www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Tík
Mánudagur, 31. janúar 2005

Ég svaf yfir mig í morgun. Vaknaði fyrst klukkan sjö, næst klukkan 8:57. Var mætt til vinnu tíu mínútur yfir níu.

Ég skil ekkert í þessu, ég var sofnuð rétt rúmlega tíu í gær. Asnalegt. Þarf ég meiri svefn en ungabörn?

Fékk gesti í mat í kvöld. Maður og ástin í lífi hans. Hún er ekki hávaxin og ekki langskólagengin, þó hún hafi farið á eitthvað námskeið fyrir ári síðan - held ég. Hún er hinsvegar rosalega sæt og mjög vingjarnleg. Mér líkar a.m.k. mjög vel við hana. Gaman að elda fyrir fólk sem fúlsar ekki við matnum. Eftir hefðbundið borðhald fengum við okkur sæti í stofunni. Þau sátu í einum stólnum og kysstust og keluðu á meðan ég reyndi að finna eitthvað til að segja. Þegar ég datt niður á umræðuefni sem honum líkaði ýtti hann henni frá sér og spjallaði við mig þangað til hann missti áhugann, kallaði þá á vinkonu sína og hún settist klofvega ofaná hann.

Það sem hún veit ekki er að ég dreg þennan mann á tálar hvenær sem færi gefst. Í kvöld dró hún hann hinsvegar heim áður en mér tókst að tæta hann úr fötunum.

Helv..


| anna | 23:52 |
comments

Er ekki miklu meira sport að táldraga þau bæði í einu?

Nr. 1 | posted by: Gummi T | 1.02.2005 | 7:05:37 | [+] |

Ég hef ekkert á móti henni per se.. en að táldraga hana! Ég ætti nú ekki annað eftir! Hún er hundur!

Nr. 2 | posted by: anna | 1.02.2005 | 8:18:31 | [+] |

Erum við ekki farin að vera full opinská hér á síðunni, hvað varð um alla hina miklu og misvísandi dulúð? silent

Nr. 3 | posted by: thors | 1.02.2005 | 9:41:46 | [+] |

ehe ehe .... ég var sko alveg búin að finna út hvaða par þetta var clown

Nr. 4 | posted by: Jóda | 1.02.2005 | 11:45:03 | [+] |

Þór: Stundum eru hlutirnir ekki alveg eins og ég læt þá líta út fyrir að vera. Frekar en fyrri daginn.

Nr. 5 | posted by: anna | 1.02.2005 | 13:15:18 | [+] |

Ég geri fastlega ráð fyrir því að þessu hafi ekki verið beint til mín heldur til "thors" happy

Nr. 6 | posted by: Þór | 1.02.2005 | 18:50:12 | [+] |

Góður þessi! Ég var strax farinn að hugsa um límpar! Misskilninginn hefði mátt auka enn frekar með því að segja "...hún er tík!" ðilli get ég verið.

Nr. 7 | posted by: Gummi T | 1.02.2005 | 19:40:20 | [+] |

Sá þetta líka þar sem ég púlaði á aumingjavélinni í world class. Ég sem ætlaði að kaupa mér mökk af þessum fræjum og taka mér ástmenn í röðum! Mér fannst þetta svo mikil snilld. Ætti að útbúa gjafakörfu fyrir eiginmenn að gefa eiginkonum, körfu sem er full af graskerjafræjum og sólblómafræjum.

Reyndar borða ég slatta af sólblómafræjum svona normally.. útskýrir ýmislegt.. embarassed

Nr. 8 | posted by: anna | 2.02.2005 | 22:26:19 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web