www.anna.is
ravings of a lunatic í janúar 2005
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Gleðilegt nýtt ár!
Laugardagur, 01. janúar 2005

Takk fyrir samveruna á árinu 2004. Vona að nýja árið verði þér gæfuríkt.


| anna | 0:00 | permalink | comments (14) |
All done
Sunnudagur, 02. janúar 2005

142_4268.jpg

Ég er búin með jólapúslið.

Ég er reyndar búin að gera ýmislegt annað en að púsla undanfarna daga, nú ætla ég hinsvegar að fara uppí rúm að sofa. Ég er soldið þreytt og svo á ég stefnumót á morgun.


| anna | 2:06 | permalink | comments (1) |
Rok og afturgöngur
Mánudagur, 03. janúar 2005

Ég hrökk upp við eitthvað hljóð í morgun klukkan 11 mín yfir sex. Ekki það.. ég var búin að vakna all oft í nótt við hamaganginn í rokinu. Það hefur komið fram áður að ég bý í íbúð sem er þeim kostum gædd að þegar það er rok.. þá finnst manni eins og það sé hvirfilbylur og það hvín í öllu. Fór upp í rúm fyrir miðnætti í gær, leit síðast á klukkuna klukkan tvö, áður en ég sofnaði og var í því að vakna við þetta helvíti sí og æ. Hef sagt það áður og segi það enn og aftur... ég hata rok.

Ég tók einn rúnt um íbúðina en sá ekkert óeðlilegt, fór aftur upp í rúm. Þar sem ég lá í rúminu fór ég að velta hljóðinu fyrir mér. Þetta var eitthvað kringlótt sem fór í gólfið - get ekki útskýrt það.. þetta var bara þannig hljóð. Tók mig fimm mín að átta mig á því hvað þetta var, fór fram og mikið rétt.. lampi sem hangir alla jafna á vegg í stofunni hafði dottið í gólfið. Ofaná honum er einmitt kringlótt eitthvað. Whatever.

Ég fór aftur upp í rúm. Velti því fyrir mér hvort það væri draugur í íbúðinni. Þessi lampi hafði enga ástæðu til að detta niður. Festingarnar gáfu sig ekki í veggnum. Þetta er auk þess ekki í fyrsta skiptið sem eitthvað svona x-files-legt gerist í þessari íbúð sbr. blómið sem endaði á gólfinu sínkt og heilagt.

Þar sem ég lá og velti fyrir mér mögulegum draugagangi í íbúðinni datt mér í hug að fara framúr, fyrst ég var vöknuð. Hætti við, nennti því ekki og var bara of þreytt. Þá varð mér hugsað til þess að ég væri alein í íbúðinni og eiginlega hálf hrædd. Bæði við rokið og drauginn. Fór að spá í hvort það myndi breyta einhverju ef það væri einhver hjá mér. Komst að því.. já.. þá myndi mér líða betur. Ég gæti hugsanlega steindrepist úr hræðslu ef það kæmi draugur upp að mér og segði BÚÚÚÚ ef ég væri ein uppí rúmi á meðan ég myndi bara geðbilast úr hræðslu ef einhver væri hjá mér.

Æ svo nennti ég ekki að pæla í þessu lengur. Var of þreytt. Sagði: "komdu þá bara" þreytulega út í myrkrið og sofnaði.

Það kom engin.

Þegar ég kom í vinnuna sá ég að 31. desember fékk ég jólakveðju í vinnuna á elektrónísku formi. Igor, varst þetta þú?


| anna | 9:45 | permalink | comments (4) |
4. janúar 2005
Þriðjudagur, 04. janúar 2005

Þegar ég kom heim úr vinnunni í dag fór ég að versla. Þegar ég kom heim talaði ég við krakkana. Mitt í samtalinu hringdi dyrasíminn.

Anna: "halló?"
maður í dyrasíma: "ég er með sendingu fyrir Önnu Helgadóttur"
Anna: "ha?"
maður í dyrasíma: "ég er með sendingu fyrir Önnu Helgadóttur"

Vill til að ég er með fóbíu fyrir mönnum sem segjast vera með sendingu. Það er mín reynsla, eftir að ég deitaði akureyring, að þeir sem koma með sendingar til fólks eru yfirleitt með stefnur eða ábyrgðarbréf sem segir að þú skuldir þeim marga marga peninga og ef þú borgar ekki í gær verður þú steiktur á teini í hljómskálagarðinum á meðan naktir dvergar pissa á þig.

Ok ég ýki smá..

Nema hvað að ég ákvað að veita manninum inngöngu. Auðvitað löngu búin að gleyma svona leiðindarsendingum og var að reyna að rifja upp hvort ég hafði pantað eitthvað fleira frá amazon og hvað það var..

En þetta var ekki sending frá amazon. Þetta var ekki frá lögfræðingi heldur. Þetta var maður og hann hélt á rósum.

Þegar maðurinn nálgaðist mig með þessa sendingu hlýt ég að hafa orðið hissa á svipinn því hann fór eiginlega að hlæja þegar hann spurði: "ert þú Anna Helgadóttir?" "eh.. já" svaraði ég um leið og hann rétti mér blómavöndinn. Hann hélt niðrí í sér hlátrinum til baka að stiganum. Ég stóð frosin í dyragættinni og trúði ekki mínum eigin augum.

"Vá hvað þessi ókunnugi maður er góður við þig" sagði Doddi.
"Ekki vera svona vitlaus", sagði Jóhanna, "ég veit sko alveg hver sendi þetta".

Ég heyrði ekki hvað fór meira á milli þeirra, var komin í eigin heim sem ilmar af rósum.

Ég er ennþá í þessum heimi.


| anna | 21:12 | permalink | comments (10) |
Þrjú orð
Þriðjudagur, 04. janúar 2005

Eins gott að ég er með góðar græjur. Annars væri allt útlit fyrir að maður þyrfti á mökk af kaffi að halda til að halda sér vakandi á næturna og stuttu síðar yrði maður að fjárfesta í þríhjóli..


| anna | 22:40 | permalink | comments (10) |
Bíó
Fimmtudagur, 06. janúar 2005

Ég fór með manninum á desktoppinu í bíó í kvöld. Sáum myndina National Treasure. Hún er fín. Sidekick-ið fór stundum í taugarnar á mér, en hey.. maður lætur það ekkert brjóta sig niður.

