Föstudagur, 25. febrúar 2005
Ég er komin á G-5 og með lyklaborð sem er fucked up - vantar límmiðana. Breytir engu, ég kann á lyklaborð og er ekki mikið að horfa á það hvort sem er þegar ég er að pikka. Búin að finna réttan stað fyrir fingurna í bili.
Byrjaði auðvitað á því að vera rosalega skeptísk á þetta allt saman. Lyklaborðið ekki nógu gott og þetta og hitt að. Nú eftir ca 10 mín notkun verð ég að segja... heaven.. I'm in heaven.. lalalalalalalalalalala
Ætli það sé hægt að stilla hvað lyklaborðið er hratt? Það er það eina sem ég hef útá þessa græju að setja. Mér finnst bendillinn ekki færast nógu hratt þegar maður notar örvarnar.
Djöfull er þetta mega kúl skjár!
Best að fara að fikta...