www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
SLS
Mánudagur, 20. desember 2004

I love you. I love you. I love you.

what's wrong with that
I need to know
'cause here I go
again

I love you. I love you.

Ég var í baði sem gæti útskýrt kæti mína.

Kristó kom í dag. Sagði að ég væri aftur dottin í tómið. Ég horfi í gegnum fólk og brosi. Hvernig stendur á því? Julie sagði alltaf að ég væri high on life...

Ég nenni engu. Gjörsamlega engu. Letin er að drepa mig og mér finnst það dásamlegt. Ég nenni ekki að horfa á sjónvarpið. Nenni ekki að lesa. Nenni ekki að athuga hvað ég á mikinn pening inn á bankareikningnum og ég nenni ekki að standa upp og þurrka á mér hárið. Finnst betra að sitja eins og kráka á stólnum með handklæði á hausnum og skrifa - og ég hef ekkert að skrifa um.

Með lag í lúppu, eins og venjulega.

Vatnsglas.

Instrumental kaflinn er bestur.

I only know when I'm in it
it isn't silly
it isn't silly at all

141_4152.jpgJá og í dag bættist nýr einstaklingur við heimilismeðlimi. Hann er paradísartré sem Inga gaf mér. Hann var í bjórkönnu við eldhúsvaskinn og þó ég geti aldrei sagt til um hvernig trénu leið þá var þetta ást við fyrstu sýn af minni hálfu.

Ef einhver á ógeðslega stórt paradísartré sem hann hatar og vill losna við þá má sá hin sami hafa samband við mig: anna@anna.is

I can't explain the feeling's plain to me, say can't you see?

Vá! Rétt í þessu var verið að biðja mig að passa uppá páfagauk yfir jólin. Hann býr fyrir neða mig. Ef ég væri eins og maðurinn á desktoppinu mínu mun eigandinn aldrei sjá þennan páfagauk aftur. Maðurinn á desktoppinu mínu er nefnilega þekktur fyrir að taka að sér að passa gæludýr annarra, taka ástfóstri við þau og skila þeim aldrei aftur.

Ég ætti kannski að fara að mala?

Can't you see?

Hugi hafði áhyggjur af því að hann væri að draga mig uppúr baði þegar hann sá mig með handklæðið á hausnum. Spurði mig hvort hann mætti biðja mig um stóran greiða.

Anna: "lækka í tónlistinni?"
Hugi: "hahaha nei, ég? að biðja þig að lækka?"
(hann er að referra til þess að hann spilar á píanó, sem minnir mig á að á laugardagskvöldið var partí hjá honum og hann spilaði svo fallegt lag eftir Mozart að ég var næstum búin að teygja mig í símann, senda sms og biðja hann um að spila það aftur þar sem ég lá uppí rúmi að hlusta. Þetta er æðislegt. Ég er með minn eigin konsertpíanista. Gleymdi að spyrja hann hvort hann tæki við óskalögum)
Hugi: "verður þú í bænum um jólin?"
Anna: "já"
Hugi: "værirðu til í að kíkja niður kannski tvisvar og gefa páfagauknum mínum að borða?"
Anna: "auðvitað, ekkert mál"
Hugi: "þú mátt líka halda partí ef þig langar"
Anna: "þetta hefðirðu ekki átt að segja hehe"

Partí hjá Huga 2. í jólum! Brjáluð gleði! Bjór á kútum! Hverjir mæta?

Nei bara smá djók...

Some people want to fill the world of silly love songs..

Ég ætla upp í rúm. Ætla að leggjast niður og brosa þangað til ég sofna.

En fyrst.. Refur?
ah1.jpgViltu frekar hafa þessa þarna uppi?

Eða þessa hér ah2.jpg

eða þessa

ah3.jpg









Það fer náttúrlega að líða að því að ég skipti þessu út...


| anna | 22:13 |
comments

Þó að þú hafir ekki verið að spyrja mig þá finnst mér neðri myndin, hægra megin, vera alveg að gera sig embarassed

Nr. 1 | posted by: Ljúfa | 21.12.2004 | 0:44:06 | [+] |

Sammála Ljúfu, hægri neðri. thumb up Þessi hægri efri minnir á Jennifer Love Hewitt. cool

Nr. 2 | posted by: beggi dot com | 21.12.2004 | 7:48:53 | [+] |

en af þessum myndum.. er þessi sem er efst í vinstra horninu ekki best?

Nr. 3 | posted by: anna | 21.12.2004 | 8:50:48 | [+] |

Það er ekkert að marka mig. Ég er svo vanafastur að mér finnst gamla myndin alltaf betri. shy

Nr. 4 | posted by: beggi dot com | 21.12.2004 | 9:45:06 | [+] |

Ég er einmitt að meina hana. Hún er efst í vinstra horninu. wink

Nr. 5 | posted by: anna.is | 21.12.2004 | 9:46:50 | [+] |

Gamla myndin alveg toppurinn. Ekki spurning um að halda henni happy

Nr. 6 | posted by: Þór | 21.12.2004 | 9:55:53 | [+] |

Þú skilur mig ekki weepy Það sem ég meina er að mér finnst gamla lúkkið alltaf betra.

Segjum að þú sért með þrjár myndir A, B og C.

Núna er A í horninu. Á morgun skiptir þú og setur B í staðin, þá finnst mér A betri.

Líður svo vika og þú setur C í hornið, þá finnst mér B betri.

Líður svo enn vika og þú setur A aftur í hornið, þá finnst mér C betri, osfrv. toungue

Nr. 7 | posted by: beggi dot com | 21.12.2004 | 11:47:28 | [+] |

Já þú meinar. Ég gæti náttúrlega róterað þessu mjög reglulega og gert þig alveg ruglaðann! evil

Nr. 8 | posted by: anna.is | 21.12.2004 | 13:06:57 | [+] |

Ef við tökum þetta frá vinstri mót hægri og ofan frá og niður, þá eru A. og B. svipaðar, t.d. staða handanna. Augnaráðið hvílir á punkt utan ramma í A. en beint mót áhorfanda í B. Minnir dálítið á þessar dreymandi konutýpur, sem maður sér á öllu myndefni í löndum hindúa og múslima. Það er líka mýkri áferð yfir mynd A.,næstum eins og hún sé "ofþvegin" í Photoshop. Yfirbragð B. er harðara, tónarnir í litunum kröftugri. Þá er víst bara C. eftir....

Nr. 9 | posted by: Refurinn Loki | 21.12.2004 | 13:33:26 | [+] |

Refurinn Loki!! Loksins. Ég var farinn að halda að vesfirskur meindýraeyðir hefði kálað þér.

En hvað með gömlu myndina þar sem Anna er með slæðuna. Er Organistinn sá eini sem styður þá mynd.

Nr. 10 | posted by: Organistinn | 22.12.2004 | 7:59:58 | [+] |

http://www.anna.is/old/anna.is3/index.html

Nr. 11 | posted by: anna | 22.12.2004 | 8:01:37 | [+] |

Ég átti einu sinni kærasta sem sagði mér að hann vildi alls ekki hafa plöntur á heimilinu sínu. Ég hætti með honum stuttu eftir að þetta kom í ljós. Þetta atriði er non negotiable af minni hálfu.

Paradísartréð er ÆÐI!

Nr. 12 | posted by: anna.is | 22.12.2004 | 9:03:12 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web