Á eftir fórum við í bíltúr í Myrkrahöfðingjanum. Komst að því að ég kann ekki að keyra rúntinn, en ég er fljót að læra.


Aðfangadagur í rússlandi á morgun.


| anna | 0:58 | permalink | comments (5) |
...
Laugardagur, 08. janúar 2005

bygons


| anna | 0:29 | permalink | comments (3) |
Lítill fugl
Laugardagur, 08. janúar 2005

Ég sat við tölvuna mína rétt áðan að spila tónlist þegar ég heyrði fuglasöng.

Hmm.. þetta er ekki í laginu, hugsaði ég. Pældi ekki meira í því. Nema fuglasöngurinn hætti ekki. Ég stóð upp og leit inní stofu. Á gluggakistunni á opnanlega stofuglugganum sat lítill fugl og söng hástöfum. Ég starði á hann og fór að spá í hvort hann myndi fljúga inn í íbúðina. Hann gerði það ekki. Söng og söng og svo stakk hann sér út um gluggann og flaug í burtu.

Vá hvað þetta var skrítið.


| anna | 13:48 | permalink | comments (0) |
Útsölur og uppgötvanir
Laugardagur, 08. janúar 2005

Ég fór í kringluna í gær til að kíkja á útsölur. Fann pils sem ég keypti og komst að því þegar ég kom heim að það er aðeins of stórt á mig. Mig reyndar grunaði það þegar ég keypti það.. en þetta var eina pilsið sem mig langaði í, ekki til í minna númeri og þar sem ég kann að minnka föt kemur það ekki að sök. Nú þarf ég bara að nenna að gera það.

Tvö barnaafmæli í dag. Doddi fór einn í það fyrra og var vel sykraður í því seinna. Á leiðinni heim kom ég við í vídeóhöllinni og tók tvær myndir fyrir fjölskylduna, keypti popp og krakkarnir fengu bland í poka.

Þór segir að ég sé skrýtið dýr. Iss segi ég nú bara. Ég er ekkert skrítin. Ekki þannig lagað. Stundum er eitt orð bara alveg nóg.

Mér var boðið út að borða í gær á Hereford steikhús. Rosalega góður matur þarna og ég fæ bara ekki nóg af deitinu mínu. Á eftir fór ég heim og tók deitið með mér. Við fórum að kjafta saman og skyndilega kom upp úr kafinu af hverju við hættum saman á sínum tíma.

Það var þannig að fyrir fimmtán árum síðan sofnaði hann óvart heima hjá mér og þegar hann vaknaði morguninn eftir stóð ég yfir honum með hafnarboltakylfuna mína sem ég var búin að negla þrjá þriggja tommu nagla í. Hann sagðist þurfa að fara strax, henti sér í föt og hljóp út.

Komst að því í gærkvöldi að hann varð víst alveg skíthræddur við mig þennan morgun, fór reyndar ekkert framhjá mér að það var eitthvað að honum en datt aldrei í hug að hann héldi að ég ætlaði að berja hann til dauða með hafnarboltakylfunni. Enda stóð það aldrei til. Ég ætlaði bara að sýna honum hana.

Svona getur misskilningur átt sér stað þegar fólk talar ekki saman. Ég er hinsvegar búin að fatta af hverju hann vill aldrei sofa hjá mér yfir nótt. Hann veit af hafnarboltakylfunni hérna einhverstaðar..

Ég gleymi því ekki hvað hann var sætur þennan morgun. Nývaknaður og úfin um hárið. Ég var auðvitað alveg dauð skotin í honum og vissi ekki hvernig ég átti að haga mér af hrifningu. - Sem hann túlkaði sem augljós merki um geðveilu mína.

Já.. þegar hann vaknaði sagði ég víst: "ég er að fara til geðlæknis á eftir".

Þegar ég hugsa út í það get ég alveg séð hvernig þetta scenarió hefur verið soldið scary...


| anna | 17:18 | permalink | comments (4) |
Eldur og sokkar
Laugardagur, 08. janúar 2005

Ristavélin okkar er á hillu inní eldhúsi. Við hliðina á henni er kassi undir pappír sem Doddi teiknar á. Ég veit, ég veit..

Stundum er Doddi að flýta sér og skellir teikningunum sínum bara við hliðina á ristavélinni. Rétt áðan var ég að rista brauð og sá að Doddi hafði einmitt gert þetta. Ég kallaði á hann og útskýrði fyrir honum að það mætti ekki setja pappírinn svona við hliðina á ristavélinni, hann yrði að setja hann í kassann, því annars gæti kviknað í honum.

Doddi: "fer þá tækið að pípa?" (tækið sem um ræðir er reykskynjarann)
Anna: "já, en við viljum helst að það kvikni ekkert í, þessvegna er betra að geyma pappírinn í kassanum"
Doddi: "en hvað gerum við ef tækið fer að pípa"
Anna: "ef það kviknar í íbúðinni þurfum við að fara út"
Doddi: "en ef við erum ekki í sokkum?"
Anna: "þá förum við út á tánum"
Doddi: "en verður okkur þá ekki kalt?"
Anna: "það er betra en að brenna sig"

stuttu seinna setti ég aftur brauð í ristavélina

Doddi: "ættum við ekki að fara í sokka mamma?"


| anna | 21:19 | permalink | comments (2) |
Fokk this
Sunnudagur, 09. janúar 2005

Ég er nú ekki meiri húsmóðir en svo.. að ég eyddi kvöldinu (og hluta af nóttinni) í að skanna vélina mína og leita að spyware og vírusum - til að ég þyrfti ekki að strauja hana - strax.

Fann 1346 objects sem voru fjarlægð. Þrjá vírusa plús fullt af öðru drasli.

Er búin að endurræsa endalaust og keyra leitarforrit og nú loksins finna þau ekkert. Þurfti að manually fjarlægja nokkur skjöl úr registríinu og systeminu.

Mér finnst ég búin að vera soldið dugleg.

Þó ekki duglegri en svo.. að photoshop vill ekki virka.

Fokk. Fokk. Fokk.

Fokkitt..


| anna | 2:34 | permalink | comments (6) |
Mæ hæní!
Mánudagur, 10. janúar 2005

Ég var komin út á stigagang í morgun þegar ég sá snjó út um gluggann, fór aftur inn í íbúð. Fór úr barbie bleiku dragtinni sem ég var búin að klæða mig í og skipti yfir í gallabuxur og dúnúlpu. Þetta gæti hafa orðið mér til lífs. Vill til að þessi dúnúlpa er þykk eins og andskotinn og kölluð "fallhlíf" af sumum. Ég er hinsvegar svo mikið egó að mér finnst bara gott að vera í fallhlíf og fagna athyglinni sem þetta vekur.

