www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Litlu ljósálfarnir mínir
Miðvikudagur, 23. febrúar 2005

Á meðan ástarlíf mitt er á gjörgæslu blómstrar samband Dodda við kærustuna sína, sem hann ætlar þó ekki að giftast. Hún hefur gist hjá okkur undarfarnar tvær nætur og eina skiptið sem kastast hefur í kekki var við matarverðarborðið þegar Doddi mælti: "Eydís.. ekki kyssa mig með munninn fullan af mat". Hún brosti bara stríðnislega og kyssti hann á handabakið. Doddi ygldi sig og hló.

143_4377.jpgÞað stóð til að Eydís myndi gista eina nótt, mánudagsnóttina, en þegar hún vaknaði á þriðjudagsmorguninn spurði hún, með stýrur í augunum, hvort hún mætti nokkuð gista aftur. Mamma hennar er í útlöndum og auðvitað má hún vera aðra nótt ef stjúpi hennar leyfir það. Að sjálfsögðu.

Í gær tók ég mynd af þeim sofandi því mér finnst þau svo mikil krútt og í morgun dó ég næstum úr hlátri þegar ég hlustaði á Dodda vekja Eydísi, því Eydís kemur frá fyrirmyndar heimili og fer að sofa klukkan átta, ekki hálf tíu eins og Doddi, og þó ég hafi sent þau upp í rúm bæði kvöldin klukkan átta þurftu þau að ræða heimsmálin áður en þau festu svefn. Það tók töluverðan tíma. Eydís lá í morgun eins og sleeping beauty og Doddi var að klæða sig í buxurnar þegar hann byrjaði..

"Vaknaðu Eydís.. ætlarðu ekki að fá að borða?", smá pirringur í röddinni - meira þreyta. "Eydís.. Eyyyydís", potaði aðeins í hana - komin í buxurnar og byrjaður að klæða sig í peysu. "Ahhh mmm" heyrðist í Eydísi og hún kom sér betur fyrir undir sæng. "Eydís", Doddi orðin ákveðnari, "ef þú kemur ekki á fætur færðu ekkert að borða og við verðum sein í skólann". "Ég er þreytt", umlaði Eydís. Doddi ýtti blíðlega í hana og hvíslaði: "vaknaðu.. komdu að leika".

Eydís var komin frammúr tveimur mínútum síðar, klæddi sig, borðaði og fór að leika við Dodda.

Þau eru reglulega góðir krakkar.


| anna | 12:37 |
comments

Ae va hvad thetta er saet mynd og saga af theim smile

"Fyrirmyndarheimili"??? laughing Hardly

Uff hvad eg sakna hennar..... silent

Nr. 1 | posted by: Maria | 24.02.2005 | 9:36:12 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web