www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Eldur og sokkar
Laugardagur, 08. janúar 2005

Ristavélin okkar er á hillu inní eldhúsi. Við hliðina á henni er kassi undir pappír sem Doddi teiknar á. Ég veit, ég veit..

Stundum er Doddi að flýta sér og skellir teikningunum sínum bara við hliðina á ristavélinni. Rétt áðan var ég að rista brauð og sá að Doddi hafði einmitt gert þetta. Ég kallaði á hann og útskýrði fyrir honum að það mætti ekki setja pappírinn svona við hliðina á ristavélinni, hann yrði að setja hann í kassann, því annars gæti kviknað í honum.

Doddi: "fer þá tækið að pípa?" (tækið sem um ræðir er reykskynjarann)
Anna: "já, en við viljum helst að það kvikni ekkert í, þessvegna er betra að geyma pappírinn í kassanum"
Doddi: "en hvað gerum við ef tækið fer að pípa"
Anna: "ef það kviknar í íbúðinni þurfum við að fara út"
Doddi: "en ef við erum ekki í sokkum?"
Anna: "þá förum við út á tánum"
Doddi: "en verður okkur þá ekki kalt?"
Anna: "það er betra en að brenna sig"

stuttu seinna setti ég aftur brauð í ristavélina

Doddi: "ættum við ekki að fara í sokka mamma?"


| anna | 21:19 |
comments

Þessi saga er gargandi snilld laughing Gleðilegt ár Anna. Kær kveðja til Dodda wink

Nr. 1 | posted by: agusto | 9.01.2005 | 12:38:04 | [+] |

laughing

(en er þetta ekki óþarfa eldhræðsla að óttast blöð við hlið brauðristar? Hvaða árgerð er verið að tala um?)

Nr. 2 | posted by: Atviksorða-Anna | 9.01.2005 | 14:17:28 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web