www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Tillögur óskast
Mánudagur, 13. desember 2004

Hvernig útskýrir maður fyrir yngra barninu að eldra barnið fái ekki lengur í skóinn?

Ég sé fyrir mér eitthvað svona:

Anna: "jæja, jólasveinninn sendi mér sms áðan. Jóhanna er hætt að fá í skóinn"
Doddi: "af hverju?"
Anna: "af því jólasveinninn er illgjarn og leggur sum börn í einelti"
Doddi: [setur upp skelfingar svip] "en.. en.."
Anna: "ekki fæ ég neitt í skóinn" [brotna niður og fer að gráta]
Doddi: [fer líka að gráta]
Anna: [á milli ekkasoga] "svona *snökt* er *snökt* lífið *snökt* stundum *snökt* elsku *snökt* barn"

Er hægt að gera þetta öðruvísi?


| anna | 17:05 |
comments

Jólasveinninn í sveitinni er svo hugulsamur að hann gefur líka stóru krökkunum í #gluggakistuna# ef þau eru dugleg og góð. Þannig skilja þau yngri að jólasveininn er góður við alla. Það hvetur líka þau sem eru hætt að trúa til að vera dugleg og hjálpsöm því annars kemur ekkert til þeirra thumb up

Nr. 1 | posted by: Harpa | 13.12.2004 | 17:44:49 | [+] |

Sko.. jólasveinninn og Jóhanna gerðu með sér samning um að ef hún er góð (sem hún er í 99,3% tilfella) þá fái hún eitthvað sniðugt í skóinn á aðfangadag.

Það er eins og mér finnist rosalega líklegt að Jóhanna hætti bara að setja skóinn út í glugga af því hún er svo "gömul". - og hætti þar af leiðandi að fá í skóinn. Eins og mamma hennar. (snökt)

Ég ætla hinsvegar að setja skóinn út í glugga á aðfangadag líka og fá eitthvað geðveikislega flott. Eitthvað brjálæðislega gott nammi eða sjúklega fitandi súkkulaði. Djöfull líst mér vel á það.

Nr. 2 | posted by: anna | 13.12.2004 | 18:35:05 | [+] |

Og pakkinn í skóinn hjá Jóhönnu á aðfangadag var að stækka. Ég kem hingað heim, hlaðin pokum, og í stað þess að elda.. æ ég lýg. Ég setti upp matinn og fór svo í tölvuna. Anna duglega. Allavega, rétt eftir að ég var búin að kommenta kom Jóhanna til mín og sagðist vera búin að útskýra þetta fyrir Dodda. Jólasveinninn hringdi í hana í dag og útskýrði fyrir henni að þar sem hún væri orðin svo gömul og erfitt að finna eitthvað dót í skóinn.. hvort það væri í lagi að hún fengi bara á aðfangadag. Dodda finnst ekkert sjálfsagðara.

Málið er dautt. thumb up santa

Nr. 3 | posted by: anna | 13.12.2004 | 18:42:13 | [+] |

Láttu hann horfa á idolið

Nr. 4 | posted by: soffi | 14.12.2004 | 10:23:43 | [+] |

Ótrúlegt!
Jólasveinninn gerir greinilega samning við öll 12 ára börn. Þannig er það nefnilega hér á bæ að þeir sem eru þetta fullorðnir fá ískóinn á aðfangadag líka ellismellirnir 30+! cool

Nr. 5 | posted by: Ásta | 14.12.2004 | 13:46:58 | [+] |

Vona að Fífa (12 ára) lesi þetta ekki, hún fær ekkert í skó á aðfangadag. Hins vegar keyptum við jólaföt í Sautján handa henni...

Nr. 6 | posted by: Hildigunnur | 15.12.2004 | 11:40:50 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web