Fimmtudagur, 09. desember 2004
Ég fór heim í hádeginu í dag. Var komin út og á leiðinni út í bíl þegar ég snéri við og fór til kokksins á kaffihúsinu og bömmaði sígarettu. Nú sit ég við tölvuna og reyki.
Ég er pissed út í sjálfa mig og held að þetta, að reykja, sé birting á sjálfshatri.
Mér til málsbóta, þá fór ég ekki að kaupa pakka, ég ætlaði að gera það áður en ég sneri við og bömmaði af kokkinum. Veit alveg hvernig það hefði endað. Ég myndi sitja í kvöld og keðjureykja. Mætti ekki vera að því að elda, hvað þá ganga frá einu eða neinu. Ég er ekki stúbid. Stundum þegar ég segi þetta finnst mér ég vera eins og Ottó í fish called wanda, því ég er stúbid. Ég er það - þó ég viti að the central message of Buddhism is not "every man for himself".
Sígarettan er búin og nikótínið flæðir um líkamann og mér líður.. illa.