www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Change of plans
Fimmtudagur, 24. febrúar 2005

Vinkona mín hringdi í mig í kvöld og spurði mig hvaða mynd ég væri alltaf að fjasa um á síðunni minni. Notebook hvað?

Hún kom áðan og fékk myndina lánaða. Drukkum saman 1l af kók og hún benti mér á frábæra lausn á herbergjavandræðum fjölskyldunnar. Lausn sem ég mun hrinda í framkvæmd fyrir fermingu frumburðarins. Hún gerði líka svolítið annað. Hún sagði mér að hún hefði aldrei séð mig líta svona vel út. Það er eitthvað sem maður þarf að heyra annað slagið, sérstaklega þegar maður á inni fyrir því og hefur ekki heyrt það lengi. Ég er náttúrlega helvíti fljót að taka við mér þegar ég fer að æfa, enda gamall breikari.. hehe. Komin með mitti og alles.

Helgin mun fara ögn öðruvísi en ég reiknaði með. Kemur í ljós að ég þekki alveg fullt af stelpum sem hafa gert vart við sig undanfarna daga. Föstudagurinn fer í Króatíuferðarundirbúning með stelpu sem fór þangað í fyrra og ætlar að kenna mér the ropes. Á laugardagskvöldið koma elstu vinkonur mínar í heimsókn, ég ætla að elda og svo munum við drekka og kjafta fram á nótt. Ef þannig fílingur verður í gangi ætlum við að skella okkur útá lífið, en ég á reyndar ekki von á því.

Ég mun ekki hafa neinn tíma í fyrri plön mín um helgina þar sem ég þarf líka að gera við bíl, stytta buxur fyrir afa og.. já.


| anna | 22:51 |
comments

Hvað eru þær gamlar, elstu vinkonur þínar wink angel

Nr. 1 | posted by: Harpa | 24.02.2005 | 23:03:59 | [+] |

169 og 156 wink

Nr. 2 | posted by: anna | 24.02.2005 | 23:04:31 | [+] |

Iss það er ekkert clown

Nr. 3 | posted by: Harpa | 25.02.2005 | 0:20:47 | [+] |

Þetta er fyrri-lífa dæmi sko..

Nr. 4 | posted by: anna | 25.02.2005 | 8:19:05 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web