Ég fór út á bílaplan, inní bílinn minn, kom honum í gang, greip rúðusköfu og sté útúr bílnum aftur. Akkúrat hér steig ég á hálkublett þeyttist fyrst tvo metra upp í loft, lenti á rassinum og skall svo á bakið. Lá eins og skata í nokkrar sekúntur áður en ég brölti á fætur.

Ég fer ekki ofanaf því að fallhlífin hafi tekið af mér mesta höggið á bakið en þar sem þetta er mittisúlpa og rassinn á mér svo síður.. að hann nær undan úlpunni slapp hann ekki eins vel.

Nú kom sér vel að vera búin að tryggja bakendann fyrir formúgu...


| anna | 14:20 | permalink | comments (7) |
ái
Þriðjudagur, 11. janúar 2005

Ég finn til.


| anna | 8:50 | permalink | comments (4) |
Ógeðskjúklingur og tótal bs
Miðvikudagur, 12. janúar 2005

Ógeðskjúklingur í matinn í fyrradag og maðurinn með hundinn kom að borða. Hann varð soldið hræddur þegar ég náði í vélsögina til að skera matinn en sá að krakkarnir högguðust ekki svo hann róaðist. Held líka að hann hafi séð hvað þetta er miklu sniðugra en að djöflast á þessu með einhverju helvítis hnífarusli.

Ég kalla hann góðan að þora að koma í mat sem kallaður er ógeð. Ekki allir sem myndu taka sénsinn á því.

Hitti Ófeig um daginn. Hann er fluttur í eitthvað kofarusl uppá Vatnsenda, eineygður og ruglaður. Segist vera komin í FBI witness protection prógram með Adriana úr Sopranos. Sagði að hún væri í kjallaranum undir húsinu. Veit ekki hvort maður á að kalla til lögreglu eða geðlækni. Best að gera ekkert. Enda um Ófeig að ræða.. ekki Intrum.

Ófeigur er samt ekki sáttur. Röflaði um að hann væri ekki sáttur við þennan mann sem á hundinn. Hann hafi ætlað að giftast mér og eignast með mér fimm börn. Tvö sett af tvíburum og eitt stakt. Ég held að hamarinn hafi kippt í sundur einhverjum vital rásum þarna í heilanum á honum. Ég get ekkert eignast börn. Ég er óbyrja. Þetta vita allir sem t.d. lesa síðuna mína. Mitt barnalán stafar af tíðum ferðum mínum í Kringluna. Fann Jóhönnu þar árið '93 fyrir framan polarn og pyret. Hún var svo lítil og mikil dúlla og benti á mig. Rosa flottur vagn fylgdi með. Dodda fann ég fyrir framan konfektbúðina '99. Honum fylgdi ekki eins flottur vagn en ég stóðst hann ekki. Dodda sko. Hann var brosandi og hlæjandi og breiddi út faðminn á móti mér. Notaði bara vagninn sem fylgdi Jóhönnu fyrir Dodda líka, enda var hún farin að geta gengið um og tala þegar ég náði mér í Dodda. Var alltaf að spyrja mig: "ert þú mamma mín?" Hún er hætt því núna.

Fór annars í Kringluna í hádeginu í dag. Hitti mann á leiðinni og borðaði með honum á kaffihúsi í Kringlunni. Ég get bara ómögulega einbeitt mér eftir að ég hef hitt þennan mann. Það sem ég hugsa er bara ekki prenthæft.

Þessvegna bulla ég svona mikið.


| anna | 14:01 | permalink | comments (1) |
Over and over and over..
Miðvikudagur, 12. janúar 2005

Er að hlusta á "Startin Over" með John Lennon. Heyrði það í dag. Hef skrifað um það lag áður..

Stundum fara hlutirnir ekki eins og maður vonaðist til að þeir myndu fara. Það þarf ekki endilega að vera verra. Þó að það virðist vissulega vera það.

Er að hlusta.. ..nú kemur það.

Nei.
Það er flugtakið.

Þetta er akkúrat það sem ég þurfti.


| anna | 23:46 | permalink | comments (1) |
Lausn lífsgátunnar?
Fimmtudagur, 13. janúar 2005

Ég var að tala við lækninn minn. Sagði honum frá því að andlitið á mér liggur undir skemmdum.

Á hökunni er ég með eitthvern viðbjóð sem vætlar úr og það sést. Við hliðina á viðbjóðnum er ég að byrja að fá bólu. Hún sést ekki - en ég finn fyrir henni. Hún verður líklega stærri en hausin á mér þegar hún nær sér á strik, ef marka má þrýstinginn sem ég finn frá henni.

Ekki var lífið svona á meðan ég reykti, drakk kók í lítravís og hámaði í mig sælgæti eins og mér væri borgað fyrir að borða það.

Í gær kom maður til mín í vinnuna. Þessi maður er predikari en hann vantar góðan málstað. Hann kom líka um daginn og þá sagði hann mér að allir ættu að stela tónlist og kvikmyndum. Það gerði heiminum bara gott, auk þess sem höfundarréttarlög væru komin út í móa og þetta væri ein leið við að mótmæla þeirri vitleysu. Í gær sagði hann að nú væri hann komin á hráfæði. Sagði mér að fara á hráfæði. Það væri lausn lífsgátunnar. Allir ættu að fara á hráfæði.

Ég hef nú soldið gaman af honum. Sagði að nú yrði hann að fara að finna sér málstað og fara að predika full time. "Það er eitt annað", sagði hann og hikaði, "nei, ég segi þér það næst þegar ég kem". Svo fór hann.

Ég ætti kannski að prófa hráfæði. Held samt að það komi ekki til með að breyta neinu um ástandið á hökunni á mér.


| anna | 10:32 | permalink | comments (18) |
Update
Föstudagur, 14. janúar 2005

Bólan og viðbjóðurinn virðast tengd fyrirbæri. Líklega síamstvíburar. Ég stóð mig að því að kroppa í viðbjóðinn í gær og meiri viðbjóður lak úr honum. Og blóð.

