www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
And there it is..
Þriðjudagur, 22. febrúar 2005

Ég var fyrst að spá í að vorkenna mér í nokkrar vikur. Liggja uppí rúmi og væla eftir vinnu og spara augnhreinsikremið en eftir tvö svoleiðis kvöld átta ég mig á því að það er bara tótal rugl að gera þetta svona ómarkvisst. Kemur sér vel að hafa farið á tímastjórnunarnámskeið.

Vill svo heppilega til að ég pantaði mér ákveðna bíómynd á amazon um daginn og skilst að hún muni rata í mínar hendur fyrir helgi. Ef það er eitthvað réttlæti til í heiminum þá gerir hún það því þetta er rómantísk, ástar drama sem garanterar táraflóð. Hittist líka svo þægilega á að þetta er pabbahelgi svo ég mun hafa íbúðina útaf fyrir mig. Get eigrað um á náttfötunum með úfið hárið og snýtt mér í tíma og ótíma milli þess sem ég brest í óstöðvandi grát sem endar með höfuðverk og sáru nefi. Það eru engar líkur á því að karlmenn komi til með að ónáða mig um helgina og ef þetta er ekki rétti tíminn to bring out the big guns.. þá veit ég ekki hvað.

Ís, nammi og klósettpappír í gámavís. Ég kem ekki til með að nenna að klæða mig eða þrífa. Mun leitast við að gráta þangað til ég gubba og þá græt ég og vorkenni mér yfir því hvað það er ógeðslega vont að gubba. Svo græt ég yfir því hvað heimurinn er óréttlátur og ógeðslegur allur saman. Svo græt ég yfir því að það er ryk á húsgögnunum mínum og ló undir rúmi. Á endanum græt ég.. af því bara.

Ég held að þetta geri mér ekkert nema gott. Verst hvað ég er lystarlaus. What the hell.. ég sleppi þá bara ísnum. Get grátið yfir því líka.

Ég á eftir að vera lítil, einmana, hrædd, leið og allt það... but what are you gonna do?

Pabbi sagði mér einu sinni frá því að einn veturinn voru hann og mamma rosalega blönk og allt gekk á afturfótunum hjá þeim, sama á hvaða vígstöðvum.

Einn dag sátu þau saman í strætó, af því bíllinn fór ekki í gang enda veðrið búið að vera ömurlegt. Þau sátu þreytt og pirruð í strætó þegar lagið "Here comes the sun" byrjaði í útvarpinu. Ekkert merkilegt í sjálfu sér, nema um leið og söngvarinn söng þessa setningu "here comes the sun", rofaði til og strætisvagninn bókstaflega fylltist af sól og pabbi og mamma litu á hvort annað og brostu.

Ég man alltaf eftir þessari sögu vegna þess að það skiptir svo miklu máli að geta brosað þegar allt virðist vera á leiðinni til helvítis og engin leið virðist sjáanleg út. Það styttir alltaf upp á endanum og sólin kemur alltaf aftur.

-Nema náttúrlega þegar hún springur í tætlur og svarthol étur jörðina upp. Hún mun væntanlega ekki sjást mikið eftir það...

Here comes the sun,
here comes the sun,
and I say it's all right

Little darling,
it's been a long cold lonely winter
Little darling,
it feels like years since it's been here
Here comes the sun,
here comes the sun
and I say it's all right

It's all right


| anna | 17:37 |
comments

Ég lofa að sólin springur ekki í þessum mánuði. Er jafnvel að hugsa um að taka svo stórt upp í mig að lofa að hún verði ekki sprungin í vor. wave

Nr. 1 | posted by: beggi dot com | 22.02.2005 | 17:49:01 | [+] |

Sjáum til..

Nr. 2 | posted by: anna | 22.02.2005 | 17:58:41 | [+] |

það er ekki víst að þú getir séð svo mikið til ef sólin verður sprungin, en sjáum samt til.

Nr. 3 | posted by: Atviksorða-Anna | 22.02.2005 | 20:54:21 | [+] |

Því síður ef svarthol verður búið að gleypa jörðina. Æ ekki bögga mig. I have a headache...

Nr. 4 | posted by: anna | 22.02.2005 | 20:56:25 | [+] |

skilið. No more böggs.

Nr. 5 | posted by: Atviksorða-Anna | 22.02.2005 | 22:06:19 | [+] |

Írsk kæruleysistónlist virkar nú betur á mig í þessum aðstæðum.

"Það elskar mann sko ekki nokkur kjaftur
nema ef að maður sjálfur skyldi gera það"

Þannig er það nú bara og ekkert annað í stöðunni að gera en að reyna að finna sér eitthvað skemmtilegra að fást við. Tekur mesta tregaklámið úr manni að taka þann pól í hæðina.

Nr. 6 | posted by: Eva | 23.02.2005 | 13:34:13 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web