Sunnudagur, 06. febrúar 2005
Líkamsrækt í gær og í dag. Ég svitna svo mikið og svo óhugnalegri fýlu að það er skelfilegt. Leikfimifötin fara beint í þvott þegar ég kem heim til að ég stinki ekki upp alla íbúðina með þessum viðbjóði. Ef ég væri með skott myndi ég halda að ég væri skunkur.
Þetta meikar rosalega mikið sense allt í einu. Auðvitað þurfti ég að svita út allt ógeðið sem ég hef innbyrgt í gegnum tíðina. Koffeinið, nikótínið, tjöruna, blásýruna og allan hinn viðbjóðinn.
Ah.. þvílíkt og annað eins. Mér líður svo vel. Eftir æfinguna í dag gaf MAD mér boozt, sem er skyr og banani og pera og eitthvað fleira. Ávaxtasafi sýndist mér. Ég fór heim og uppí rúm að lesa. Fannst eins þetta boozt væri að smjúga um mig alla. Inní vöðvana einhvernvegin. Eiginlega eins og þeir væru að éta þetta upp inní mér. Ég varð svo þreytt að ég lagði mig. Vaknaði hálftíma síðar og leið eins og ég væri í vímu.
Ég fór með appelsínuhúðadrepikremið mitt í dag og bar á promblem areas. Sumsé allan líkamann. Rassinn á mér hefur lyfst um einn sentimeter og ég er að léttast. Þetta er allt að koma. Hvað var ég búin að segja.. vika og ég verð orðin fín! - Eða eins fín og ég get orðið..
Mér líður allavega betur en oft áður. Ég held ég sé endorfínfíkill og teygjufíkill. Mér finnst æðislegt að teygja. Það mun vera perrinn í mér. Gott/vont...
-sem minnir mig á.. ég þarf að fara til tannlæknis bráðum.