Það undarlega er.. að í kjölfar þessarar aðgerðar minnkaði bólan sem er við hliðiná.

Mér fannst þetta stórmerkilegt og sendi póst til Cosmopolitan og lét vita af þessu. Var að fá svar rétt áðan. Teymi af læknum og vísindamönnum verða sendir til að rannsaka fyrirbærið gegn því að ég veiti viðtal og þeir fái einkaréttinn á myndunum.

There's hope yet

Vissi að cosmo myndi ekki klikka á þessu.


| anna | 10:14 | permalink | comments (4) |
Atvinnuviðtal
Föstudagur, 14. janúar 2005

Eftirfarandi er byggt á sannsögulegum atburðum:

vinnuveitandi: sæll. hefurðu séð nýjasta myndbandið með nylon?
umsækjandi: nei
vinnuveitandi: áttu bókina með nylon?
umsækjandi: nei
vinnuveitandi: diskinn?
umsækjandi: nei
vinnuveitandi: þú ert ráðinn.


| anna | 16:47 | permalink | comments (4) |
Í dag
Föstudagur, 14. janúar 2005

roz396940.jpg(14:43:47) M: búin að sjá Alfie? smile
(14:43:57) M: eða er hún komin í bíó?
(14:44:07) Anna: LOL
(14:44:14) Anna: það eru allir að spyrja mig að þessu
(14:44:20) Anna: nei og ég ætla ekki að sjá hana
(14:44:24) Anna: fær skelfilega dóma
(14:44:25) M: why?
(14:44:31) M: SO???
(14:44:45) Anna: só? ég er bara ekki hrifnari af jude law en svo
(14:44:52) Anna: auk þess er tilvonandi eignkona hans í myndinni
(14:44:58) Anna: sem ég er afbrýðisöm útí
(14:45:00) Anna: augljóslega
(14:45:21) M: AUGljóslega smile
(14:45:25) Anna: wink
(14:48:38) M: á að gera eitthvað sniðugt um helgina?
(14:49:07) Anna: ég hef ákveðið að skúra íbúðina
(14:49:11) Anna: annað er óráðið
(14:50:03) M: stórákvörðun sem sagt :D
(14:50:16) Anna: fór allur morguninn í að ákveða þetta
(14:50:29) M: ertu ekki dauðuppgefin alveg?
(14:51:28) Anna: þú getur rétt ímyndað þér!
(14:51:36) Anna: hef ekkert getað unnið


| anna | 22:54 | permalink | comments (3) |
Dagurinn í dag..
Sunnudagur, 16. janúar 2005

..var frábær.

Vaknaði snemma í morgun við einn þann ljúfasta draum sem mig hefur dreymt lengi. Leyfði mér að sofna aftur. Dásamlegt. Vaknaði rúmlega eitt. Hitti manninn í lífi mínu og fór með honum á kaffihús, svo dreif hann mig með sér í líkamsrækt.

Ég verð að viðurkenna að á tímabili hélt ég að líf mitt myndi enda þarna á hlaupabrettinu. Þó gekk ég mestallan tímann. Hljóp í innan við mínútu. Var við það að líða útaf. Kalla mig góða að standa í lappirnar eftir þetta en verð líka að viðurkenna að mér hefur ekki liðið svona vel mjög lengi. Þetta var æðislegt. Það verða strengir á morgun. Magi, rass, læri, handleggir. Úff..

Dórið buzzaði mig á msn þegar ég kom heim og hringdi stuttu síðar. Var að segja mér frá projecti sem hann er að fara af stað með. Endaði á að bjóða mér í heimsókn og ég lagði af stað niður í bæ.

Það er orðið mjög langt síðan ég fór að heimsækja Dórið. Í millitíðinni hefur hann flust búferlum enda var ekki líft á gamla staðnum þar sem lúðrasveit var með æfingarhúsnæði við hliðiná. Það var skelfilegt. Dórið hefur hringt í mig þegar lúðrasveitin er á æfingu. Það heyrist ekki mælt mál fyrir La Cooca Roacha og öðrum lúðrasveitalögum sem ég kann ekki að nefna.

Þegar ég kom til Halldórs fann ég nóa konfektkassa inní stofu. Spurði hvort það væri eitthvað í honum. "Já, fullt, allir vondu molarnir sem þér finnast svo góðir" sagði Halldór. Little did he know.. allar flöskurnar voru eftir í kassanum - sem mér finnast einmitt svo góðar. Verð að muna að blogga um af hverju mér finnast þær svona góðar seinna. Allavega. Fjórum nammiflöskum seinna og tveimur kókglösum sátum við í eldhúsinu að spila scrabble. Halldór sá viðbjóðin á hökunni á mér og sagði: "já þetta er líklega áblástur þó það líkist vissulega meira ároki".

Allt spilið þjáðist ég af annmarkastreitu og komst að því að mér finnst best að spila scrabble þegar ég les orðin á leikborðinu á hvolfi. It's the sickest thing.

Þegar Halldór var búin að bursta mig 1x í scrabble kom vinur hans í heimsókn. Spurði hvort hann mætti fá lánaðann bílinn hans Halldórs til að fara út í sjoppu. Það var auðsótt mál og Dórið afhenti lyklana. Þrisvar kom vinur hans inn til að fá leiðbeiningar um það hvernig bíllinn væri opnaður. Í þriðja skiptið kom í ljós að hann var að reyna að opna minn bíl, sem er sömu tegundar og ber sama lit.

Þegar vinur Halldórs kom úr sjoppunni spiluðum við scrabble aftur. Vinur Halldórs vann með yfirburðum. Ég sé að það er ekki úr vegi fyrir mig að lesa orðabókina mína fyrir svefninn ef ég á að ná árangri í þessu spili. Komst reyndar að því í kvöld að ef þú tekur einhverja random tvo bókstafi og setur þá saman þá hefur myndast íslenskt orð yfir "ryk". Magnaður andskoti.

Við spiluðum reyndar eftir reglum hússins. Orð eins og "fnugge", "drundhjassi" og "snuggums" voru leyfð ásamt eiginnöfnum Portúgalskra vændiskvenna. Don't ask.. þetta virkar.

Þegar ég kom heim kveikti ég á vélinni minni og fór að blogga þegar ég fékk msn...

