www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Trallalla
Fimmtudagur, 16. desember 2004

Í gærkvöldi, áður en ég fór að sofa, gróf ég andlitið í öðrum koddanum í rúminu og fyllti lungun af lofti. Þegar ég var búin að þessu lét ég mig fallast á hinn koddann og andaði hægt frá mér. Svo sofnaði ég - brosandi.

Í hádeginu fór ég með tvístrikaða ávísun í banka. Hún er búin að liggja á borðinu hjá mér í tvær vikur. Fór líka með gjaldeyri síðan ég var í London og skipti í isk. Ég er svo dugleg. Verslaði í matinn og fór sér ferð til að kaupa mér naglalakk. Ég er búin að vera svo lítið leið undanfarið að ég er búin með allt naglalakkið mitt.

Ég er búin að græja allar jólagjafir, búin að pakka öllu inn, um helgina ætla ég að þrífa jólahreingerninguna og kippa í leiðinni vekjaraklukkunni inní herbergi úr sambandi og setja rafmagnið aftur á. Þegar það er búið geta jólin komið.

Ég er búin að loka kommentum alveg fram á þetta ár og losa mig við, held ég, allt spam sem komið var. Ég man bara ekki hvenær ég var svona svakalega dugleg síðast.

Ég átti æðislegt kvöld í gærkvöldi. Hreint út sagt.. æðislegt.


| anna | 14:31 |
comments

Oh how the young are foolish in the bliss of their ignorance

Nr. 1 | posted by: Maggi G | 16.12.2004 | 23:48:52 | [+] |

Sammála, það ER gaman á Bingókvöldum.

Nr. 2 | posted by: Atviksorða-Anna | 17.12.2004 | 0:26:57 | [+] |

sneld! cool

Nr. 3 | posted by: Hildigunnur | 17.12.2004 | 1:03:08 | [+] |

Bingó RÚLAR!

Nr. 4 | posted by: anna | 17.12.2004 | 12:40:44 | [+] |

Það er kallað spam.. kommentin á bloggsíður sem eru full af linkum á síður sem selja t.d. viagra o.þ.h.

Nr. 5 | posted by: anna | 17.12.2004 | 12:41:23 | [+] |

ó embarassed
og eyddir þú því út? nerd

Nr. 6 | posted by: Jóda | 17.12.2004 | 12:47:13 | [+] |

Já ég hef verið að myndast við það drunk

Nr. 7 | posted by: anna.is | 17.12.2004 | 14:29:06 | [+] |

Er það ekki orðið helst til mikið af því góða þegar fólk er farið að þrífa jólahreingerninguna?

doubt

Nr. 8 | posted by: thors | 19.12.2004 | 20:51:08 | [+] |

Jú.. en hún er bara svo illa þrifin. Ég er að spá í að hætta að gera hreint fyrir jólin. Endar allaf á því að ég þarf að þrífa hreingerninguna aftur og ég þoli bara ekki svona tvíverknað! colgate

Nr. 9 | posted by: anna | 20.12.2004 | 0:05:06 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web