Laugardagur, 05. febrúar 2005
Það tók mig ca 5 mín að sofna í gærkvöldi.
Í dag fer ég að kaupa bremsuklossa undir bílinn minn. Á morgun fæ ég lánaðan bílskúr í Mosfellsbæ og Dórið ætlar að kenna mér að skipta um bremsuklossa og afturljós. Í næstu viku ætla ég að láta skoða bílinn minn. Hefði átt að gera það í júní... betra er seint en aldrei.
Það væri hinsvegar alveg classic ef þeir klippa af bílnum í millitíðinni. Ég á það svosem alveg skilið.
Var ég búin að skrifa um það þegar ég kom með Dodda að bílnum mínum niðrí bæ og sæti stöðumælavörðurinn var að leggja lokahönd á sektarmiðann? Ég borga ekki í stöðumæla. Þetta var rétt fyrir jólin. Ég opnaði hurðina fyrir Dodda og sagði honum að fara inn, sem hann gerði. Svo horfði ég þegjandi á stöðumælavörðinn.
Stöðumælavörður: "Þú borgaðir ekki"
Anna: "nei, það er rétt, ég borgaði ekki"
Stöðumælavörður: "maður á að borga, þú veist það"
Anna: "ég veit"
Stöðumælavörður tók sér góðan tíma í að horfa ásakandi á mig. Ég horfði til baka og beið eftir að fá sektina.
Stöðumælavörður: "hérna.. taktu þetta" Rétti mér sektarmiðann ásamt frumritinu, sem sagði mér að hann ætlaði að sleppa mér. Ég varð mjög hissa to say the least. Átti ekki von á þessu.
Anna: "kærar þakkir"
Stöðumælavörður: þagði og var ennþá með hint af hörkusvip
Anna: brosi "ég hefði ekki rifið kjaft"
Stöðumælavörður: brosti til baka "gleðileg jól"
Anna: "gleðileg jól"
Hver segir að stöðumælaverðir hafi ekki hjarta. Doddi var næstum farin að gráta enda varð hann vitni af þessu show-down-i. Þegar ég kom inní bílinn spurði hann "hvað vildi þessi lögga mamma?"
Annars var Doddi með meiddi í gær og sífraði endalaust þegar ég kom að sækja hann í skólann. Ég sagði honum að bíta á jaxlinn. Þá setti hann hausinn út á hlið og glefsaði út í loftið. "mamma ég get það ekkert" Eftir smá tíma komst ég að því að hann var ekki að reyna að bíta á jaxlinn. Hann var að reyna að bíta í öxlina. Go figure...