Dórinn says: Djövuddl verðurðu að koma einhverntíma í 3 tíma og horfa á Sybil með mér
Anna says: ÁTTU SYBIL
Anna says: ???
Dórinn says: þekkirðu hana?
Anna says: án gríns
Dórinn says: hefur ekki verið gefin út
Anna says: ég veit, áttu hana?
Dórinn says: en ég keypti hana á DVD af einhverjum snillingi í USA sem tók hana uppúr sjónvarpi
Anna says: BRIIIIIILLLL
Anna says: SEGIRÐU MÉR ÞETTA *NÚNA?*
Dórinn says: Ottó er með hana í láni
Anna says: sjitt maður
Dórinn says: hún er breþþteikínng
Anna says: ég veit það
Anna says: er hún óklippt?
Dórinn says: jammsa
Dórinn says: rúmir 3 tímar
Anna says: ég verð að sjá þetta hjá þér
Anna says: sko
Anna says: það sem þú veist ekki er..
Anna says: að þegar hún var sýnt í sjónvarpinu fékk ég að horfa á byrjunina
Anna says: en mamma var alltaf að grípa fyrir augun á mér
Dórinn says: eiðilagði fyrir þér
Dórinn says: hahaha
Anna says: og svo sendi hún mig stundum fram úr stofunni
Anna says: svo ég sá bara bits and pieces
Anna says: og mig langar svooooo að sjá alla myndina
Dórinn says: brill

Sybil. Þetta er eins og með Whatever Happened To Baby Jane. Mig langaði svo að sjá þá mynd þegar hún var sýnd í sjónvarpinu, vissi að hún var bönnuð. Ég var líklega 11 eða 12 ára. Mamma var búin að segja að ef þulan segði að myndin væri ekki við hæfi barna fengi ég ekki að sjá hana.

Þegar þulan birtist á skerminum beið ég með öndina í hálsinum.. og hún sagði það ekki. Konan sagði ekki að myndin væri bönnuð. Ég glotti sigri hrósandi og fékk mér sæti í sófanum við hliðina á mömmu. Myndin byrjaði. Þegar myndin var búin að rúlla í tíu mínútur mætti þulan skyndilega aftur á skjáinn og sagði: "í kynningunni gleymdist að taka fram að myndin er stranglega bönnuð börnum".

Ég er ekki að grínast.

Var auðvitað send inní rúm. Classic.

Mörgum árum seinna fann ég myndina á Aðalvídeóleigunni og fékk loksins að horfa á hana. Góð mynd. Nú lítur út fyrir að ég fái að sjá Sybil eftir öll þessi ár. Óklipptu útgáfuna. Nánast ófáanlegt sjónvarpsefni. Veit að ég mun ekki horfa á þetta ógrátandi en það vill svo skemmtilega til að Halldór hefur séð mig gráta - svo þetta verður allt í lagi.

Munurinn á Whatever Happend To Baby Jane og Sybil er.. að Sybil er byggð á sannsögulegum atburðum. Ég skil alveg að mamma hafi gripið fyrir augun á mér. Líklega hafði ég ekkert með að sjá myndina á þessum árum.

Come to think of it.. þá er ég eiginlega ekki viss um að ég sé manneskja til að horfa á þennan hrylling í dag.


| anna | 1:45 | permalink | comments (3) |
Húmor
Mánudagur, 17. janúar 2005

needles.jpg

Ætli það fari margir út og snerti skiltið? Áður en þeir keyra frammaf brúnni...


| anna | 15:33 | permalink | comments (1) |
Guðsgafflarnir
Mánudagur, 17. janúar 2005

MAD: farðu nú og þvoðu á þér hendurnar, maturinn er að verða tilbúin
Doddi: ha?
MAD: þvoðu þér um hendurnar fyrir matinn
Doddi: ætlum við ekki að nota hnífapör?


| anna | 23:08 | permalink | comments (4) |
Smile
Þriðjudagur, 18. janúar 2005

Í gær átti ég yndislegt kvöld með fjölskyldunni. MAD eldaði fyrir okkur dýrindis indjánakássu og gaf okkur Häagen-Dazs ís í eftirmat. Seinna um kvöldið spilaði ég scrabble við Jóhönnu.

Í morgun fór ég að hitta konu og talaði og talaði og talaði. Gat ekki hætt að brosa á eftir. Í hádeginu bauð MAD mér í lunch og....

smile

..óprenthæft. Með öllu.


| anna | 16:14 | permalink | comments (1) |
Ertu hrædd?
Fimmtudagur, 20. janúar 2005

Það er til lag.

Þegar ég byrja að hlusta á það finnst mér ég vera í frakklandi að hlusta á götuspilara og fylgjast með látbragðsleikara. Eða eins og ég sé að ganga um í skemmtigarði innan um há tré sem eru í blóma og fylgjast með hringekju, eða finnst ég líða um síkin í Feneyjum á gondóla. Stundum finnst mér ég vera stödd í ævintýri þegar ég hlusta á það en það sem er mest um vert.. mér líður vel þegar ég hlusta á þetta lag.

Sumir myndu segja að þetta væri lyftutónlist... og það er kannski rétt.. en það er eitthvað svo safe við þennan takt og stundum er eins og lagið ætli að breytast í eitthvað annað.. en takturinn heldur áfram í gegnum allt lagið og mér finnst ég vita alveg hvernig ég á að stíga næsta skref til að vera í harmony við ímyndaðan dansfélaga minn. Þó ég sitji með lokuð augun og hreyfi mig ekki fyrir utan vöðvana í andlitinu sem mynda bros.

Ég horfði á Sybil í kvöld. Byrjaði á að taka inn parkodin og íbúfen því mér er illt í eyranu og það er ekki að skána. Parkódínið slær á. Samt vont.

Ég gat ekki horft á Sybil heima hjá mér. Ég á ekki dvd spilara og gat ekki spilað diskana í vélinni minni. Fór til Halldórs sem útbjó lítið bíó fyrir mig í stofunni og sat svo inní eldhúsi að spjalla, fyrst við vin sinn á netinu og svo kom Ottó í heimsókn.

Á meðan þeir voru að spjalla inní eldhúsi horfði ég á Sybil.

Halldór stjanaði við mig eins og ég væri á fimm stjörnu hóteli. Byrjaði á að færa mér swiss mocca - og spurði hvort ég væri hrædd. Hálftíma síðar færði hann mér ís - spurði aftur hvort ég væri hrædd. Hálftíma síðar færði hann mér konfektmola - "ertu nokkuð hrædd?". Hálftíma síðar kom hann sérstaklega til að athuga hvort ég væri hrædd.

