna út réttu skýringuna.

Það lang besta við kvöldið í kvöld var að ég lagaði rennilásin á ljónabúningnum hans Dodda. Ég skipti ekki um hann, ég lagaði hann. Tók mig 3 mín. Mig var búið að kvíða fyrir ísetningu á þessum rennilás núna í tvö ár. Þar fór mikil orka til spillis.

Það lang versta við kvöldið var maturinn. Hann var góður, segi það ekki.. en á hverju ári man ég eftir því hvað saltkjöt fer illa í mig og á hverju ári heiti ég mér því að borða þetta aldrei aftur. Á hverju ári gleymi ég því.

Helvítis djöfulsins andskotans msn rusl.

Ég er þreytt og með of mikið af salti í líkamanum.


| anna | 23:50 |
comments

Bara af því að unglingurinn á heimilinu er að lesa þetta. Þá segir maður "ég var búin að kvíða ísetningu"

Nr. 1 | posted by: Úllen Dúllen | 9.02.2005 | 2:45:17 | [+] |

Vinsæll leikur í Bretlandi þegar ég var þar við nám var "Dirty Scrabble". Þá voru öll orð leyfileg svo lengi sem spilari gat komið með nógu sannfærandi rök fyrir því að þau væru klámfengin eða dónaleg (á einhverju máli). Það getur verið mjög skemmtilegt á 4. bjór eða svo.

Nr. 2 | posted by: Helgi Briem | 9.02.2005 | 9:51:27 | [+] |

Aha! Dirty Scrabble! Við Halldór spilum nú soldið í þeim dúr oft á tíðum. Langbesta orðið sem hann hefur fundið upp er orðið "görnuð".

Ég dó úr hlátri þegar hann útskýrði fyrir mér, með því að nota orðið í setningu, að þetta þýðir.. eh.. rear entry.

Þetta orð á heima í orðabók.

Nr. 3 | posted by: anna.is | 9.02.2005 | 10:11:26 | [+] |

Lærði annars nýtt enskt orð um dagin. Eiginlega með því verra sem ég hef heyrt. ekki viss um að það sé þess virði að koma upp með íslenska þýðingu en læt það flakka. Felch. Anyone?

Nr. 4 | posted by: ath | 9.02.2005 | 18:47:33 | [+] |

Á mínu heimili eru spilaðar ýmsar útgáfur af skrabbli. Dónaskrabbl er náttúrulega klassiskt en auk þess er rugluskrabbl vinsælt. Rugluskrabbl gengur út á að búa til og finna skýringar á skemmtilegum orðum, þó er skilyrði að það falli vel að beygingarkerfinu. Mitt uppáhald er samt tíkarskrabbl en þar er markmiðið að finna orð sem lýsa best hjásvæfum, fyrrum kærustum, barnsfeðrum og öðrum þeim karlmönnum sem ástæða er til að finna viðeigandi heiti eða finna upp nýyrði um.

Nr. 5 | posted by: eva | 9.02.2005 | 18:51:24 | [+] |

Ég er greinilega algjör amatör þegar kemur að skrabbli. Á margt eftir ólært! smile

Nr. 6 | posted by: anna | 10.02.2005 | 18:02:15 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web