Mánudagur, 14. febrúar 2005
Ég sofnaði fyrir klukkan níu í gærkvöldi. Ég hefði sofið yfir mig í morgun ef mamma hefði ekki farið á ónefnda heilsugæslustöð eldsnemma og verið vísað út vegna þess að hún gleymdi veskinu. Hún var svo reið að hún hringdi í mig til að pústa og vakti mig klukkan korter yfir átta.
Ef hún hefði ekki gert það hefði ég sofið yfir mig.
Ég vil af þeim sökum senda þakkir til þessarar ónefndu heilsugæslustöð.
Svaf furðulega í nótt. Vaknaði þversum í rúminu með báðar sængurnar kuðlaðar utanum mig eins og slöngur og annar koddinn var á gólfinu. Ég er ennþá þreytt.