Ég var ekki hrædd þegar ég horfði á myndina en ég fann til. Þegar myndin var búin fór ég inní eldhús. Ég var ómáluð svo ég þurfti ekki að hafa áhyggjur af því að maskarinn væri komin lengst niður á kinnar, því ég var búin að gráta soldið - eins og ég vissi að ég myndi gera. Ég stóð í dyragættinni og þeir þögnuðu. Ég saug aulalega uppí nefið. Dórið saug uppí nefið mér til samlætis og brosti. Ég þurfti ekkert að segja, þeir hafa báðir séð myndina og vissu alveg hvernig mér leið.

Hvað það er safe að hlusta á þetta lag. Ég er að vorkenna mér. Mér er illt í eyranu. Ég á vondar minningar tengdar eyrnaverk.

Það er samt ákveðið öryggi fólgið í því að vita að það er í lagi að vera hræddur og lítill stundum.

Því ég er soldið hrædd... bara ekki við Sybil.


| anna | 1:06 | permalink | comments (7) |
Allt að koma
Föstudagur, 21. janúar 2005

Mér er búið að vera illt í eyranu mínu og beinunum.

Var hjá heimilislækninum.. sem sagði að það væri ekkert að mér en ekki fyrr en hann var búin að toga í eyrað á mér og berja mig í höfuðið - ítrekað.

Við enduðum að sjálfsögðu á hótel nordica þegar við vorum búin að klára allan læknaspírann á heilsugæslustöðinni. Hann gerði mér tilboð. Ég man ekki hvort ég sagði já eða ekki en rámar í samning í þríriti og flottan penna - sem ég virðist hafa stungið á mig - óvart.

More later..


| anna | 20:43 | permalink | comments (1) |
Ups!
Laugardagur, 22. janúar 2005

MAD a afmaeli a manudaginn, verdur 29 ara. I tilefni af thessu baud hann mer og bornunum til italiu og i kvold aetludum vid ut ad borda.

I morgun spurdi eg hann hvernig honum fyndist um ad vera í tygjum vid eldri konu. Honum finnst thad total rugl. Hefdi att ad velja heppilegri tima til ad spyrja ad thessu. Hann helt eg vaeri 28. Fokk.

Allt onytt.


| anna | 18:06 | permalink | comments (1) |
A case for Poirot
Sunnudagur, 23. janúar 2005

Sylvía Saint, þekkt klámmyndastjarna, finnst rænulaus á gangstéttinni fyrir framan vesturbæjarlaugina.

Lögreglan kemur henni á spítala. Þegar hún rankar við sér man hún ekkert. Hefur tapað síðustu 48 tímum úr lífi sínu. Það eina sem Poirot hefur til að vinna með er mp3 spilari sem inniheldur þetta lag og þetta. Auk þess sem hún er með greiðslukvittun úr Hringbrautarapóteki fyrir magnýl og rauðum tópas. Á henni finnst líka varalitur sem hefur aldrei verið notaður - fire engine red, spilastokkur sem öll hjörtun vantar í og eldspítustokkur með þremur upp brenndum eldspítum.

Sylvía man síðast eftir sér í Tyrklandi þar sem hún var við tökur á nýjustu mynd sinni.

Hvað gerðist?


| anna | 1:01 | permalink | comments (13) |
Singing in the rain
Sunnudagur, 23. janúar 2005

I'm dancin' and singing.. in the rain.

Ég veit ekki hvort Gene Kelly var ástfangin af mótleikkonu sinni í myndinni, en hann hljómar svo sannarlega eins og hann sé ástfangin þegar hann syngur lagið.

Auk þess finnst mér ólíklegt að nokkur maður myndi dansa og syngja í rigningu nema hann sé annaðhvort geðfatlaður, nýbúin að vinna í lottói eða.. ástfangin.

Krakkarnir fóru í heimsókn með ömmu sinni og ég er ein heima. Búin að liggja inní rúmi að lesa og hlusta á tónlist.

Allt í einu sótti að mér svo mikil tómleikatilfinning. Fannst ég svo ein í heiminum og umkomulaus eitthvað.

Kannski ég fari í bað.

I'm dancin'.. and singing.. in the rain.


| anna | 14:09 | permalink | comments (1) |
Vín og valsar
Mánudagur, 24. janúar 2005

Ég verð líklega búin að gera öllum lögunum á disknum skil áður en yfir líkur..

Finnst þetta skemmtileg útfærsla á Strauss, svona pínu fairytale touch.

Fór í bíó í gær. Sideways. Líklega með betri myndum sem ég mun sjá í ár. Tveir leppalúðar komast aðeins nær því að leysa lífsgátuna og þó ekki.

Stephanie átti hjarta mitt þegar hún... jah.. lét Jack hafa það. Hann lét það samt ekki brjóta sig niður enda sannur fáviti.

Börnin eru gjörsamlega að gefast upp á mömmu sinni og biðja mig að slökkva á þessari viðbjóðslegu tónlist sem ég er alltaf að spila en ég gef mig ekki. NEVER!

Er samt með headphones svo ég verði ekki kærð til barnaverndarnefndar fyrir að ofbjóða börnunum mínum með vínarvölsum.

Kærastinn minn á afmæli í dag. Ég er ekki frá því að hann verði flottari með árunum, eins og flestir þeir karlmenn sem ég fell fyrir.

Til hamingju með afmælið MB.


| anna | 22:02 | permalink | comments (2) |
Leppalúði?
Miðvikudagur, 26. janúar 2005

Organistinn segist vera leppalúði. Svipaður þeim lúðum sem myndin Sideways fjallar um. Organistinn er í uppáhaldi hjá mér. Held ég uppá leppalúða? Ég neita að trúa þessu.

Getur verið að Organistinn sé þunglyndissjúkingur? Kvennsamur? Lygin? Óframfærin? Hálf misheppnaður allur eitthvað?

Svarið er nei. Organistinn er fluggáfaður, stundum absent minded og hvass.. en hann er ekki mannleysa.

Á ferðum mínum um netið síðan ég byrjaði að blogga hef ég "kynnst" nokkrum kommenturum og mér þykir vænt um þá. Suma þykir mér meira vænt um en aðra en ég gef ekki upp hverjir það eru. Organistinn er hinsvegar hluti af heilagri þrennu sem ég kem ekki til með að kaupa neitt slæmt um. Read it and weep!

