Laugardagur, 25. desember 2004
Ég er búin að liggja í leti í allan dag. Uppí rúmi eða að púsla við borðstofuborðið. Hef leitt drasl barnanna, sem er út um allt í stofunni, hjá mér. Þangað til ég fór í bað.
Þegar ég kom uppúr baði klæddi ég mig og bað Dodda um að ganga frá nýja dótinu sínu inní herbergi. Doddi sagði mér að það væri ekki hægt. Það er ekki pláss fyrir dótið.
Ég er því byrjuð að taka saman dót sem á að fara niður í geymslu - enn eina ferðina.
Djöfull skal ég verðlauna mig svakalega þegar ég er búin. Þetta er engin smá hörku vinna...
Ég var brútal síðast.. en núna verður gjörsamlega engin miskunn sýnd. Ég leyfi playmóinu, kubbunum og risaeðlunum að vera. Allt hitt fer. Allt!