www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Switching to e-mail
Þriðjudagur, 28. desember 2004

142_4243.jpgLoksins er fuglinn kominn í hús. Eigandinn setti lykilinn í rangan póstkassa um daginn. Ég var búin að láta hann vita að ég hefði aldrei fengið lykilinn og hann sagðist mundi reyna að redda þessu öðruvísi.

Í dag sá ég hinsvegar lykilinn hans á korktöflunni niðri þegar ég kom heim úr vinnunni. Einhver hefur fundið hann og komið honum uppá töflu. Ég tók lykilinn og bankaði uppá niðri. Þegar engin svaraði fór ég inn. Leitaði um allt að fuglinum en fann hann ekki. Reiknaði með því að hann væri farin í fóstur annað svo ég sendi sms til eigandans og sagði honum að ég hefði fundið húslykilinn hans en ekki fuglinn, reiknaði með því að fuglinn væri kominn á góðann stað.

Hann sendi til baka að fuglinn væri inná baði og ef ég gæti farið að gefa honum nýtt vatn og mat yrði hann ævinlega þakklátur. Ég fór aftur niður og fann bíbí inná baði. Smá vatn eftir og matur. Ég tók bara búrið og allt heila dótið og fór með það upp til mín, gaf honum fullt af mat og ferskt vatn. Sendi eigandanum annað sms þar sem ég sagði honum að fuglinn væri komin upp til mín þar sem hann yrði þangað til hann vitjaði hans, endaði sms-ið á að spyrja hvað fuglinn heitir.

Fékk svar stuttu seinna: "switching to e-mail"

Furðulegt nafn á páfagauk, hugsaði ég, ætla bara að kalla hann bíbí.

Auðvitað fékk ég tölvupóst stuttu seinna. Í honum stóð að fuglinn heitir James. Meikar miklu meira sense.

James líður vel og er alveg orðin rólegur. Dodda finnst hann æðislegur.


| anna | 20:59 |
comments

hver er hægt að setja lykil í rangan póstkassa þegar viðkomandi veit 1) nafn eiganda póstkassans sem lykillinn á að fara í 2) kann að lesa nöfnin á póstkössunum og getur þar af leiðandi fundið út "rétta" póstkassann 3) viðkomandi hefur ekki hlotið mjög alvarlega höfuðhögg (allaveg ekki nýlega) og ætti að geta flokkast undir að hafa svona ca heilbrigða hugsun.

How is this possible

Nr. 1 | posted by: ófeigur | 28.12.2004 | 21:16:39 | [+] |

Aður en ég hringdi á dýraverndunarsamtökin , þarf ég smá upplýsingar.
1) hversu lengi var fuglinn einn heima
2) Er það venja að fuglinn sé skilinn einn eftir heima yfir stórhátíðir inní á klósetti

Nr. 2 | posted by: ófeigur | 28.12.2004 | 21:22:10 | [+] |

Slaka á Offi. Passa þrýstinginn maður! Djöfulann ert þú að gera hér annars?

Ekki hefur skapið í þér skánað við að drepast, það er ljóst !

Nr. 3 | posted by: anna | 28.12.2004 | 21:25:19 | [+] |

það gerast svo undarlegir hlutir á jólunum what
gott að ófeigur er ekki dauður úr öllum æðum wave

Nr. 4 | posted by: Jóda | 29.12.2004 | 1:31:57 | [+] |

Sko.. .þrátt fyrir að allir gleymi því, þá ætla ég að dásama James, þetta er hinn fagrasti gaukur, minn varð smá abbó toungue

Nr. 5 | posted by: elín ýr | 29.12.2004 | 6:05:43 | [+] |

OMG
... og ég sem horfði á meðan kistan var látin síga niður what

Nr. 6 | posted by: edda | 29.12.2004 | 10:44:39 | [+] |

Bálför heðfi komið sterk inn... pirate

Nr. 7 | posted by: beggi dot com | 29.12.2004 | 14:49:07 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web