Ég er einfaldlega aðdáandi Organistans og ég er ekki tilbúin að sjá hann án þess dýrðarljóma sem ég hef kosið að sveipa hann. Hvorki hann né aðra sem ég hef sveipað slíkum ljóma. And don't make me!

Ég er samt búin að bregðast sjálfri mér gróflega á blogginu undanfarið og mér leiðist ég meira en nokkrusinni fyrr. Til heiðurs Organistans mun ég nú reyna að blogga meira af klósettinu. Fjalla um baðferðir og hversu misheppnaður einstaklingur ég er í raun og veru.

Af tilefni Sideways.. myndir þú koma með mér í vínkynningarferð um Californíu?

Yfir til þín.. Organisti.


| anna | 14:14 | permalink | comments (4) |
I believe
Miðvikudagur, 26. janúar 2005

Ég var að hitta jólasveinin í vinnunni. Einn af okkar yndislegri viðskiptavinum og ég hafði ekki hugmynd um að hann væri jólasveinnin.

Af hverju eru ekki allir viðskiptavinir mínir eins og þessi maður? Eða nei.. það væri ekki eins gaman.


| anna | 14:43 | permalink | comments (0) |
Check
Fimmtudagur, 27. janúar 2005

Mig dreymdi svo sætan hund í nótt. Hann var pínulítill, svartur með hvítri rönd á maganum og á trýninu og hann var svo góður. Kúrði við mig út í hið óendanlega á milli þess sem hann svaf ofaná handklæðum í þvottakörfunni inná baði. Hann drakk reyndar úr klósettinu en það var það eina sem fór í taugarnar á mér við hann.

Ég mætti svefndrukkin í vinnuna. Eiginlega ekki vöknuð. Byrjaði daginn á því að fara í heljarinnar ránsleiðangur niður í matstofu þar sem ég fékk könnu og þaðan fór ég til strákanna í fyrirtækinu við hliðiná og fékk swiss miss. Heita vatnið fékk ég úr katlinum hér á bak við þilið og nú á ég kakó - sem er reyndar ennþá of heitt til að drekka.

Ég ætlaði reyndar ekki að skrifa um þetta. Ég ætlaði að skrifa um það sem gerðist í gærkvöldi.

MAD var á msn í gær og sendi mér slóð á skáksíðu. Ég fór inn, bjó mér til notendanafn og lykilorð og leitaði að MAD en fann hann ekki fyrst. Svo fann ég hann og taldi mig hafa boðið honum í "challenge" en líklega hef ég verið að fokka einhverju upp því hann sá ekkert. Ég ákvað að prófa aftur en fann hann ekki svo ég skoraði einhvern Karl á hólm, sem tók áskoruninni.

Fyrsta skákin var frábær. Hann gjörsamlega rúllaði mér upp og ég hló upphátt af sumum afleikjunum mínum sem urðu þess valdandi að hann fór á brjálað killing spree um allt taflborðið sem byrjaði á að hann myrti drottninguna mína og endaði á því að hann mátaði mig. Í næstu skák mátaði ég hann. Í næstu skák féll hann á tíma og í fjórðu skákinni féll ég á tíma. 2:2

Ég hef reyndar grun um að Karl hafi ekki teflt af fullum styrk.

Þegar ég fór að sofa varð mér hugsað til þess þegar pabbi kenndi mér að tefla á sínum tíma. Hann elskaði að tefla en mömmu fannst það leiðinlegt. Þegar ég var ca 8 ára dró hann fram fína taflsettið sem hann fékk í þrítugsafmælisgjöf og byrjaði á að kenna mér manngangin. Þegar ég var búin að læra manngangin fórum við að tefla.

Pabbi vann mig alltaf. Þrátt fyrir að hann lét mig taka upp leiki gjörsamlega endalaust. "Nei Anna.. ertu viss um að þú viljir færa biskupinn þinn þangað? Þá drep ég drottninguna þína með hróknum." Þá lagði ég hausinn í bleyti og gerði eitthvað annað. Hann var mjög þolinmóður og mér fór vissulega fram. En ég var ekki góð.

Það var ekki fyrr en ég var 19 ára sem ég fór að tefla í alvöru og ekki við pabba.. heldur litla skáktölvu sem pabbi hafði keypt sér í fríhöfninni í einni af ráðstefnuferðunum sem hann var sínkt og heilagt að fara í. Honum leiddist oft á hótelunum og ég held að hann hafi keypt sér skáktölvuna til að stytta sér stundir. Eitt kvöldið náði ég í vélina og fór að tefla við hana. Næstu mánuði eyddi ég nánast öllum mínum vökustundum í að tefla við þessa vél og ég tapaði í hvert einasta helvítis skipti.

Þangað til ég fór að vinna.

Þegar ég var farin að vinna skáktölvuna reglulega hætti ég að nenna að tefla við hana. Hef nánast ekkert teflt síðan fyrir utan þegar ég var í skákklúbb sem heitir Drottningarnar. Það var fjölskylduklúbbur með konunum í fjölskyldunni og flestar voru að byrja að læra.

Ég er kannski engin meistari en mér finnst rosalega gaman að tefla.

Ég var eiginlega búin að gleyma því. Takk MAD.


| anna | 10:23 | permalink | comments (1) |
Innheimta Íslands hf
Fimmtudagur, 27. janúar 2005

Ég veit að ég tala hratt þegar ég svara í símann í vinnunni.

Rétt áðan átti ég bágt með að springa ekki úr hlátri því eftir að ég svaraði símanum og ruddi út úr mér nafni fyrirtækisins, eins og í akkorði, spurði viðskiptavinurinn mig: "Hvað sagðirðu? Innheimta íslands?"

Nei, svaraði ég og kæfði niður hláturinn og endurtók nafn fyrirtækisins og reyndi að tala hægar og skýrar.

Viðskiptavinur: "ó.. heyrðu ég var að sækja um hjá ykkur í gær.. hvernig borga ég?"
Anna: "bíddu.. gef þér samband við innheimtu íslands", sagði ég og gaf á Ingu.

Það þarf alveg skelfilega lítið til að kæta mig.


| anna | 11:57 | permalink | comments (4) |
Veröld Dodda
Fimmtudagur, 27. janúar 2005

Ég var að tala við blaðamanninn.

