Miðvikudagur, 08. desember 2004
Best að vera snögg og bring people up to speed. Fór með DM í bíó, hann hlær eins og svín svo ég sagði honum að ég gæti ekki verið með manni sem lyktaði svona illa. Hann tók því furðu vel. Ég vildi labba heim og á leiðinni heim rann ég á hálkublett og eiginlega í veg fyrir bíl. Bílstjórinn náði að nauðhemla, stökk svo út, titraði og skalf og var í hálfgerðu sjokki.. en vitiði.. það er of langt mál að rekja hér. The bottom line er að hann var að fara, núna rétt áðan og ég sat með hárið út í allar áttir í laki einu fata við tölvuna og ætlaði reyndar í bað.. þegar Harpa kom online.
Kæru lesendur.
Við skulum átta okkur á því, að besta vinkona mín bjó til VERÐLAUNAVEF! sem heitir www.haukagil.is Ójá! Ég er svo ánægð með hana að ég er að springa. Mánuðum saman hef ég fylgst með henni úr fjarlægð smíða síðuna sína, laga þetta og laga hitt af þvílíkri natni og.. æ Harpa. Þú bara rúlar. Ert best.
LANG BEST! TIL HAMINGJU!!!!

Droppið á Dalalíf og smellið kossi á sigurvegarann!