Hann sagði mér frá eftirfarandi samtali sem Doddi átti við hann:

Doddi: "pabbi.. ertu skotinn í annarri stelpu?"
Tóti: "já"
Doddi: "það er gott. Mamma er skotin í öðrum strák."

Ég átti hinsvegar eftirfarandi samtal við Dodda nýlega:

Doddi: "mamma.. ætlarðu að eignast fleiri börn?"
Anna: "kannski"
Doddi: "en geturðu eignast eitt í viðbót og haft það strák?"
Anna: "af hverju strák?"
Doddi: "Af því ég er hættur við að giftast Eydísi og mig vantar kærasta fyrir hana"


| anna | 15:46 | permalink | comments (4) |
Fnugge.. nei.. kannski meira.. fnurr
Laugardagur, 29. janúar 2005

Í kvöld sat ég ein í stofunni heima hjá mér, horfði út í loftið og spáði í hvort ég ætti að fara að kaupa mér ís og ná í vídeó.

Doddi vakti mig s.l. nótt. Var með 39 stiga hita, hálsbólgu og hósta sem hver einasti stórreykingarmaður hefði verið vel sæmdur af. Litli anginn var mjög veikur og ég sat yfir honum inní stofu og huggaði hann þangað til hitastillandi lyfið fór að virka. Verst að þá var hann glaðvaknaður og vildi horfa á sjónvarpið "eins og ég geri alltaf þegar ég er veikur". Ég sat og horfði á Shrek 2 til klukkan rúmlega fimm, þá leið honum aðeins skárr og náði að sofna. Hann vakti mig aftur klukkan hálf níu í morgun.

Ég var orðin vel þreytt seinnipartinn og lagði mig. Var af þeim sökum ekkert syfjuð þarna áðan þegar ég sat og starði út í loftið.

Ég rak augun í þrjú andlit evu og ákvað að skila henni til Dórsins og fá eitthvað annað sjónvarpsefni í staðinn. Ég lagði af stað klukkan tíu og þegar ég kom til Halldórs náði hann í scrabble og við tókum þrjá leiki. Mér hefur farið heilmikið fram. Allavega var Halldór stórmóðgaður og mátti hafa sig allan við að vinna mig, en honum tókst það í öll 3 skiptin. Ég tók það sem merki um hversu svekktur hann var yfir frammistöðu minni að hann skýrði mig "Herfu Hullerup" á skorspjaldinu í leik númer tvö. Hann hefur reyndar líklega séð þennan scrabble-bráðþroska fyrir því ég hét "Grýla" á því fyrsta. Auðvitað ætti ég að fá auka stig þar sem ég horfi alltaf á leikborðið "á hvolfi".

Í leik númer þrjú var ég öll á iði. Þá var ég búin að drekka swiss mocca og þrjú kókglös. Það leyndi sér ekki. Djöfull er sykur magnaður. Kók ætti í raun að nota slagorðið: "bein ínnspýting".

Þegar skraflið var búið spurði Dórið mig hvort ég vildi ekki kíkja í afmæli Ómars í Quarashi. Why the hell not.

Ég keyrði niðrá Sólon.

Í afmælinu hitti ég Ottó og Gísla í Nexus sem ég kannast í gegnum vinnuna og dóttur mína sem er forfallin Inu Yasha aðdáandi. Þeir voru mjög hressir og tónlistin... djöfuls snilld. Ég tók nokkur spor á dansgólfinu. Var reyndar meira klædd fyrir sveitaball en afmæli á höfuðborgarsvæðinu, enda stóð ekki til að fara á djammið. Hefði sjálfsagt ekki verið hleypt inn ef ég hefði ekki mætt í fylgd Halldórs sem þekkir alla þarna.

Þetta var óvænt. Plús.. ég fékk algjöran gimstein með mér heim úr einkasafni Halldórs. The Pink Panther Film Collection.

Að lokum finnst mér rétt að það komi fram að ég skúraði íbúðina í dag og mig langar í svona poka.

Nú er ég hinsvegar farin að sofa. Ætla að vakna snemma og hitta MAD og púla þangað til ég dett niður dauð.

Yeah.. good times.


| anna | 1:15 | permalink | comments (8) |
LOL
Mánudagur, 31. janúar 2005

Anna says: LOL
Dórinn says: LOL ? Lem Oft Lemúra?
Anna says: já
Anna says: mér finnst rétt að taka það fram - í tíma og ótíma
Dórinn says: Lið Onytur Lapdanser?
Anna says: akkúrat
Anna says: menn sofna..
Dórinn says: Loðin Og Lúsug
Anna says: WWAHAHAHAHAHHAHAHHAHHA
Anna says: HAHAHAHAHHAHAH
Anna says: ég dey
Dórinn says: Lömuð Og Lasin
Anna says: Liðleskja og Láglaunamanneskja?
Dórinn says: wahahahahaha
Dórinn says: sknilld


| anna | 13:15 | permalink | comments (1) |
Tík
Mánudagur, 31. janúar 2005

Ég svaf yfir mig í morgun. Vaknaði fyrst klukkan sjö, næst klukkan 8:57. Var mætt til vinnu tíu mínútur yfir níu.

Ég skil ekkert í þessu, ég var sofnuð rétt rúmlega tíu í gær. Asnalegt. Þarf ég meiri svefn en ungabörn?

Fékk gesti í mat í kvöld. Maður og ástin í lífi hans. Hún er ekki hávaxin og ekki langskólagengin, þó hún hafi farið á eitthvað námskeið fyrir ári síðan - held ég. Hún er hinsvegar rosalega sæt og mjög vingjarnleg. Mér líkar a.m.k. mjög vel við hana. Gaman að elda fyrir fólk sem fúlsar ekki við matnum. Eftir hefðbundið borðhald fengum við okkur sæti í stofunni. Þau sátu í einum stólnum og kysstust og keluðu á meðan ég reyndi að finna eitthvað til að segja. Þegar ég datt niður á umræðuefni sem honum líkaði ýtti hann henni frá sér og spjallaði við mig þangað til hann missti áhugann, kallaði þá á vinkonu sína og hún settist klofvega ofaná hann.

Það sem hún veit ekki er að ég dreg þennan mann á tálar hvenær sem færi gefst. Í kvöld dró hún hann hinsvegar heim áður en mér tókst að tæta hann úr fötunum.

Helv..


| anna | 23:52 | permalink | comments (8) |

ravings í janúar 2005
monthly archive

links
blogs
links - web